Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 29

Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 29
Húsavík. Frá HöiuðreiSarmúla lá áður fyrr önnur aðalleiðin af Reykjaheiði, þar sem nú er bílvegurinn til Húsavíkur. Einhverju sinni þegar Sigurpáll átti leið norður fyrir lieiði hitti hann á fjallagrasaþembur miklar við gilskorning sem nefnist Jóhannesargil. Vildi hann ekki láta happ úr hendi sleppa, en tíndi væna visk af grösum og lagði á ákveðinn stað, sem hann taldi sig munu finna á vesturleið. En þegar Sigurpáll hafði lokið erindum sínum austan heiðar og kom á staðinn þar sem hann hafði skilið fjallagrösin eftir, sá ekki urmul af þeim eftir. Ilinsvegar lá þangað hreindýrsslóð og á næsta leiti hreindýr og svaf. J?ótti Sigurpáli sem það myndi þjófurinn vera og hugði á hefndir. Hinsvegar hafði hann ekki annað vopna en sjálfskeiðungskuta, stutt- blaðaðan en beittan, og með honum ætlaði hann að freista þess að ráða niðurlögum dýrsins. Læddist Sigurpáll ldjóðlega þangað sem dýrið svaf, tókst að setjast klofvega á háls þess og brá um leið hnifn- um á hálsinn. Dýrið brá við hart, spratt á fætur og tók á rás. Sigurpáll, sem hafði ágætt hald á hornunum, hélt sér í þau með annarri hendinni, en með hinni beitti hann hnífnum sem ákafast á háls dýrsins, unz það mæddi blóðrás og féll niður dautt. Þóttist Sigurpáll með þessu hafa hefnt fyrir grasa- missinn, en auk þess fengið þau vel borguð með heilum hreindýrsskrokk. Bjarndýr verður manni að bana Önnur villt dýr, sem sögur fara af að leitað hafi á Reykjaheiði, voru bjarndýr, er þau bar með ís að norðurlandinu. í „Norðra“ segir árið 1855, að þá hafi nokkur bjarndýr komið með hafís að landi og að bjarndýrsför hafi m. a. sést á Iteykjaheiði skammt innan við Kelduhverfi. Fjölmargar sagnir eru um bjarndýrsheimsóknir að Þeistareykjum, rétt austan við Reykjaheiði, en fátt um heimildir fyrir bjarndýraferðum eftir heiðinni sjálfri. Þó er til saga um að bjarndýr hafi orðið manni að bana á Reykja- heiði, og austanvert á henni eru til örnefni sem eiga að vera dregin af þeim atburði. Varnarbrekka heitir þar sem maðurinn á að hafa reynt að verjast dýrinu og krossvarða er á melhól skammt frá, en þar á líkið af manninum að hafa fundizt. Sagan er á þá lund að ísavetur einn mikinn hafi maður úr Reykjadal farið erinda sinna norður yfir Reykjaheiði. Gekk hann við atgeirsstaf enda vissi hann að bjarndýr hélt sig á heiðinni. Fór það og svo að dýrið varð á vegi hans og réðist á hann. En maðurinn varði sig með atgeirnum og fékk stökkt dýrinu á flótta. Hélt hann við svo búið leiðar sinn- ar, en liafði ekki Iengi farið er hann hitti mann úr Axarfirði sem var á vesturleið. Var sá vopnlaus. Segir hann Öxfirðingnum frá bjarndýrinu og að það muni verða á leið hans, býður honum þess vegna atgeirinn að láni hvað maðurinn þáði. Halda þeir við svo búið hver sína leið. Það leið heldur ekki á löngu unz Öxfirðingurinn mætti bangsa, en þegar dýrið sá hann með atgeirinn þorði það ekki að ráðast á hann, en hljóp þess í stað í slóð Reykdælingsins og réðist á hann þar, sem síðar heita Varnarbrekkur. Sást á förum í snjónum að FRJÁLS VERZLUN 29

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.