Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1969, Side 50

Frjáls verslun - 01.02.1969, Side 50
4B FRJÁLS VERZLUNI liðu aldir. Napóleon mikli fór oft um borgina í leiðöngrum sínum um Evrópu þvera og endilanga og þeir leiðangrar voru ekki alltaf farnir í friðsamlegu skyni, sem öllum er kunnugt. Það var í þessari borg, sem iðn- aðarmaðurinn Georg Michael Pfaff settist að, eftir að hann lauk iðn- námi sínu og hóf smíði á snún- ingsverkfærum og hljóðfærum. Hann hagnýtti sér þá þekkingu, sem hann hafði aflað sér erlendis sem iðnnemi og eftir margra ára tilraunir smíðaði hann fyrstu saumavél sína eins og að framan greinir. Það var skósmiður nokk- ur, sem keypti hana og þessi vél reyndist afar vel og eftirspurnin eftir þessari saumavél, sem enn var tiltölulega óþekkt í Þýzka- landi, óx svo ört, að G. M. Pfaff varð fljótt að leita sér að góðum samstarfsmönnum og stækkaverk- smiðju sína. Árið 1872 var árs- framleiðslan þegar orðin 1000 vél- ar, en það eru þó ekki fleiri vél- ar en nú eru framleiddar á ein- um degi hjá Pfaff-verksmiðjunum. Það var mikið starf og mikil hagleikni, sem fór í það að smíða fyrstu Pfaff-saumavélarnar. Allt. frá stofnun var G. M. Pfaff og síð- ari stjórnendum Pfaff-verksmiðj- anna Ijóst, að byggja yrði á þeirri grundvallarreglu, að framleiðslu- vörur þeirra yrðu að vera gæða- vörur og því markmiði varð ein- mitt náð hvað bezt með því að framleiða eina vélategund, sauma- vélar. Á þann hátt mætti með stöðugum endurbótum og nýjum uppfinningum varðandi þessavéla- tegund koma því til leiðar, að Pfaff-saumavélin yrði alltaf í far- arbroddi, hvað snerti gæði. í þessu skyni er öll framleiðslan í höndum Pfaff. Allir hlutar saumavélarinnar, allt frá fíngerð- ustu skrúfum til stálkassans, sem er utan um vélina, eru smíðaðir hjá Pfaff-verksmiðjunum, sem hafa sína eigin stálbræðsluofna í þessu skyni og nú er þar beitt nýjum aðferðum í málmsteypu, sem valda því, að unnt er að smíða hluti með þvilíkri ná- kvæmni, að engan óraði fyrir slíku áður. En það varð líka ljóst, að hag- leikni saumavélarinnar varð að fylgja fallegt útlit og þess vegna varð mikil áherzla á það lögð. Og saumavél yrði ekki fullkomin, nema henni fylgdi fallegur skáp- ur, sem væri í samræmi við hana og prýði að. Þess vegna er valinn vandlega unninn viður í þennan skáp, þar sem aðeins vandvirkir smiðir leggja hönd að verki. Sjálfvirk saumavélasamstæða fyrir skyrtuboðang. SMITH-CORONA 30 GERÐIR Stórkostlegt úrval rit-og reikni- véla til sýnis og reynslu i nýjum glæsilegum sýningarsal; ásamt Taylorix bókhaldsvélum og fullkomnum samstæðum skrifstofu- húsgögnum SKRIFSTOFUTÆKNI Armúla .7. xiini .111 ÍHIO.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.