Frjáls verslun - 01.06.1966, Side 4
tollalækkana og draga úr þeirri tollamismunun, sem
fór vaxandi í markaðsbandalögunum.
ísland gerðist þannig bráðabirgðaaðili að GATT
5. marz 1964 til þess aö geta tekið þátt í Kennedy-
viðræðunum. Þær hafa nú staðið yfir í næstum þrjú
ár, án þess að hafa leitt til nokkurs árangurs enn-
þá. Á næstu mánuðum fæst vonandi úr því skorið,
hvort samkomulag næst milli stærstu iðnaðarþjóð-
anna um alhliða tollalækkanir, ekki um 50% cins
og takmarkið var, heldur 20—25% og þá einkum
á iðnaðarvörum. Um landbúnaðar- og sjávarafurðir
ríkir mikil óvissa vegna þess, að EBE hefur ekki
enn getað komið sér saman um sameiginlegt tilboð
aðildarríkjanna fyrir þessar afuirðir. En engin ástæða
er til nokkurrar bjartsýni að því er snertir sjávar-
afurðir. Mikil hætta er á, að tollkvótar EBE falli
niðuir á næstu árum kannske strax 1967 eða kann-
ske dregst það til 1970, og hugsanleg lækkun á
ytri tolli EBE fyrir fisk og fiskafurðir verður að-
eins lítil uppbót fyrir það áfall. Við getum því ekki
með nokkrum rétti reiknað með að aðstaða okkar
til fisksölu til markaðsbandalaganna batni verulega
vegna Kennedy-viðræðnanna. Þótt vel aflist í bili
og verðlag útflutningsins sé hagstætt eru samt
margar blikur á lofti, sem við verðum að gefa
gaum. Kennedy-viðræðurnar koma ekki til að leysa
fyrir okkur þann vanda, sem markaðsbandalögin
skapa okkur með afnámi innbyrðistolla 1967 og
stórhækkun ytri tolla EBE, sem geta komið til
framkvæmda fyrr en varir. Þar að auki nálgast
sá dagur, þegar EBE ákveður fiskimálastefnu sína,
og ef hún svipar til landbúnaðarstefnunnar eins
og búizt er við, veirsnar aðstaða okkur til fisksölu
til EBE-landanna.
Er þá komið að því að ræða, hvað sé rétt að gera
undir núverandi kringumstæðum. Um Efnahags-
bandalagið er ekki tímabært að ræða núna en hins
vegar gegnir allt öðru máli um EFTA. Verðum við
því að gera okkur grein fyrir því hvað skuldbind-
ingar og vandamál má reikna með, að fylgi aðild
að EFTA og þá um leið, hvaða hag og fríðindi má
ætla, að við fáum á móti.
Skuldbmdingar EFTA-sáttmólans
Aðalskuldbindingar EFTA-sáttmálans eru um af-
nám á tollum og innflutningshöftum á þeim vörum,
sem EFTA nær til og fluttar eru inn frá EFTA-
svæðinu. En í 6. gr. sáttmálans eru fjáröflunar-
tollar undanþegnir, og því aðeins skylt. að fella nið-
ur verndartolla, þ. e. a. s. tolla á vörum, sem líka
eru framleiddar í innflutningslandinu. Ef farið væri
nákvæmlega eftir þessum ákvæðum, og ekki tekið
tillit til annarra hluta, væri tollalækkun samfara
EFTA-aðild ekki víðtæk, því að vörur, sem keppa
við íslenzka framleiðslu, voru á árinu 1964 fluttar
inn fvriir 991 millj. kr. Af þessari upphæð, 991 m. kr.,
komu 477 m. kr. frá EFTA-löndum og námu tollar
á þeim innflutningi 203 m. kr. — En dæmið er ekki
svona einfalt. I fyrsta lagi cru tollar á iðnaðarvör-
um yfirleitt svo háir, að einhliða tollalækkun á þeim
frá EFTA-löndum þýddi sama og innflutningsbann
á þessum vörum frá öðrum löndum. Er því óhjá-
kvæmilegt að lækka einnig tollana gagnvart öðrum
löndum, þótt ekki þyrfti að fella þá alveg niður.
Væri ekki óeðlilegt, að einhvcr tollamismunur væri
gerður eftir því hvort varan er flutt frá EFTA-
landi eða ekki — en hversu langt ætti að ganga i
slíkri mismunun færi að nokkru eftir því, hvernig
gengi að semja um sérfríðindi fyrir íslenzkan út-
flutning til EFTA-landa. t öðru lagi er ekki hægt
að lækka tolla á iðnaðarvörum án þess að lækka
um leið eða jafnvel fyrr tolla á hráefnum, sem inn-
lendi iðnaðurinn notar og ennfremur á iðnaðarvél-
um. Innflutningur á hráefnum frá öllum löndum
var 1964 896 millj. kr. og tollar 276 m. kr. en á vél-
um og áhöldum einkum til iðnaðar 251 millj. kr.
og tollar alls 66 m. kr.
Samtals var innflutningurinn á iðnaðarvörum,
hráefnum og vélum 2.139 m. kr. og tollar á þessum
vörutegundum námu samkvæmt lauslegum útreikn-
ingi 826 m. kr., en heildar tolltekjurnar voru það
ár 1484 m. kr. Miklu ýtarlegri athuganir og áætl-
anir þarf að gera um væntanleg áhrif tollabrevt-
inga vegna EFTA-aðildar bæði á fjárhag rikisins
og einstakar iðngreinar. En áður en það eir gert þarf
að ákveða, hversu langt er rétt að ganga í almennri
endurskoðun tolla. Verður eflaust ekki komizt hjá
lækkun á ýmsum háum fjáröflunartollum til að
draga úr óeðlilegu misræmi í verðlagi milli vöru-
tegunda og jafnframt draga úr ólöglegum innflutn-
ingi þeirra. Um tekjutap ríkissjóðs af þessum ástæð-
um, og hvernig mætti bæta honum það, mun ég
ræða síðar.
t EFTA-sáttmálanum er gert ráð fvrir, að vernd-
artollar lækkuðu um 10% á ári og yrðu að fullu
afnumdir 1970. Á Lissabon-fundinum 1963 var þess-
atri áætlun hraðað, svo að fullt tollfrelsi gengur í
gildi um næstu áramót. Einnland hefur þó eitt ár
í viðbót, en Portúgal fylgir ennþá áætlun um af-
4
FRJÁLS VERZLUN