Frjáls verslun - 01.08.1975, Blaðsíða 42
Sauðárkrókur:
Enginn vinnufær maður
á atvinnuleysisskrá
Allar götur bæjarins malbikaðar á næstu 10 árum.
Rætt við Þóri Hilmarsson, bæjarstjóra
— Á Sauðárkróki hafa allir nóg að gera og það verður lil þess að fólk kann vel við sig og vill
setjast að hér. Þetta hefur orsakað verulegan vöxt í bænum, sem væri enn hraðari ef skortur
á húsnæði kæmi ekki til. Hér er líka nægilegvinna fyrir alla. Börnin vinna í skólagörðunum,
unglingarnir mæta í svokallaða unglingavinnu og hér er enginn vinnufær maður á atvinnu-
leysisskrá.
Þetta sagði Þórir Hilmars-
son, bæjarstjóri á Sauðárkróki,
en hann hefur gegnt því em-
bætti um eins árs skeið. Á
staðnum búa um 1800 íbúar,
sem hafa sett merki uppgangs
á staðinn. Byggingafram-
kvæmdir eru miklar og mörg
fyrirtæki í vexti. Þar má t. d.
nefna Steypustöðina, Loðskinn
og Plastverksmiðjuna svo eitt-
hvað sé nefnt. Heilbrigðismál
eru i góðu lagi á Sauðárkróki,
íbúðarhús
í smíðum
á Sauðár-
króki.
Að neðan:
Þórir bæjar-
stjóri (fjær)
ásamt Ingv-
ari Jóns-
syni, bygg-
ingafulltrúa
í skoðunar-
ferð.
en þar eru 3 læknar starfandi
og tveir tannlæknar. Ágætt
sjúkrahús er á staðnum cg
einnig er vel búið að öldruð-
um. Um félagslega aðstöðu er
annars það helst að segja að
íþróttamannvirki eru góð, en
hins vegar vantar góðan stað
til samkomuhalds. Frjáls
verslun ræddi nýlega við Þóri
og bað hann um að gera
nokkra grein fyrir því sem
ihelst væri á döfinni á staðn-
Þórir: — Það má segja að
hafnarframkvæmdirnar sem
nú standa yfir á Sauðárkróki
séu umfangsmesta verkefnið
42
FV 8 1975