Frjáls verslun - 01.01.1970, Side 33
FRJÁLS VERZLUNÍ
,33
BIFREIÐASALA:
VERULEG VERÐLÆKKUN Á MINNI
FÓLKSBIFREIÐUM
— en lítil á jeppum og stœrri bifreiðum.
Ríkisstjórnin hefur nú nýlega
beitt sér fyrir breytingum á tekju-
öflun ríkissjóðs af bifreiðainn-
flutningi, og hefur Alþingi sam-
þykkt breytingarnar. Þær eru í
meginatriðum fólgnar í því, að
leyfisgjöld eru felld niður og að
tollar eru lækkaðir á stærri vöru-
og fólksflutningabifreiðum. Ganga
breytingarnar i gildi 1. marz nk.,
og lækkar þá verð minni bifreiða
mjög verulega, nema lítilsháttar á
jeppum, og einnig lækkar verð
stærri bifreiða litið eitt. Þeir sem
kaupa bifreiðar á tímabilinu frá
1. jan. til 28 febr. á „gamla verð-
inu“, fá endurgreiðslu, sem nem-
ur lækkuninni frá 1. marz.
FV hafði samband við allmarga
bifreiðainnflytjendur og fékk til
birtingar verð nokkurra gerða
eftir breytingarnar, mest seldu
bifreiða hjá hverjum aðila. Er þó
jeppum sleppt að mestu og stærri
bifreiðum alveg, enda litlar breyt-
ingar á verði þeirra og eins svo
fjölmörg verðafbrigði um að ræða.
Verðbirtingin er því aðeins ætlu'ð
til að gefa hugmynd um nýtt verð
einkabifreiða, sem mest lækka í
verði, og er þó hvergi nærri tæm-
andi sem slík
RÆSIR HF.
Verð Mercedes Benz bifreiða
lækkar um 100 þús. og þar yfir.
Algengasta tegund 6 manna bif-
reiða kostar nú 570 þúsund í stað
695.
JÓN LOFTSSON IIF.
Minni Rambler bílarnir lækka
um nálægt því 60—70 þús. kr.
Nú kostar Rambler American 440,
420 og 460 þúsund. Stærri bílarn-
ir kosta svo nokkuð á 6. hundrað
þúsund og þar yfir.
VÖKULL HF.
Verð minni Plymouth og' Dodge
bílanna lækkar um nálægt 70
þús. kr. Plymouth Valiant kostar
450 og 465 þúsund, en Dodge Dart
460 og 485 þúsund. Næstu stærð-
ir þessara gerða kosta 540—550
þús.
Simca bílarnir lækka aftur á
móti um 30—50 þús. kr. og sá ó-
dýrasti kostar nú um 240 þúsund.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Hillman bílarnir lækka um 35
—55 þús. kr. Sá ódýrasti kostar nú
174 þúsund og aðrir 250—275
þúsund. Commér sendibílarnir
lækka einnig, þeir-kosta nú 220 og
258 þúsund, en Sumbeam sendi-
bíllinn kostar 135 þúsund.
Willys jepparnir eru á svipuðu
verði og kostar ódýrasti jeppinn
um 385 þúsund.