Frjáls verslun - 01.01.1970, Side 28
ZB
FRJALS VERZLUN
Ólafssyni og Pétri Lúðvíkssyni
húsgagnaarkitektum. Einnig var
svefnbekkur með baki, sem kost-
ar ásamt endaborði kr. 24.736.- og
lítil borð, sem má stafla, sem
kosta kr. 2.585.-. Einnig framleið-
ir fyrirtækið mikið úrval svefn
bekkja, kommóður og stóla.
17 Dúna í Kópavogi hefur þann
hátt á, að kaupa framleiðslurétt
á húsgögnum frá dönskum hús-
gagnaarkitektum. Hefur fyrirtæk-
ið því möguleika á að bjóða upp
á mikla fjölbreytni í framleiðsl-
unni. Fyrii'tækið framleiðir sófa-
sett, staka stóla, sófaborð og inn-
skotsborð og springdýnur.
18 Ásgrímur P. Lúðvíksson og
Húsgögn hf. framleiða í samein-
ingu sérkennilega tunnustóla
Fyrra fyrirtækið bólstrar, en hið
síðara smíðar grindurnar. Stóðu
stólarnir í kringum borð úr pali-
sander, með borðplötu. sem mál-
uð er með sýruhertu lakki, sem
myndar marmaraáferð.
19 Gluggar hf. sýndu glugga-
tjöld, gluggatjaldafestingar og
stengur í miklu úrvali.
20 Timburverzlun Árna Jóns-
sonar sýndi margvislegar timbur-
vörur, unnar og óunnar, bæði til
innréttinga og annarra nota.
Gefjun á Akureyri sýndi ný
teppi úr íslenzkri ull, sem eru
mjög athyglisverð. Einnig sýndi
fyrirtækið húsgagnaáklæði og
gluggatjaldaefni úr íslenzkri ull
og draloni.
Ýmsar aðrar vörur gat að líta,
svo sem gólfteppi frá Álafossi,
Vefaranum og Teppi hf. Álafoss
sýndi húsgagnaáklæði, meðal
annars hið nýja Salún sem byggt
er á vefnaði frá átjándu öld.
Ef meta ætti það bezta á
sýningunni, með sjónarmið þæg-
inda og útlits í huga, er nokk-
ur vandi á höndum. Ég held
þó, að vaiið yrði þrennt. Mini
húsgögn, sem Skeifan selur, eru
bæði falleg og ótrúlega þægi-
leg, auk þess sem þau uppfylla
þörf fyrir fyrirferðarlítil húsgögn
í litlum íbúðum eða barnaher-
bergjum. Sófasett frá Nýju Bólst-
■ .urgérðinni, sem er óvenjulega
fallegt að formi, þægilegt að
auki og á hóflegu verði. Það
þriðja myndi svo vera skrifborð
frá Helga Einarssyni. Þau eru svo
falleg á að sjá, að óvenjulegt má
teljast.
í heild verður það að segjast
um sýninguna, að ekki er senni-
legt, að hún skapi grundvöll fyr-
ir víðtækum útflutningi húsgagna.
Vafalaust eru þó slikar sýningar
gagnlegar og, örva þróun í hús-
gagnaiðnaðinum.
OSRAM
BÍLA- 1
PERUR
Fjölbreytt úrval
ávallt fyrirliggjandi
Jóh.Ólafsson&Co.,hf.
Brautarholti 2, sími 11984