Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 58
hefja framleiðslu á slíkum köss-
um, en þeir hafa til þessa verið
keyptir erlendis.
Margvíslegur plasthúðaður
dúkur er notaður við framleið-
slu á fatnaði, svo sem vinnu-
vettlingum, svuntum til notkun-
ar í frystihúsum, sloppum, sjó-
stökkum, veiðifötum, regnfatn-
aði og fleiru. Þá er slíkur dúkur
notaður í tjaldbotna og margt
annað, sem þarf að halda vatni.
Trefjaplast er gert úr plast-
efnum, þó að framleiðslan sé
ólík. Úr því hafa verið fram-
leiddir bátar hér á landi og
margvísleg ker og ílát. Þá hafa
verið framleiddar hér plötur,
bæði sléttar og með bylgjum,
sem notaðar eru í stað vegg eða
loftplatna, þar sem birta þarf
að berast í gegn. Miklir mögu-
leikar eru á fjölbreytni í slíkri
framleiðslu.
MIKIL FJÖLBREYTNI
Eins og hér hefur verið rakið
í mjög fáum orðum, er plast-
framleiðsla mjög fjölbreytt.
Sumir hafa óttast um framtíð
hennar, eftir að olíukreppan
kom til skjalanna. Ekki virðist
ástæða til þess, þar sem nú er
nóg af hráefnum til, þó að þau
kosti helmingi meira en fyrr.
Þá er rétt að hafa í huga að
enn er langt þangað til olía í
heiminum gengur til þurrðar og
einnig er hægt að vinna plast-
hráefni úr ýmsu öðruin grunn-
efnum en olíu.
Orðið ,,plast“ er komið í
íslensku úr ensku, en þangað er
það komið úr grísku, dregið af
orðinu „plastikos" sem þýðir
vöxtur, þróun eða mótun. Plast-
efni eru unnin úr margskonar
efnum, en mörg þeirra koma úr
aukaefnum úr olíu. Framleiðsla
úr plasti fer fram með margvís-
legum hætti. Ein aðferðin er að
pressa plötur eða þynnur í til-
tekin form, önnur er að blása
efnin upp með gufuþrýstingi og
kæla þau aftur niður í tiltekn-
um formum. Þriðja aðferðin er
að draga þynnur út úr hita-
geymum, svo sem poka þynnur
og þræði og loks er innspýting
í mót, undir þrýstingi. Allar
þessar aðferðir eru til hér á
landi.
FJO'LHÆFASTA
EINANGRUNAREFNIÐ ER:
PÓLÝÚRETHAN
JAFNT FYRIR:
Frystihús og kæliklefa.
tAt Heitavatnslagnir.
Byggingarpanela.
Ar Einangrunarplötur.
★ Lambdagildi 0,018 — 0,025
— hið lægasta fdanlega —
tAt Þolir 100° c að staðaldri
og allt að 230 0 c
í skamman tima.
VERZLUM EINNIG MEÐ ÚRVALS VÖRUR í:
Plaströrum, Plastfittings — Plastlími —
Jdrnrörum — Jdrnfittings o. fl.
SIMI 52042 P. BOX 239 HAFNARFIRÐI
58
FV 2 1975