Frjáls verslun - 01.06.1963, Page 29
AF ERLENDUM VETTVANGI
Hætfuástand í Suðausfur-Asíu
Atburðir síðustu vikna í Laos hafa vakið ugg
manna, en hefðu engum þurft að koma á óvart.
Reynslan, sem fengizt hefur af starfsaðferðum
hins alþjóðlega kommúnisma hefði átt að gera
mönnum það fyrirfram ljóst, að það samkomulag,
sem gert var í Genf um Laos gat ekki staðizt til
lengdar. Það er jafnan háttur kommúnista, þegar
þeir hafa komið sér sæmilega fyrir í nýrri vígstöðu
að hefja nýja sókn. Þetta hafa þeir alls staðar
gert, þar sem aðstæður hafa verið fyrir hendi og
engum þurfti því að koma á óvart, þótt hersveitir
Pathet-Laos brytu við fyrsta tækifæri alla samn-
inga, sem gerðir voru í Genf um framtíðarstjórn
landsins.
Ástandið í þessum heimshluta fer hraðversnandi
og spurningin nú er sú, hvenær Bandaríkjastjórn,
sem að mestu leyti hefur tekið á sínar lierðar veg
og vanda af vörnum gegn kommúnismanum í Suð-
austur-Asíu, lætur sér bit.ra reynslu að kenningu
verða og tckur upp nýjar starfsaðferðir.
Undanfarin ár hefur undirróðursstarfsemi og
skæruhernaður kommúnista í Suðaustur-Asíu eink-
um beinzt að Suður-Vietnam og Laos. í Suður-
Vietnam geysar nú í raun réttri algjör styrjöld og
þar til á síðustu mánuðum fóru hersveitir stjórnar
Suður-Vietnam augljóslega halloka fyrir skærulið-
um Vietkong, sem laumað hefur verið inn í landið
frá Norður-Vietnam og Laos. Þessi framsókn hefur
nú að vísu verið stöðvuð en það væri rangt að segja
að spilinu liafi alveg verið snúið við og ekki er ann-
að fyrirsjáanlegt en langvarandi styrjöld muni
standa, verði ekki aðrar starfsaðferðir upp teknar.
í Laos er nú talið að kommúnistar hafi þegar um
tvo þriðju hluta landsins á sínu valdi og ekki
annað að sjá en landið allt verði þeim að bráð fyrr
en varir. Thailand hefur hingað til að mestu leyti
sloppið við undirróðursstarfsemi kommúnista, en
nú benda öll sólarmerki til þess að þar sé friður-
Forsætisráðherra Thailands — einn eindregnasti andstæðingur
kommúnista í þessum heimshluta
inn einnig úti. Stórir hópar skæruliða eru taldir
komnir inn í landið frá Laos og notfæra þeir sér
óspart þá staðreynd að innan landamæra Thai-
lands eru stórir þjóðernisminnihlutar bæði frá
Vietnam og Laos, sem ekki finna t.il neinnar holl-
ustu við ríkisstjórn landsins.
Það er ómótmælanleg staðreynd að kommúnistar
hafa hægt og sígandi verið að auka við sig lands-
svæði í þessum heimshluta undanfarin ár, með
skæruhernaði, undirróðursstarfi og alþjóðlegum ó-
hróðursherferðum á hendur ríkisstjórnum þessara
FRJALS VERZLUN
29