Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 52
Sýnishom af
hinum mis-
munandi um
húðum Mel-
roses
Hraðvirkar
vélar sjá nú
um að pakka
tei í tepokana
vinsælu.
brezku krúnunnar jafnan
heiðrað fyrirtækið með sama
hætti. Sölumenn Melroses fóru
í reglulegar söluferðir um
Skotland og Andrew var tví-
mælalaust orðinn mesti te-
kaupmaður í Skotlandi, þegar
hann lézt 1855, um líkt leyti
og innflutningur á tei frá
Indlandi var að hefjast og
sendingar þaðan voru færðar
inn á birgðaskýrslur fyrir
tækis hans ásamt með tei
frá Kína. Næstu áratugirnir
í sögu Melroses voru fremur
viðburðarlitlir. Verzlunin var í
föstum skorðum. Árið 1890
varð þó breyting á, sem líkja
mátti að vissu leyti við af-
nám einokunarverzlunar Aust-
ur-Indlandsfélagsins nærri 60
árum áður.
SELT UNDIR
EIGIN MERKI.
Fram til 1890 hafði teheild-
salinn selt teið ópakkað til
kaupmannsins, sem seldi við-
skiptavinunum eftir vigt.
Margir kaupmahna blönduðu
teið líka sjálfir eftir eigin
formúlum. Nú var hins vegar
sá háttur upp tekinn, að heild-
salinn sá um blönduna og
seldi kaupmanninum teið í
litlum pakkningum með sínu
eigin vörumerki á. Ákveðdð
var, að fyrirtækið seldi vöru
sína undir merkinu ,,Melrose‘s
Tea“ og undir því hefur hún
farið sigurför víða um lönd.
Umboðsaðili 'hér iá landi er O.
Johnson og Kaaber og er
Melroses mest selda tetegund
á Islandi.
Segja má að róman-
tíkin í tesölumálum hafi far-
ið fyrir bí þegar byrjað var að
selja tepokana en því er ekki
aði leyna að í þeim fær neyt-
andinn betri og öruggari vöru
en ella væri.
Árið 1921 flutti Melroses-fyr-
irtækið í stór vöruhús í Leith,
rétt frá bryggjunum, þar sem
teskipin lögðust að. Þar var
fyrir komið fullkomnum vél-
um á þeirra tíma mælikvarða,
til að blanda te og pakka og
dreifingarkerfi fyrirtækisins
víkkaði mikið á tuttugu ára
bili milli styrjaldanna. Verk-
smiðjurnar voru stækkaðar í
seinni heimsstyrjöldinni og
þegar forstjórar Melroses
höfðu lokið herþjónustu var
aukið verulega við húsnæði
með þvi að reisa nýbygging-
ar á lóðum, þar sem gamlar
og hrörlegar skemmur höfðu
áður staðið. Nýjar og hrað-
virkar vélar voru teknar í
notkun og kröfur um hrein-
læti og heilbrigði starfs-
manna voru gerðar strangari.
Gestir eru alltaf velkomnir í
húsakynni Melroses og árlega
komu þangað hundruð manna
til að skoða sig um og fá um
leið að kynnast blöndun tes,
pökkun og drykkju. Flestir
hafa orð á því, að hreinlæti sé
með afbrigðum gott og að
vinnuaðstæður allar virðist
vera til fyrirmyndar.
SJÁVARFRÉTTIR
BLAÐ SJÁVAROTVEGSINS
Áskriftar- og auglýsingasímar: 82300 - 82302
52
FV 2 1975