Frjáls verslun - 01.04.1971, Blaðsíða 27
FRJÁLS VERZLUN NR. 4 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
27
hafa kosið að efla söluna almennt, fremur en að
einskorða sig við EFTA, þar eð aðildin sem
slík varð til almennrar útflutningsörvunar.
Að öðru jöfnu mætti með hlutfallslegri aukn-
ingu til mismunandi landssvæða greina áhrif
inngöngunnar í EFTA. Hér hefur þó ekki verið
reynt að einangra önnur „truflandi áhrif“, þann-
ig að töflurnar 2 og 3 sýna (hlutfallslega) út-
flutningsbreytingu vegna allra mögulegra
þátta; vegna byggingar álbræðslu og kísilgúr-
verksmiðju, vegna hagstæðra áhrifa gengis-
breytinganna síðustu á samkeppnisaðstöðu í ull
og skinnum, eftirspurnar erlendis og sölu-
mennsku, aflabragða, umþóttunar í sjávarút-
vegi, niðurfellingu tolla í EFTA-ríkjum o.s.frv.
3. Helztu viðhorf í markaðsmálimi.
Það er trú mín, að auka megi útflutning iðn-
aðarvöru úr innlendum hráefnum verulega á
næstu árum. Til þess þarf ekki nauðsynlega
stórar framleiðslueiningar, en aftur á móti sam-
stöðu um sölu og skipulagningu framleiðslunnar.
Okkur hefur tekizt að selja frystan fisk með
þessu móti með góðum árangri. Af hverju skyldi
ekki hið sama geta gilt um niðursoðnar sjávar-
afurðir? (Hér þarf auðvitað að taka tillit til
launakostnaðar, skatta, hráefnisöflunar o.fl., en
spurningin á eigi að síður rétt á sér.) Vonandi
verður eitthvað úr Stevenson & Kellogg-skýrsl-
unni, þar sem bent var á, að stórkostlegir mögu-
leikar séu fyrir hendi í niðursuðuiðnaði.
Við vitum, að söluaukningin í ullarvörum er
að verulegu leyti árangur af sameiginlegri mark-
aðsleit og sölustarfsemi ásamt stuðningi frá út-
flutningsskrifstofu Félags íslenzkra iðnrekenda.
Miklar vonir eru bundnar við Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins, en frumvarp þar að lútandi var
til umræðu á síðasta þingi.
Við vitum, að einstaka framsýnir menn í grein-
um, þar sem sameiginlegt söluátak hefur vant-
að eins og í húsgagnagerð og innréttingasmíði,
hafa riðið á vaðið og kannað sölugetu sína er-
lendis og það jafnvel borið árangur.
Við vitum jafnvel, að meðan viðkvæðið „að
það gengur of vel“, klingir í eyrum, verður erf-
itt að hvetja fyrirtækin til útflutnings.
Við ættum einnig að hafa í huga, að flestar
vænlegustu útflutningsafurðir okkar úr íslenzk-
um hráefnum eru háðar árstíðarsveiflum í eftir-
spurn eða sveiflum í aflabrögðum, (eða þá hvoru
tveggja og verðsveiflum að auki). Þannig selj-
ast ullarvörur aðallega á vetrum og væntanlega
verða framleiðslufyrirtækin að kaupa ull og
skinn í sláturtíðinni á haustin. Fyrir fyrirtæki,
sem vill halda framleiðslunni nokkuð stöðugt
gangandi (ekki sízt vegna vinnuaflsins), þýðir
þetta aukna fjárbindingu í hráefnum og/eða
afurðum. Er þá orðið hæpið að halda því fram,
að sjávarvörur og landbúnaðarvörur eigi að
ganga fyrir um afurðarlán, ekki sízt, ef mark-
miðið er að auka framleiðslu og sölu iðnaðarvara
af framangreindu tagi.
Rétt er að hafa í huga, að þótt útflutnings-
verðmæti iðnaðarvara úr íslenzkum hráefnum
geti stórum aukizt hlutfallslega reiknað, getur
iðnaðarvarningur ekki orðið verulega stærri
hluti vöruútflutnings, nema meiri stóriðja komi
til sögunnar. Unnið er að áætlunum í þessum
efnum og mun ég e.t.v. hafa tækifæri til að
víkja að þeim síðar á þessum vettvangi.
Ef við hugum að lokum- að viðskiptamynztr-
inu árið 1970 og viðhorfum til Efnahagsbanda-
lags Evrópu, þá var innflutningur mestur þetta
ár frá Vestur-Þýzkalandi, þá Bretlandi og Dan-
mörku, en útflutningur mestur til Bandaríkj-
anna, Bretlands og Vestur-Þýzkalands. 43.1%
innflutningsverðmæta (á cif-verði) kom frá
EFTA-löndum og 27.5% frá EBE-löndum. 38.3%
útflutningsverðmæta (á fob-verði) fór til EFTA-
landa, en 16,8% til EBE-landa. Ef reiknað er með
að Bretland, Danmörk, írland og Noregur gangi
í EBE og önnur EFTA-ríki tengist Efnhagsbanda-
laginu með einum eða öðrum hætti, koma 70%
innflutnings okkar frá slíku markaðssvæði og
yfir 50% útflutnings okkar fara til þess. Ekki
skal hér gerð tilraun til að meta óhagræði af
hugsanlegum tolli á vörum okkar til slíks svæð-
is, en greinilegt er, að ísland til'heyrir því nú
þegar viðskiptalega séð og því álít ég eðlilegt,
að ísland stefni að tengslum við „útvíkkað"
Efnahagsbandalag á grundvelli EFTA-samstarfs-
ins.
ÓLAFS-
FIRÐ-
INGAR!
HEIMILT STÆKI,
GÓLFTEPPI,
afborgunarskilmálar.
ATLAS kæliskápar, 14 gerðir.
Frystiskápar, 4 gerðir.
Frystikistur, 4 gerðir.
NILFISK ryksugur.
HUSQVARNA saumavélar.
ÁLAFOSS gólfteppi.
ÓLAFSFIRÐI — Símar; 62208, 62255, 62122.