Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1966, Page 22

Frjáls verslun - 01.06.1966, Page 22
Gunnar J. Friðriksson: Iðnaðurinn og EFTA Það má segja, að ekki sé það nýlunda, að um- ræður um ísland og markaðsmál Evrópu lcomist á dagskrá hér á landi. Þessi mál hafa verið hér til umræðu af og til frá því á árunum 1957 og 1958, þegar ítarlegar umræður áttu sér stað á vegum OEEC um stórt fríverzlunarsvæði. Hæst risu þó umræðurnar um þessi mál á árinu 1961—1962 og fóru þá frain allvíðtækar athuganir á ýmsu því er máli skipti varðandi hugsanleg tengsl íslands við Efnahagsbandalagið, en þá voru horfur á því að Bretar og fleiri EFTA-Iönd gerðust aðilar að því bandalagi. Hér gefst ekki tími til að gera í örstuttu erindi grein fyrir þeim áhrifum, sem slík aðild kann að hafa á íslenzkan iðnað né heldur að ræða hagsmuni hinna einstöku iðnaðargreina í því sambandi. Eg vil aðeins lýsa hinum almennu viðhorfum iðnaðarins til þessara mála eins og þan voru fyrir fjórum ár- um og eins og þau eru í dag. Þegar umræður risu sem hæst um Island og mark- aðsmál Evrópu árið 1962, markaði ársþing iðn- rekenda afstöðu iðnaðarins til þessara mála eins og þau þá horfðu við. Mælti ársþingið með því að sótt yrði um aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu til þess að úr því fengist skorið á hvern hátt sú aðild yrði. I ályktuninni segir ennfremnr að iðnrekendur séu hlynntir aðild, ef athuganir leiði í Ijós, að slík aðild sé hagkvæm frá þjóðhagslegu sjónarmiði, jafn- vel þótt það hefði í för með sér ákveðna annmarka fyrir sumar iðngreinar. Nú munu vafalaust margir telja að viðhorf iðn- aðarins til þessara mála hljóti að vera svipuð eða þau sömu og árið 1962. Svo er hins vegar ckki, og er mér óhætt að segja, að miðað við þær aðstæður, sem iðnaðurinn býr við í dag, þá getur hann ckki fallizt á aðikl íslands að EFTA. Og sama gildir um afstöðu iðnaðarins til fyrirhugaðra áætlana um stiglækkandi tolla óháð því, hvort ísland gerist að- ili að eða tengdist á einhvern hátt þeim markaðs- bandalögum, sem mynduð hafa verið í Evrópu. Ástæðan til þessa er sú þróun í efnahagsmálum, sem átt hefur séa’ stað hér á landi á síðustu fjórum árum. Sú þróun hefur valdið því, að aðstaða iðn- aðarins til að mæta aukinni samkeppni er allt önn- ur en hún var á árinu 1962. Á þessu tímabili hefur framleiðslukostnaður hér innanlands farið stórum vaxandi. Til dæmis um það má nefna, að frá því á miðju ári 1962 hafa samningsbundnir kauptaxtar iðnverkamanna hækkað um ca. 70% og kauptaxtar iðnverkakvenna um rúmlega 100%. Ekki er ólik- legt. að raunverulegar hækkanir hafi jafnvel orðið meiri af völdum launaskriðs, vegna þeirrar miklú þenslu, sem ríkt hefur á vinnumarkaðnum á tíma- bilinu. Þá má geta þess, að á sama tímabili nemur hækkun á byggingarvísitölunni um 55%, og að svip- aðar hækkanir hafa orðið á flestum þeim innlendu kostnaðarliðum, sem ganga inn í framleiðsluna, svo sem rafmagni og allri aðkeyptri þjónustu. En nú má spyrja, hvers vegna iðnaðnrinn þurfi sérstaklega að setja fyrir sig þessar kostnaðarhækk- anir, þar sem þær hljóti einnig að hafa bitnað á öðrum framleiðsluatvinnugreinum svo sem landbún- aði, sjávarútvegi og fiskiðnaði. Það er að vísu rétt, en hins vegar hafa á sama tíma verið gerðar ýmsar ráðstafanÍT, þessum atvinnugreinum til styrktar. Ef við tökum landbúnaðinn, þá horfa málin þannig 22 F11.IÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.