Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 13
lákshafnar. Við gerum okkur
vonir um að þetta verði mynd-
arlegur rekstur. Og það ætti
ekki að verða vafningameira
að flytja fisk til Selfoss en til
staða við Faxaflóa.
Aðrar byggingarframkvæmd-
ir eru töluverðar, Sláturfélag
Suðurlands hefur verið að end-
byggja sláturhús sitt í sam-
ræmi við bre.yttar kröfur um
útbúnað slíkra húsa. í kjölfar-
ið mun stórgripaslátrun fara
fram allt árið. Þá er Kaupfél-
ag Árnesinga að hefja byggingu
stórs verkstæðishúss fyrir alla
viðgerðarþjónustu sína. Og
loks eru um 40 íbúðir í smíð-
um.
Hvað er af framkvæmdum
hreppsins að segja? Jú, hrepp-
urinn vinnur að venjulegum
framkvæmdum, en fréttnæm-
ast er e. t. v. að nú er verið að
leggja olíumöl á nokkrar götur.
Það er fyrsta olíumölin, sem
lögð er hér, en áður hefur ver-
ið lagt malbik á Austurveg og
hluta af Eyrarvegi í samvinnu
við ríkið, en það eru götur,
sem tengja leiðir hingað og héð-
an.
Eru framkvæmdir við nýtt
sjúkrahús hafnar? Nei, en það
er unnið að undirbúningi og
framkvæmdir eru að öllum lík-
indum á næsta leyti. Nýja
sjúkrahúsið verður mikil bygg-
ing fyrir allt Suðurland, sem
svo er kallað í daglegu tali,
og þar á að verða læknamið-
stöð og önnur tilheyrandi að-
staða, miðað við nútímakröfur.
Hvernig er búið í skólamál-
um? Fu.ll þröngt, og það verð-
ur nauðsynlegt áður en langt
um líðui' að bæta þar úr. Sér-
staklega eru þrengsli á gagn-
fræðastigi, en þar bætast all-
margir nemendur við frá ná-
grannasveitunum, sem fara
daglega á milli heimila og
skóla, margir all langar leiðir.
IVIinkarækt
20.000 íslenzk minkaskinn á
næsta ári - 25 milljónir í gjaldeyri
Sjö minkabú eru nú starf-
rækt hér á landi, og eitt er að
bætast við um. þessar mundir.
5 eru sunnan fjalla og 2 norðan
fjalla og þar er nýja búið einn-
ig. í þessum 7 búum, sem til
eru, eiga nærri 6.000 minkar
heimili. Frá beim munu koma
um 20-000 minkaskinn á næsta
ári, ef að líkum lætur.
Minkarnir eru af 6-8 tegund-
um, og meðalverð á skinnum
hefur undanfarið verið 12-1300
krónur, — sagði Ólafur Helga-
son í Blóm & Grænmeti, sem
er einn af eigendum minkabús-
ins í Mosfellssveit Verðið hef-
ur verið lágt um tíma, en það
var hæst um 2000 krónur á
Bandaríkjamarkaði. Við erum
að vona, að það fari nú aftur
hækkandi, en það kemur í Ijós
í vetur, hvert stefnir.
Flest minkabúin eru með um
1.000 læður. Stofnkostnaður við
minkabú af þeirri stærð er
minnst 12-14 milljónir króna
og rekstrarkostnaður 3-4 millj-
ónir á ári. Stofnkostnaður hér
er meiri en gerist og gengur
í minkabúskap, enda eru hús
vönduð og allur umbúnaður,
svo sem krafizt er, en einnig
er annar búnaður vandaður, t.d-
er yfirleitt sjálfbrynning og
sjálfvirk fóðurgjöf. Fullkominn
búnaður sparar hins vegar í
rekstrarkostnaði. Aðeins þrjá
menn þarf við rekstur 1.000
læðu bús, sem er vel búið, og
þótt læðunum yrði fjölgað um
helming, þyrfti einungis að
bæta einum manni við.
Mest öll fæða minkanna er
innlend, frá frystihúsum og
sláturhúsum, en dálítið er flutt
inn af korni. Nokkur samvinna
er þegar komin á milli minka-
búanna á Reykjavíkursvæðinu,
um fóðuröflun, og er ekki ólík-
legt að sú samvinna þróizt frek-
ar og nái til fleiri búa. En einn-
ig er starfandi landsfélag
þeirra, sem reka minkabú,
FV spurði Ólaf Helgason,
hvort unnt væri að súta eða
fullvinna á annan hátt minka-
skinn hérlendis. Hann taldi að
eins og nú stæðu sakir væru
á bví annmarkar, nema bá til
notkunar innanlands. Unnin
skinn væru víðast hátt toliuð,
og þess vegna væru þau yfir-
leitt unnin þar sem þau færu
á markað í formi fatnaðar og
annars
Minkaskinn eru seld á upp-
boðum, og íslenzku skinnin
verða seld í London nú fyrst
um sinn a.m.k. Einnig mun
standa til boða, að selja þau
á uppboðum í Leningrad, og er
ekki útilokað, að það verði not-
að að einhverju leyti.
Öll sólarmerki benda til þess,
að minkabúskapur hér á landi
geti dafnað, ef markaðsverð á
skinnum verður yfirleitt full-
nægjandi fyrir minkabúskap,
og getur það komið sér vel fyr-
ir ýmis byggðarlög og þjóðar-
búið. Það er t.d. táknrænt
hagræði, sem Grenvíkingar og
nágrannar þeirra hafa af
minkabúskapnum. Þeir losa sig
við úrgáng frá frystihúsinu og
frá stóru hænsnabúi á Sval-
barðsströnd, svo og frá slátur-
húsinu, — í minkabúið í stað
þess að henda honum Og gjald-
eyristekjur af sölu 20.000
minkaskinna á lægsta verði,
sem nú er um að ræða, ættu
að verða 25 milljónir á næsta
ári. Þetta er búsílag.
FV 9 1971
11