Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 16

Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 16
Aðalstöðvar EBE. EBE Fjárfestmgafjármagnið freistar margra þjóða ÞaS sem stuðlaSi hvað mest að því að verðbólguklausan vai' sett inn var hvernig fór fyrir sænsku skipasmíðastöðinni Göteverken AP, sem er stærsta skipasmíðastöð Svíþjóðar. Á síðasta áratug gerði fyrirtækið marga smíðasamninga á föstu verði þar sem verðbóigan var ekki tekin nægilega með í reikninginn og afleiðingin varð sú að fyrirtækið var næstum farið á hausinn. Salen Shipping Co. tók þá stöðina yfir og hef- ur ásamt sænsku ríkisstjórn- inni lagt 45 milljónir dollara af nýju fjármagni í reksturinn. Þá hafa viðskiptavinir Göte- verken lofað að greiða alls 35 milljónir dollara umfram hið fastákveðna smíðaverð, til að tryggja að þeir fái skip sín af- hent. Bandaríkin hafa hingað til ekki verið hættulegur keppinautur fyrir japanskar og evrópskar skipasmíðastöðvar, en nú vilja þau fá sinn bita af kökunni og eru nú 19 olíuskip í smíðum þar í landi, miðað við tvö árið 1965. Þetta er að þakka lögum, sem sett voru ekki alls fyrir löngu og segja fyrir um að olíu megi ekki flytja milli bandarískra hafna nema með skipum smíðuðum í Bandaríkj- unum. ■Jr Spánverjar smíða stærst. Hvað stærð skipanna snertir vill svo undarlega til að þar eru ekki Japanir né Evrópu- menn fremstir í flokki, heldur Spánverjar. Spánverjar byggja nú stærstu olíuskip sem um getur eða 350 þúsund lestir og hefur fyrirtækið ASTANA pantanir á 5 slíkum skipum frá Gulf Oil Corp. Það eru aðeins 4 ár siðan spænskar skipasmíða- stöðvar fóru að smíða olíuskip svo nokkru næmi, er stjórn landsins jók stórlega lánafyrir- greiðslu til stöðvanna. Þetta gerði stjórnin vegna þess að hún gerði ráð fyrir stórauk- inni eftirspurn eftir olíuskip- um, er Súezskurðinum var lokað 1967. Þetta reyndist hár- rétt athugun, sem hefur reynzt Spánverjum mjög arðbær, því að þeir eru nú fjórðu í röðinni á eftir Japönum, Svíum og Frökkum í smíði olíuskipa. Þeir láta heldur ekki stærðina vaxa sér í augum því að nú standa yfir samningaviðræður við bandarískt fyrirtæki um smíði stöðvar, sem á að geta byggt allt að milljón lesta skip, og þannig slegið öll met. í Rómarsáttmálanum um Efnahagsbandalag Evrópu eru m.a. ákvæði um Fjárfestingar- banka Evrópu, sem aðildarþjóð- irnar stofnuðu á sínum tíma. Þessi banki byrjaði með 90 milljarða króna, en aðildarþjóð- irnar lögðu fram fjórðung þeirrar upphæðar á fyrsta ári bankans og gengu í ábyrgð fyr- ir lántökum á alþjóðlegum pen- ingamarkaði sem námu þrem fjórðu. í vor var þessi upphæð hækkuð í 135 milljarða króna. Fjármagn Fjárfestingarbank- ans mun að sjálfsögðu aukast enn við inngöngu fleiri landa í Efnahagsbandalagið, en þeim verður gert að leggja fram fé í hlutfalli við stofnþjóðirnar, og eiga þau að greiða fjórðung- inn á fyrstu þrem árum aðild- ar sinnar. Þarna er því um geysilega öfluga stofnun að ræða. sem út af fyrir sig freist- ar þeirra þjóða, sem ekki hafa nægilegt eigið fjármagn til margs konar meiriháttar fjár- festingar. Hlutverk Fjárfestingarbanka Evrópu er að lána til fjárfest- ingar, sem lýtur að efnahags- legri framþróun í þeim löndum, sem aðild eiga að EBE, en þar undir falla t.d. aðgerðir til end- urskipulagningar í atvinnu- rekstri eða til að koma á fót nýjum atvinnugreinum, svo og í byggðaþróun með tilliti til náttúruauðæva og vinnuafls m.a. Á síðustu 14 árum hafa þannig verið veitt lán til þró- unaraðgerða á Suður-ftalíu og til framkvæmda í samgöngu- málum, sem hafa átt að auð- velda samskipti aðildarþjóð- anna og tengja þau þannig nán- ari böndum. Fjárfestingarbankinn lánar ekki að fullu til viðkomandi framkvæmda eða aðgerða, og að meðaltali nema lán fians 23% heildarkostnaðar. Útlán hans 1970 námu um 32 millj- örðum króna. Síðan 1963 hefur starfað sem deild í Fjárfestingarbankanum, Þróunarsjóður Evrópu, en hlut- verk sjóðsins er að veita stuðn- ing þeim ríkjum. sem tengd eru EBE í gegn um hina svo- kölluðu þróunaraðstoð. Þar undir falla allmörg Af- ríkuríki, Tyrkland og Gri'kk- land, en Grikkland hefur þó ekki notið góðs af sjóðnum síð- an herforingjastjórnin tók við völdum. Þróunarsjóðurinn að- stoðar þessar þjóðir með löng- um lánum á lágum vöxtum. oft vaxtalausum framan af. í árslok 1970 hafði sjóðurinn til ráðstöfunar 18 milljarða króna, sem eru utan við f jármagn Fjár- festingarbankans. Eins og fyrr segir, er aðild að Fjárfestingarbanka Evrópu Europa Investment Bank — EIB) eitt af því sem freistar þeirra þjóða. sem nú sækja um aðild að EBE. M.a. hafa sprott- ið upp hugmyndir um það í Danmörku. að í gegn um aðild Dana að EBE gætu þannig skap- azt möguleikar til að byggja brú yfir Stórabelti og tengja Danmörku meginlandinu. 14 FV 9 1971
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.