Frjáls verslun - 01.02.1969, Qupperneq 57
FRJÁLS VERZLUN
55
Á afgreiffislu Flugfélags fslands koma margir til að spyrja um ferðir
og fá upplýsingar um Iand og þjóð.
ast allar bókanir á flugi frá
Reykjavík og Keflavík, bókunar-
deildin í London flug þaðan, bók-
unardeildin í Osló annast sína
borg og bókunardeildin í Kaup-
mannahöfn öll önnur flug frá
Norðurlöndum og Glasgow. Til
hlutaðeigandi bókunardeilda ber-
ast bókanir með fjarritum, í gegn-
um síma eða eftir öðrum leiðum.
Til þess að gera bókunarkerfi sín
meðfærilegri, hafa flugfélögin
myndað með sér samband, er
nefnist SITA, en hlutverk þess er
að sjá um móttöku og dreifingu
skeyta milli flugfélaganna. Höfuð-
stöðvar sambands þessa eru i
Frankfurt am Main, en þar annast
gríðarmikill rafreiknir móttöku og
dreifingu skeyta til hinna ýmsu
félaga.
Á Kastrupflugvelli er rafreikn-
ir, SASCO, sem fær upplýsingar
um vélar, er fara um Kaupmanna-
höfn og gefur hann starfsmönn-
um á flugvellinum upplýsingar
um bókanir á hverri vél og einnig
um mætingu farþega á flugvelli.
Á þennan hátt er því unnt að
selja farmiða á flugvelli, þótt far
hafi ekki verið pantað áður. Kerfi
þetta er mjög fullkomið og tekur
það aðeins fáeinar sekúndur að
fá upplýsingar frá rafreikninum.
Þannig er fylgzt með farþega-
fjölda með hverri vél. Þetta er
mikilvægt atriði í rekstri flugfé-
lags, svo miklu sem góð sætanýt-
ing varðar hag þess. Skiptir þá
miklu að hafa á að skipa hæfu
starfsfólki til þessa starfs. í Kaup-
mannahöfn vinna við farskrán-
ingu, auk deildarstjóra, Ragnars
Ragnars, Hulda Friðriksdóttir,
Auður Björnsdóttir, Edda Tulin-
íus og Hallfríður Konráðsdóttir.
Á FLUGVELLI.
Á Kastrupflugvelli eru að jafn-
aði tveir starfsmenn Flugfélags ís-
lands, en þeir annast móttöku vél-
anna og hafa umsjón með þeim
á flugvellinum. Félagið hefur
einnig skrifstofu á flugvellinum,
en starfsmenn þar eru þeir Ólafur
Bertelsen, stöðvarstjóri, og Bent
E. Petersen. Kvað Óiafur sam-
starfið við hina erlendu aðila gott
og þá einkum SAS. Eitt af hlut-
verkum Ólafs er að hafa umsjón
með hleðslu vélanna, en þar gilda
mjög strangar, alþjóðlegar reglur,
og fyrir hverja flugferð gerir Ólaf-
ur einnig flugáætlanir, þar sem
reiknað er út flugþol o. fl. Að-
spurður kvað Ólafur flugfrakt
hafa aukizt allverulega og væru
líkur á töluverðri aukningu i
framtíðinni.
I DAG.
Hér að framan hefur verið bent
á þá möguleika, sem eru á því að
auka mjög verulega straum er-
lendra ferðamanna til íslands og
jafnframt þá vankanta, sem á eru,
til að það megi takast. Þeir, sem
þessa grein lesa, vita raunar, að
hér er ekki á ferðinni neinn nýr
sannleikur, sem Frjáls verzlun
þykist hafa uppgötvað. Um þessi
mál hefur verið rætt um árabil,
vandamálin hafa verið rædd fram
og aftur og menn hafa þótzt eygja
ýmsar lausnir. Ekkert, sem máli
skiptir, hefur þó verið gert. Hér
er um að ræða mál, sem varðar
þjóðarhag, og stöðugar vangavelt-
ur með engu í ofanálag gagna
ekkert. Nauðsyn þess að laða til
landsins erlent fjármagn til fram-
kvæmda í atvinnuskyni er öllum
hugsandi mönnum ljós, og það er
ekki síður nauðsynlegt, að stjórn-
völd hafi frumkvæði að því að
laða til landsins erlenda ferða-
menn en að koma upp einni ál-
verksmiðju.
A/S ROULANDS FABRIKER:
Hemlaborðar — Kúplingshrimgir — Diskabremsur
Viftureimar — Þilreimar — Vatnshosur
VélareSmar — Færibönd.
Umboð:
A. P. BENDTSEN,
PÓSTHÓLF 247 — SÍMI 14321 — REYKJAVÍK