Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 53
III [VI á íslandi
Tölvan látin gefa ráð um tilhögun
fiskveiða?
IBIII kannar markað fyrir þjónustu sína í þágu vísinda og atvinnuveganna
Það var upp úr 1962, sem IBM á íslandi hóf að kynna tölvutækni fyrir stjórnendur fyrirtækja og
stofnana á íslandi. í fjölda mörgum þáttum viðskipta og daglegrar stjórnsýslu heyrir það nú
til venjubundinna athafna að láta flóknar skýrsluvélar eða tölvur vinna á augabragði verk, sem
áður voru mjög seinunnin og illmöguleg. Við þessa miklu breytingu, sem kallast mætti bylting,
hefur IBM á fslandi gegnt forustu hlutverki.
Nokkrir starfsmenn IBM á fundi með Óttó A Michelsen forstjóra,
lengst t.h.
Við spurðum Ottó A. Michel-
sen, forstjóra IBM á íslandi,
hver væri helzti vandinn við
rekstur af þessu tagi.
— Grundvöllurinn fyrir
rekstri fyrirtækisins er fyrst
og fremst fólginn í gæðum
þeirrar þjónustu, sem það veit-
ir. Til þess að fullnægja þeirri
þörf þurfum við að hafa starfs-
fólk með góða sérfræðiþekk-
ingu á flestum sviðum tölvu-
þjónustu: svo sem viðhaldi á
vélum og stjórnkerfum,
kennslu viðskiptavina, skipu-
lagningu verkefna fyrir tölvu-
úrvinnslu o. fl.
Menntun starfsfólks er því
stór liður í starfi þess og fer
hún að mestu leyti fram er-
lendis. Kostnaður við hana er
hins vegar mjög mikill. Sem
litið dæmi m‘á nefna, að tækni-
menntun viðgerðarmanna, sem
eru 7 talsins og endurþjálfun
þeirra kostar milljónir króna
árlega fyrir utan skóla'hald
fyrir sta: fsmenn viðskiptavin-
anna.
Mikil áhcrzla lögð á
menntun og þjálfun.
Tæknimennirnir verða reglu-
lega að afla sér viðbótarþekk-
ingar erlendis og eru þeir
aldrei allir heima nema á jói-
um og páskum. Námskeiðin
fyrir kerfisfræðiinga og aðra
starfsmenn fyrirtækja, sem
viðskipti hafa við IBM, eru
misjafnlega löng allt frá
þremur dögum upp í fjórar
vikur.
— Hverjar eru helztu ástæð-
ur fyrir velgengni IBM á Is-
landi?
— Kjörorð IBM hefur á-
vallt verið að veita viðskipta-
vinum sínum þá fullkomnustu
þjónustu, sem völ er á. Þess-
vegna leggjum við mjög mikla
áherzlu á að hafa ávallt á að
skipa mjög vel menntuðu
starfsfólki, sem gjörþekkir
vandamál og þarfir viðskipta-
vina okkar og getur brugðið
skjótt við, ef þörf er aðstoðar
á einhverju sviði.
Auk þess njótum við góðs af
ótal mörgum alþjóðlegum mið-
stöðvum, þar sem safnað er
saman upplýsingum og sér-
fræðiþekkingu á ýmsum svið-
um tölvunotkunar og getum
við sótt þangað upplýsingar og
sérfræðiaðstoð, þegar þörf er
á. Síðast en ekki sízt ber þó
að nefna að við bjóðum upp á
mjög fjölbreytt úrval af tölv-
um og öðrum tækjum til
gagnavinnslu. Við getum því á-
vallt boðið viðskiptavinum
okkar þau tæki, sem bezt
'henta fyrir þau verkefni, sem
leysa þarf hverju sinni, og
reynsla viðskiptavina okkar
hefur sýnt, að gæði þessara
tækja standa sízt að baki
þjónustu okkar.
Verða ekki sakaðir
um einok.un.
— Fleiri tölvuframleiðendur
en IBM kynna nú og selja vörur
sínar og þjónustu á markaði
hérlendis. Það var þess vegna,
sem við spurðum Ottó, hverj-
um augum hann liti þá breyt-
ingu.
— Sem betur fer, verðum
við áþreifanlega varir við sam-
keppni, sagði Ottó. Ég segi
FV 2 1975
53