Frjáls verslun - 01.11.1973, Síða 13
Könnun á högum
heildverzlunar 1973
Starfsmannafundir tíðkast dvíða þrátt fyrir
tal um atvinnulýðræði
Nýlega gerSi Félag ísl. stór-
kaupmanna könnun á högum
heildverzlunar árið 1973 og
voru niðurstöður hennar kunn-
gerðar fyrir nokkru. Þær eru
byggðar á svörum frá 62 aðil-
inn að félagsskap stórkaup-
manna, en það mun vera um
30% af heildartölu þeirra.
I þessari könnun kemur
meðal annars fram, að hvað
aldur fyrirtækjanna snertir eru
23 þeirra stofnuð á árabilinu
1900-1939, 14 á árunum 1940-
1949 og 23 á tveimur áratug-
unum síðustu rúmum, þ. e. a. s.
á árunum 1950 til dagsins í
dag.
Um stærð fyrirtækja með til-
liti til starfsmannafjölda hef-
ur eftirfarandi komið fram
sem hundraðshluti af 62:
1973 1969
1- 5 starfsmenn 43 % 47 %
1-10 — 60% 47%
1-15 — 76% 85%
Að því er virðist hafa fyrir-
tækin stækkað á tímabilinu
1969-1973, enda sýna tölur um
þróun í starfsmannafjölda, að
um nokkra aukningu var að
ræða á þessu tímabili.
STARFSALDUR
Þá var spurt um meðal-
starfsaldur starfsfólks hjá þess-
um fyrirtækjum og var al-
gengast að hann væri 5-7 ár.
Margir misskildu þessa spurn-
ingu og héldu, að átt væri við
meðalaldur starfsfólks og
voru svörin frá 45-60
ára. Starfsaldursviðurkenning-
ar tíðkast í 20 fyrirtækjum af
62. Hér er átt við, að starfs-
fólkið sé heiðrað á 5, 10 eða
20 ára starfsaldursafmæli með
málmmerkjum, minjagripum,
ferðalögum eða öðrum hætti.
Fyrirspurnir um aðra þætti
starfsmannahalds leiddu m. a.
í ljós, að trúnaðarlæknar voru
aðeins hjá 5 fyrirtækjum, en
með trúnaðarlækni er átt við
lækni, sem leitað er til, þegar
veikindatilfelli teljast óeðlileg
eða starfsfólk þai’fnast bólu-
setningar. Því er spáð, að slík
ákvæði um árlega læknisskoð-
un komi inn í samninga verzi-
unarfólks innan tíðar, en í
kjarasamninga margra hópa
iðnaðarmanna hafa verið sett
ákvæði um árlega læknisskoð-
un, sem trúnaðarlæknir fyrir-
tækis annast.
Hjá 26 fyrirtækjum af hin-
um 62 eru reglulegir fundir
haldnir með yfirmönnum, þar
af hjá 8 viklulega, 6 mánaðar-
lega og 12 oftar en mánaðar-
lega, en sjaldnar en vikulega.
Reglulegir fundir með starfs-
fólki eru hjá 10 fyrirtækjum,
þar af hjá 5 tvisvar til fjórum
sinnum á ári og hjá þremur um
það bil mánaðarlega.
í athugasemdum frá FÍS,
sem fylgja niðurstöðum könn-
unarinnar er meðal annars
sagt, að spurning um fundi með
starfsfólki hefði verið settfram
vegna alls tals um atvinnulýð-
ræði, þ. e. a. s. að veita starfs-
fólki aukinn hlut i stjórn fyr-
irtækis og forsendur þess, að
slíkt sé hægt, er að haldnir séu
fundir með því til þess að gera
sér grein fyrir stöðu fyrirtæk-
isins og ræða málefni þess.
Skýringin á þessu lága hlut-
falli er talin geta falizt í því,
hve fyrirtækin eru mörg lítil
og menn telji, að i fimm manna
fyrirtæki þurfi ekki að halda
fundi með starfsfólki, en hins
vegar bendir reynslan til þess,
að menn séu of önnum kafnir
í hinum daglega rekstri til þess
að næði gefist til að ræða mál-
in, sem líta til lengri tíma, og
hin flóknari vandamál.
MENNTUN STARFSLIÐS
Varðandi menntun forstjóra
og framkvæmdastjóra reynd-
ust 17 vera með Verzlunar-
skólapróf, 8 íslenzka eða er-
lenda viðskiptaíræðimenntun,
6 Samvinnuskólamenntun, 4
höfðu numið tæknifræði, 4
voru með stúdentspróf, 2 lyfja-
fræðingar, 2 lögíræðingar, 2
verkfræðingar og 4 höfðu
ýmsa menntun.
Framkvæmdastjórar voru 6
með V erzlunarskólapróf, 4
viðskiptafræðingar, 3 höfðu
Samvinnuskólamenntun, 2
stúdentspróf og 2 ýmsa mennt-
un.
Upplýsingar um menntun
annars starfsfólks komu um
753 einstaklinga. Þar af voru
um 11% með Verzlunarskóla-
próf, 9,5% með iðnskólapróf,
5,5% gagnfræðingar, 4,5%
höfðu stúdentspróf, 2,7% Sam-
vinnuskólapróf, 2,3% tækni-
fræðipróf, 1,2% háskólapróf og
1,2% ýmsa menntun.
Um húsnæðismál þessara
fyrirtækja er það að segja, að
29 voru í eigin húsnæði, 28 í
leiguhúsnæði og þar af 14 í
húsnæði eldra en 15 ára. Tvö
voru í eigin húsnæði og leigu-
húsnæði.
Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar voru 1500
manns starfandi í heildverzlun
árið 1969, en 1700 ári seinna.
Aukning í starfsmannafjölda
frá 1970-1973 er 18% og á
sama tíma hefur veltuaukning
í krónutölu orðið 71,5%.
Velta á hvern starfsmann
fyrir úrtakið í heild var: 5,3
millj. árið 1971, 6,3 millj. 1972
og á þessu ári er hún áætluð
7,7 millj.
FV 11 1973
13