Frjáls verslun - 01.04.1971, Blaðsíða 12
12
ÍSLAND
FRJÁLS VERZLUN NR. 4 1971
700 milljónum. Myndu eignir
um 100 lífeyrissjóða um síð-
ustu áramót þá hafa numið 3.7
milljörðum króna, eða því sem
næst. í samræmi við þetta má
enn gizka á, að eignaaukning-
in í ár verði 7-800 milljónir.
Ættu lífeyrissjóðir okkar þá að
eiga um 4.5 milljarða króna í
árslok 1971, — og munar um
minna.
Skv. upplýsingum Seðla-
bankans voru það 9 lífeyris-
sjóðir, sem lánuðu yfir 10 millj-
ónir hver árið 1969. og eru það
að líkindum stærstu sjóðimir.
Þessir sjóðir eru Lífeyrissjóð-
ur starfsmanna ríkisins, sem
er langstærstur, Lífeyrissjóður
verzlunarmanna, Lífeyrissjóð-
ur starfsmanna SÍS, Lífeyris-
sjóður togarasjómanna og und-
irmanna á farskipum (nú Líf-
eyrissjóður sjómanna), Lífeyr-
issjóður barnakennara, Lífeyr-
issjóður atvinnuflugmanna, Líf-
eyrissjóður starfsm. Reykjavík-
urborgar, Lífeyrissjóður verk-
smiðjufólks og Lífeyrissjóður
starfsm. Landsbanka fslands.
Fiskiskip
1866 fleytur
skráðar 1. jan.
Um síðustu áramót voru á
skipaskrá hjá Siglingamála-
stofnun ríkisins 1866 fiskiskip
og opnir vélbátar. Nánar til-
greind eru þetta 24 togarar
(16.981 tonn), 199 fiskiskip yf-
ir 100 tonn (41.411 tonn), 549
fiskiskip undir 100 tonn (18,-
314 tonn) og 1094 opnir vélbát-
ar (3.350 tonn).
Togararnir og öll fiskiskip
yfir 200 tonn brúttó eru úr
stáli, 73 200-299 tonn, 26 300-
499 tonn og svo togararnir 24,
sem allir eru stærri. Meðalald-
ur þessara stálfiskiskipa 200-
499 tonn er 7.3 ár, en togar-
anna 18.9 ár.
Meirihluti fiskiskipa 100-199
tonn er einnig úr stáli, 77 alls,
en 27 úr tré. Meðalaldur þess-
ara skipa er 11 ár.
Þau fiskiskip, sem eru undir
100 t., eru flest úr tré, eða 511
skip, aðeins 38 eru úr stáli.
Meðalaldur skipa af þessari
stærð er 18.9 ár, og eru þar
elzt skip af stærðinni 25-49
tonn, eða að meðaltali 21.6 ára
gömul.
Opnir vélbátar eru flestir úr
tré.
A siOasta aratug var byggöur upp stór tloti 200-499 tonna
fiskiskipa. Sum skipanna voru smíðuð hérlendis, þeirra stærst
Eldborg GK, til hægri á myndinni. FV.
68 í SMÍÐUM.
Um áramótin voru 68 togar-
ar og fiskiskip í smíðum hér og
erlendis fyrir íslenzka aðila.
Þar af 6 togarar erlendis, 19
fiskiskip 100-499 tonn og 49
undir 100 tonn.
Rafreiknar
l\lýr og fljótari
rafreiknir
frá IBIU
Þann 8. marz sl. boðaði IBM
á íslandi til fundar með fulltrú-
um viðskiptavina sinna til að
kynna nýjan rafreikni IBM 370,
gerð 135. Samsvarandi kynn-
ingarfundur var haldinn í 108
löndum þennan dag. í fyrra
voru kynntar erlendis þrjár
stærri gerðir af IBM 370 kerf-
inu.
IBM 370/135 er minnsti raf-
reiknirinn af 370 flokknum.
Miðað við afkastagetu er verð-
ið mjög hagstætt fyrir þá, sem
hafa þörf fyrir rafreikni af
þessari stærð.. .
Gerð 370/135 mun fyrst og
fremst vekja athygli fyrir mik-
inn innri hraða, sem er allt að
fjórum sinnum meiri en hjá
IBM 360/30 (rafreiknir
Skýrsluvéla ríkisins og Reykja-
víkurborgar), sem er álíka
kostnaðarsamur í rekstri. Lögð
hefur verið áherzla á aukið
rekstraröryggi og eru flestar
aðgerðir endurteknar, ef vélin
getur ekki framkvæmt þær í
fyrstu tilraun. Ef eitt tákn mis-
ferst, leiðréttir vélin villuna á
sjálfvirkan hátt, en skráir jafn-
framt upplýsingar um hvað
rra runainum er llilVl 370/135 var kynntur.