Frjáls verslun - 01.02.1969, Blaðsíða 48
46
FRJAL5 VERZLUN:
fjárskort að ræða hjá bönkunum,
er erfitt fyrir bankastofnanir að
gera nákvæmlega fyrirfram áætl-
anir um, hvenær þeir geta keypt
framboðna víxla. Er oft á tíðum
dagafjöldi lítill, sem eftir er til
gjalddaga, þegar peningastofnun-
in loks kaupir. Fyrir nokkrum ár-
um lét Félag ísl. stórkaupmanna
athuga meðalkostnað af svona
víxlaviðskiptum, og reyndist hann
vera um 18% á ári fyrir innan-
bæjarvíxla, en allt að 20% fyrir
utanbæjarvíxla. Augljóst er að
fjáröflun eftir þessari leið er afar
dýr.
Vegna þeirra miklu örðugleika
með að fá lán og fjármagnsskorts-
ins, sem hjá verzluninni er, hefur
innflutningsverzlunin neyðzt til að
notfæra sér heimildir á fyrirfar-
andi árum til þess að taka erlend
vörukaupalán. Þessi lán eru venju-
lega vaxtalaus og virðast því við
fyrstu sýn hagkvæm. En í raun og
veru eru þau ef til vill alverstu
lánin, sem verzlunin hefur neyðzt
til að taka. í fyrsta lagi tapast við
svona lántöku sá greiðsluafsláttur,
sem annars er gefinn vegna stað-
greiðslu. í sumum tilfellum verða
því vextir raunverulega mjög há-
ir og gera vöruna dýrari. í öðru
lagi má segja, að þessi erlendi
greiðslufrestur hafi reynzt hrein
neyð fyrir verzlunina, vegna
þeirra gengisfellinga, sem skollið
hafa yfir hvað eftir annað. Ótti
við svona lántökur er nú mikill.
En hvað á verzlunin að gera, hvar
fær hún lán til reksturs og vöru-
kaupa?
Eins og fyrr er sagt, getur verzl-
unin þvi aðeins orðið hagkvæm
þjóðinni, að henni sé gert mögu-
legt að fá aðgang að fjármagni
með sæmilegum kjörum. Góður
og hagkvæmur verzlunarrekstur
er eitt af undirstöðuatriðum al-
mennrar velmegunar þjóðarinnar.
Augljóst virðist, að mjög kallar
á, að úrbót fáist á þessum málum.
Fyrst og fremst er þörf á ráðstöf-
unum til þess, að heilbrigð fyrir-
tæki fái að leggja fyrir eigið fé,
sem nota má í rekstur þess. Þetta
mætti gera með því að hækka
verulega varasjóðstillag, sem væri
frádráttarhæft við álagningu
skatts og útsvars. Aðstöðugjaldið:
þarf að gera álagningarhæft, eins.
og ráðgert var í upphafi, þegar
lögin um það voru sett. í öðru lagi
er aðkallandi þörf á, að efldur
verði Verzlunarlánasjóður, sem
veitir stofnlán til langs tíma. Ann-
an sjóð væri æskilegt að stofna,
sem veitti lán til skamms tíma til
rekstursins. Ekkert ætti að vera
því til fyrirstöðu, að skilyrði til
lántöku úr þessum sjóðum væri,
að viðkomandi lántakandi upp-
fyllti ákveðnar skyldur viðkom-
andi rekstri sínum, sem tryggði
það, að fyrirtækið raunverulega
veitti heilbrigða þjónustu með
starfsemi sinni. Lausn á fjár-
magnsskorti verzlunarinnar er að-
kallandi mál, ekki aðeins fyrir
verzlunina sjálfa, heldur þjóðina
í heild.
HVADA LÍFTRYGGING HENTAR YÐUR?
EIGNAVERND:
Er tryggingardœtlun, sem veitir
ótakmarkaða vernd og er
umbreytanleg í lílstíðartryggingu.
Mjög sveigjanleg vernd, sem
auðvelt er að aðlaga ólormum og
þörfum hverrar fjölskyldu.
SKULDAVERND:
Er tryggingaráœtlun, sem
tryggir yður að framkvœmd fjár-
festingaráœtlana, lúkning
skulda eða annarra fjárhagslegra
skuldbindinga til langs tíma verði
í samrœmi við áform yðar.
ALPJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAG'IÐ H F.
■ AÐALUMBOÐ FYRIR THE INTERNATIONAL LIFE INSURANCE CO. (U.K.) LTD.
SlMAR: 18060 OG 23490