Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 73
Kirkjan
Kristnisjóður tekur til starfa
íslenzku kirkjuna hefur lengi
skort f jármagn til að sinna ýms-
um sérverkefnum — verkefnum
sem eru utan við hið reglu-
bundna starf kirkjunnar. Að
vísu hefur hún haft nokkurt
fjármagn til slíkra verkefna, en
aðeins mjög takmarkað og seint
að vaxa. Með lögum um Kristni-
sjóð er að umtalsverðu leyti
bætt úr þörf kirkjunnar fyrir
fjármagn, sem nota má til sér-
stakra verkefna. Lög um
Kristnisjóð gengu í gildi 1. júlí
1970 og er yfirstandandi ár
fyrsta starfsár sjóðsins. Mun
sjóðurinn á þessu fyrsta starfs-
ári sínu veita styrki, lán og
greiða laun samtals að upphæð
tæpar 3,4 milljónir króna.
Samkvæmt lögum er stofnfé
Kristnisjóðs Kirkjujarðasjóð-
ur sem verður lagður niður og
rennur í Kristnisjóð. Þá mun
sjóðurinn fá andvirði þeirra
kirkjujarða, annarra en prests-
setursjarða, sem seldar verða nú
eftir gildistöku laganna um
Kristnisjóð. Loks verður Presta-
kallasjóður lagður niður og lát-
inn renna í Kristnisjóð sem
stofnfé hans.
Tekjur sjóðsins, eða ráðstöf-
unarfé hans, verða arður af
stofnfé, árlegt framlag úr ríkis-
sjóði, er samsvari hámarkslaun-
um presta í þeim prestaköllum,
sem lögð verða niður sam-
kvæmt ákvæðum um skipun
prestakalla og prófastsdæma.
Þau lög eru nátengd lögunum
um Kristnisjóð og fengu gildi
samtímis lögunum um sjóðinn.
Þá mun sjóðurinn fá tekjur,
sem samsvara iaunum, þeim,
sem sparast á hverjum tíma,
þegar prestakall er prestslaust
og því ekki greidd laun vegna
þess prestakalls, enda skal upp-
hæðin miðuð við hámarkslaun
presta. Þá er vænst tekna af
frjálsum framlögum einstakl-
inga, safnaða og fyrirtækja.
Hlutverk Kristnisjóðsins er í
rauninni margþætt. í lögum er
gert ráð fyrir að hann launi
aðstoðarþjónustu presta og guð-
fræðinga í víðlendum og fjöl-
mennum prestaköllum, þegar
þess er talin þörf. Þá launar
hann starfsmenn, sem ráðnir
eru til sérverkefna í þágu þjóð-
kirkjunnar. Einnig styrkir hann
söfnuði, sem ráða starfsmenn
til starfa á sínum vegum á sviði
æskulýðsmála, líknarmála eða
að öðjumi mikilvægum verkefn-
um í lögunum er sagt að sjóð-
urinn skuli veita fátækum söfn-
uðum starfsskilyrði, einkum á
þeim stöðum, þar sem prestaköll
hafa verið sameinuð og kirkju-
leg þjónusta er sérstökum erf-
iðleikum háð. Sjóðurinn styrk-
Biskupinn yfir Islandi, herra
Sigurbjöm Einarsson.
ir guðfræðinga til framhalds-
náms, alls kyns útgáfustarfsemi
í þágu. kirkjunnar, félög og
stofnanir, sem vinna að kirkju-
legum málefnum og þannig
mætti lengi telja.
Kirkjuráð hinnar íslenzku
þjóðkirkju hefur á hendi um-
sjá og stjórn Kristnisjóðs og
ber ábyrgð fyrir Kirkjuþingi á
stjórn hans. Kirkjuráðið semur
árlega fjárhagsáætlun fyrir
sjóðinn og skal hún samþykkt
af dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, en reikningsleg end-
urskoðun er framkvæmd af
Ríkisendurskoðun.
Prestakallasjóður hefur þeg-
ar runnið inn í Kristnisjóð. Höf-
uðstóll hans er rúmar 6 millj.
kr. Hins vegar er ekki lokið
uppgjöri á Kirkjujarðasjóði, en
höfuðstóll hans mun vera um
1.5 millj. kr. Af þessum sökum
hefur Kristnisjóður aðeins vaxt-
artekjur af Prestakallasjóði á
yfirstandandi starfsári, en þær
tekjur eru áætlaðar 600 þús.
krónur. Aðrar tekjur sjóðsins á
árinu eru framlag ríkissjóðs
tæplega 3.4 millj króna.
Hæsta framlag Kristnisjóðs
samkvæmt fjárhagsáætlun 1971
er til framkvæmda í Skálholti
eða 900 þús. krónur. Þetta er
fé, er til uppbyggingar hins fyr-
irhugaðað lýðháskóla á staðn-
um- Þá renna úr sjóðnum 800
þús. krónur til framkvæmda og
reksturs sumarbúða þjóðkirkj-
unnar í Skálholti, við Vest-
mannsvatn og á Eiðum. Veittar
eru 700 þús. krónur til útgáfu-
starfsemi, og eru í þessari upp-
hæð innifalin áætluð laun til
blaðafulltrúa kirkjunnar, ef
hann verður ráðinn Kirkjan
rekur húsmæðraskóla að Löngu-
mýri í Skagafirði og eru honum
ætlaðar 650 þús. kr. á árinu.
Af öðrum útgjöldum sjóðsins
má nefna 250 þús. kr. til að
launa sjúkrahúsprest, ef á þarf
að halda og fjölmarga smærri
og stærri styrki til einstaklinga
og félaga, sem starfa í þágu
kirkjunnar og til almennings-
heilla-
Það er von kirkjunnar
manna, að Kristnisjóður muni,
þegar frá líður, stuðla að auk-
inni fjölbreyttni í starfi kirkj-
unnar, enda er sjóðurinn bein-
línis stofnaður með það fyrir
augum, svo og að gefa kirkj-
unni frjálsari hendur til at-
hafna, en hún hefur haft fram
til þessa.
FV 9 1971
71