Frjáls verslun - 01.06.1966, Qupperneq 13
má, að fyrstu ár Fríverzlunarbandalagsins hafi mót-
azt nokkuð af því að menn voru að bíða nýrri tíð-
inda í mairkaðsmálum Evrópu. EFTA beið fyrstu
ár sín eftir því, að ný leið opnaðist til samstarfs
eða sameiningar við Efnahagsbandalagið. Þessi Ieið
virtist vera að opnast 1961, er Bretar sóttu um
iimgöngu í Efnahagsbandalagið og hófu viðræður
við það. Ljóst var að fengju Bretar inngöngu í
Efnahagsbandalagið myndu fleiri EFTA-ríki fylgja
fordæmi þeiiu'a og freista þess að fá inngöngu í
bandalagið. Alger óvissa ríkti því um framtíð Ehví'A
meðan á viðræðum Breta og Efnahagsbandalags-
ins stóð. En eflir að slitnað hafði upp úr viðræðum
Breta og Efuahagsbandalagsins í ársbyrjun 1963
urðu þáttaskil í sögu EFTA. Ríkjum Fríverzlunar-
bandalagsins varð ljóst, að EFTA mundi um langa
firamtíð eiga miklu hlutverki að gegna og sameining
Evrópu í eina markaðsheild mundi geta dregizt um
langt skeið. í samræmi við þessa skoðun töldu
EFTA-ríkin nauðsynlegt að efla og styrkja banda-
lagið.
Lissabonfundurinn
Það var Lissabon-fundur EFTA í maí 1963, sem
markaði hina nýju stefnu, en sá fundur var haldinn
til þess að ræða hin nýju viðhorf, er skapazt höfðu,
eftir að upp úr viðræðum Breta og Efnahagsbanda-
lagsins slitnaði. Nokk.rar miklivægar ákvarðanir
voru teknar á Lissabonfundinum. Hin mikilvægasta
þeirra fjallaði um það að flýta tollalækkunum
bandalagsins og afnámi viðskiptahafta. Skyldi tolla-
lækkunum lokið í árslok 1966 í stað 1970. Portúgal
fékk þó undanþágu frá þessari nýju ákvörðun og
ákveðið var, að nokkrar norskar iðnaðarvörua- yrðu
undanþegnar. Var Norðmönnum heimilað að fella
niður tolla á þeim vörum á jafnlöngum tíma og
upphaflega hafði verið ákveðið. Þá var ákveðið að
flýta enn meira niðurfellingu tolla á þeim sjávar-
afurðum, sem tollalækkun EFTA næði til að freð-
fiskflökum undanteknum. Skyldu tollar á umrædd-
um vörum falla niður í ársbyrjun 1964. Kom sú
ákvörðun þá til framkvæmda og niður voru felldir
tollar á niðursoðnu fiskmeti, lýsi og mjöli. Var þessi
mikilvæga ákvörðun um tollalækkanir á sjávaraf-
utrðum tekin vegna kriifu frá Norðmönnum, sem
höfðu óskað eftir því að tollalækkanir EFTA næðu
til fleiri sjávarafurða. Hafa Norðmenn ætíð lagt á
það áherzlu, að allar sjávarafurðir fengju EFTA
meðferð, en ekki hefur sú krafa þeirra náð fram að
ganga ennþá. Danir lögðu á það áheirzlu á Lissabon-
fundinum, að EFTA léti landbúnaðarmálin til sín
taka. Var samþykkt á fundinum, að hafnar skyldu
árlegar athuganir á landbúnaðarmálunum, en sú
ósk Dana, að tollalækkanir EFTA næðu almennt
til landbúnaðarvara, hefur ekki náð fram að ganga.
Varðandi viðskipti með landbúnaðarvörur hafa tví-
hliða samningar aðilda.rríkja EFTA reynzt mikil-
vægari en hin almennu ákvæði. Tvíhliða samningar
um viðskipti með landbúnaðarvörur hafa verið gerð-
ir milli Dana annars vcgar og Breta, Norðmanna,
Svisslendinga, Portúgala og Svía hins vegar. Hafa
Bretar m. a. veitt Diinum fríðindi á sviði smjöa--
viðskipta.
En á Lissabon-fundinum var ekki aðeins rætt um
tollalækkanir og aukna fríverzlun EFTA-ríkjanna,
heldur var þar einnig fjallað um víðtækara sam-
starf aðildarríkjanna og þá fyrst og fremst samstairf
á sviði efnahagsmála. Var samþykkt að aðstoða
þau aðildarríki EFd'A, sem skammt voru á veg
komin í efnahagslegri þróun og var þá Portúgal
einkum haft í huga. Var ákveðið að koma á fót sér-
stakri nefnd til þess að sinna þessu verkefni og
nefnist hún Economic Development Committee. I
því skyni að stuðla að auknu efnahagslegu sam-
starfi buðu Bretar EFTA-löndunum sarna aðgang
að fjármagnsmarkaðnum í London og samveldis-
löudin njóta. Svíar lýstu því einnig yfir, að þeir
myndu gera ráðstafanir til þess að auðvelda EFTA-
ríkjunum aðgang að fjármagnsmarkaðnum í Sví-
þjóð, en Svisslendingar höfðu áður veitt EFTA-
ríkjunum sérstakan aðgang að fjármagni í Sviss.
Þessar ákvarðanir EFTA um efnahags- og fjármál
hafa haft nokkra þýðingu en þó ekki mikla. EFTA
hefur þrátt fyrir þær fyrst og fremst verið friverzl-
unarbandalag, sem látið hefur sig tollalækkanir
mestu skipta og efnaliagslegt samstarf hefur verið
lítið. Þróun EFTA og starfsemi liefur skýrt ýmis
ákvæði stofnsamningsins sem óljós voru í uþphafi.
Enda þótt afnám tolla og hafta sé aðalatriði
EFTA, fjallar stofnsamningurinn um mörg önnur
atriði, en í framkvæmd hafa þau litla þýðingu. í
stofnsamningnum er t. d. kveðið svo á að afnema
skuli útflutningshöft, opinbera styrki og niður-
greiðslur, ef þau dragi úr því viðskiptalegu hagræði,
sem fríverzlunin eigi að skapa. Einnig skuli opinber
rekstur lagður niður veiti hann innlendri framleiðslu
óeðlilega mikla vernd. En í framkvæmd hafa þessi
ákvæði þó ekki haft neina þýðingu. Hin einstöku
aðildarríki hafa getað túlkað það nokkuð frjálslega,
Iivort útflutningsstyrkir og opinber rekstur drægju
FRJÁLS VERZLUN
13