Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 63
skortir það. Framan af gekk
þó mjög illa að afla þess. Gunn-
ar, sonur minn, en á honum
hefur reksturinn mætt mest á
undanförnum árum, vakti
stundum heilar nætur á bryggj-
unum og tókst að herja út einn
og einn bíl af fiski, sennilega
fyrir vorkunnsemi. Smám sam-
an fórum við að fá föst viðskipti
við æ fleiri báta og núna eru
þeir orðnir 12 talsins. Ástæða til
þess að þeir sóttust eftir við-
skiptum við okkur er vafalaust
sú, að þeir kunna að meta lip-
urð og áreiðanleika með
greiðslur, eftir að þeir kynnt-
ust fyrirtækinu. Einnig veitum
við þeim ýmsa þjónustu, sem
sparar þeim mikinn tima og
peninga.“
„Hefur þér aldrei til hugar
komið að hefja útgerð að nýju
og afla hráefnisins með eigin
bátum?“
„Nei, það væri eins og að
fara að vekja upp gamlan
draug. Útgerð og frystihús-
rekstri tel ég rétt að halda að-
skildu, í það minnsta hvað okk-
ur áhrærir. Útgerðarmaðurinn
á að einbeita sér að útgerðinni
og frystihúseigandinn að sínu
fyrirtæki. Fari menn að deila
kröftum sínum á báðar þessar
greinar, líða báðar fyrir það.
Hins vegar höfum við talið
sjálfsagt að veita útgerðinni
ýmsa fyrirgreiðslu, og í þeim
efnum klífum við þrítugan
hamarinn, ef með þarf, enda
höfum við ekki misst einn ein-
asta bát frá okkur til þessa
Já, hrein verkaskipting held ég
að sé affarasælust. Mörg eru
þess dæmi, að þegar miklir afla-
menn hafa farið að taka þátt
í rekstri fiskvinnslustöðva, þá
hafa þeir hætt að fiska jafn
mikið og áður.“
„Hve fjölmennu starfsliði haf-
ið þið á að skipa, og er aldrei
skortur á vinnuafli?“
,,Á vetrarvertíðinni og yfir
sumartímann starfa hér 80
manns, en aðra hluta ársins fer
talan niður undir 50. Meðan
humarvertíðin stendur yfir er
oftast unnið frá kl. 8 til kl. 24.
Ég veit, að þetta er fullstrang-
ur vinnutími og dýrt að vinna
mikla yfirvinnu. Við hugleidd-
um að koma á vaktaskiptum,
til að ofgera ekki starfsliðinu,
en skortur á fólki hindraði
þau áform. Við látum heldur
DIESELVÉLAR
Sjóvélar: 128—550hö.
Ljósavéíar: 95—400 kw.
Enginn vélaframleiðandi býðurbetri né lengri ábyrgð:
2 ÁR EÐA 3,600 KLST.
ÚTGERÐÁRMENN
SKIPSTJÓRNARMENN
Leitið til okkar um frekari upplýsingar um
CUMMINS dieselvélarnar.
Einkaumboð á íslandi fyrir
CUMMINS INTERNATIONAL LTD.:
BIÖRN & HALLDOR HF.
Síðumúla 19 Rvík. Símar 36030 & 36930
Nýtízku vörumerkingar á
hverskonar framleiðsluvörur
UóruiiiErhinn hf
MELGERÐI 29 KÓPAVOGI tS 41772
Karl Jónsson — Karl M. Karlsson
FV 9 1971
61