Frjáls verslun - 01.04.1971, Qupperneq 37
37
FRJÁLS VERZLUN NR. 4 1971 GREINAR OG VIÐTÖL
aukin starfsemi hefur krafizt.
Deildirnar eru Bíladeild. Bíla-
verkstæði, (varahlutir og þjón-
usta), Véladeild, varahluta-
og þjónustudeild vegna vél-
anna, og svo loks Raftækja-
deild með verzlun og þjónustu.
Bíladeildinni stjórnar Árni
Bjarnason, Véladeild Sverrir
bróðir minn og í Raftækja-
deild er Björn Kristmundsson
deildarstjóri. Skrifstofustjóri
er Lýður Björnsson.
ÞEKKT UMBOÐ.
FV: Þið hafið mörg þekkt
umboð?
IS: Það er rétt. Þekktast er
líklega umboðið fyrir Vol'ks-
’wagen bílana. Hekla hf. hefur
nú flutt inn talsvert á 7. þús-
und bíla af þessari gerð frá
1954. Land Rover er einnig
þekktur bill hér í hópi fjór-
hjóladrifsbílanna, og af hon-
um höfum við flutt inn hátt
í 3 þúsund bíla síðan 1949,
flesta siðan bílainnflutningur
var gefinn frjáls 1961. Þá er
Caterpillar umboðið, og það er
mjög umfangsmikið. Þunga-
vinnuvélarnar eru sennilega
þekktastar, þær sjást víða við
mannvirkjagerð og t.d. voru
flestar vélarnar, sem notaðar
voru við Búrfellsvirkjun frá
Caterpillar. Báta- og skipavél-
ar Caterpillar eru einnig þekkt-
ar. Og Caterpillar rafstöðvar
hafa verið settar upp hér í
auknum mæli seinni árin.
Hekla h.f. hefur einnig umboð
fyrir John Deere, en frá þeim
verksmiðjum höfum við eink-
„Þekktast er líklega umboðið fyrir Volkswagen bílana.“ VW K70
nýr Volkswagen á íslandi.
um flutt inn skurðgröfusam-
stæður undanfarin ár. Eins og
ég sagði áðan, var dregið úr
innflutningi landbúnaðarvéla,
og var það þó föður mínum
ekki ósárt, því hann hafði allt-
af mikinn áhuga á landbúnaði
og framgangi hans. Á sínum
tíma keypti hann Þingeyrar,
sem eru enn í okkar eigu og
verða það. Þar bryddaði hann
upp á merkilegum nýjungum í
notkun landbúnaðarvéla, þar
var tekinn í notkun einn fyrsti
hjólatraktorinn í Húnavatns-
sýslu strax í lok stríðsins, og
þar voru fyrst kynnt ýmis tæki
eins og heybindivél t.d. Við
höfum þvi sterka tilhneigingu
til að sinna innflutningi land-
búnaðarvéla, þegar og ef að-
stæður skapast til að gera það
myndarlega. Af raftækjaum-
boðum vil ég svo nefna sem
dæmi Kenwood.
Og nýr Land-Rover fjórhjóladrifsbíll cr að koma, Range Rover,
frábrugðinn þeim klassíska.
MIKIL ÁHERZLA LÖGÐ Á
ÞJÓNUSTUNA.
FV: Nú eru þetta allnokkur
umboð. En þú sagðir áðan, að
vélagerðunum hefði verið
fækkað til að geta haldið uppi
viðunandi þjónustu, og deilda-
skiptingin bendir til hins sama.
IS: Já, það hefur alls staðar
reynzt tilgangslaust að selja
vélar án þjónustu, a.m.k. til
lengdar. Þjónustu á þessu sviði
er hins vegar dýr og þess vegna
er hún erfið hér á landi, þar
sem magnið er ekki um að
ræða. Til viðbótar hafa svo
verðbólguáhrif og verðlagshöft
mergsogið fyrirtækin af fjár-