Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 11

Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 11
Problems of Communism Book Reviews Hedley Bull Colin S. Gray F\ Stephen Larrabea Tama A. Jacques Stephen B. Young CP Checklist Richard F. Staar USSR AND NORTHERN EUROPE William J. Taylor. Jr.. and John R. Fairlamb Catalan Challenge Eusebio Muiai teon Cuba in the 1980's Áhugasamir lestrarhestar í sovéska sendiráðinu YFIRMAÐUR Menningar- stofnunar Bandaríkjanna hér á landi, Tom Martin, hefur sýnt starfsbræðrum sínum í sovézka sendiráðinu mikla umhyggju. Fyrir hans tilstuðlan hafa sovézkir dimplómatar fengið tæki- færi til að sjá veröldina í nýju Ijósi og eru þeir sagðir gleypa í sig ýmsa fróðleiks- mola, sem forstöðumaður menningarstofnunarinnar víkur að þeim. Berast þeim ýmis bandarísk stjórnmálarit reglulega og er þar jafnan efst í bunkanum ritið Prob- lems of Communlsm, sem fjallar ítarlega um ástandið í kommúnistaríkjunum og áhrif kommúnista í öðrum löndum, svo sem á (slandi. FLUGtEIDW ' 1 j C u verða í húsnæði Samvinnu- trygginga og Útsýn í húsa- kynnum Bókvals. Heyrzt hefur að Útsýn hafi ráðið Kolbein Sigurbjörnsson til að veita starfseml sinni á Akureyri forstöðu, en Kol- beinn er mjög reyndur í ferðamálastarfsemi, var áð- ur starfsmaður söluskrif- stofu Flugleiöa nyrðra og er nú hjá Ferðaskrifstofu Ak- ureyrar. Ásdís Árnadóttir, sem verið hefur aðstoöar- hótelstjóri á Hótel KEA, mun væntanlega verða starfs- maður hinnar nýju skrifstofu Samvinnuferða. Fyrirsjáan- leg er hörð samkeppni ferðaskrifstofanna á Akur- eyri ekki sízt í sambandi við innanlandsferðir, ef Flug- leiðir afhenda þessum nýju aðilum farseðla til útgáfu og sölu. Skuldasöfnun í Amsterdam- flugi Iscargo KRISTINN FINNBOGASON ber sig vel aö vanda þótt á móti blási hjá Iscargo. Sala á Electra-vél félagsins hefur staðið fyrir dyrum og hefur Kristinn í hyggju að fá Boe- ing-þotu í staðinn til Amst- erdam-flugs félagsins með vörur og farþega. Þykir þetta mikill stórhugur í Ijósi þess að skuldir Iscargo vegna Amsterdam-flugs með leiguvélum hollenzka flugfélagsins Transavia munu nema 7—11 milljón- um króna. Ragnhildur varafor- maöur? EKKI er ólíklegt að fulltrúar á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins fái úr mörgu að velja, þegar kemur að kjöri varaformanns flokksins í stað Gunnars Thoroddsen. Friðrik Sophusson, alþing- ismaður er í kjöri, enn frem- ur Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri og búizt er við framboði Davíðs Sch. Thor- steinssonar, formanns Fé- lags ísl. iðnrekenda sem myndi örugglega njóta mik- ils fylgis fulltrúa í hinum frjálsa atvinnurekstri. En fleiri koma til greina. Vegna umræðunnar um stööu kvenna í stjórnmálastarfinu beinast augu æ fleiri að Ragnhildi Helgadóttur. Burtséð frá kvennapólitík- inni þykir Ragnhildur hafa óumdeilanlega kosti til að takast á hendur slíkt ábyrgðarstarf sakir mikillar þekkingar á flokksstarfinu og langrar reynslu á því sviði og ekki síður vegna heilla- drjúgra starfa á þingi og i öðrum trúnaðarstörfum, sem henni hafa verið falin. íslenzkir samtíðar- menn í leikriti Davíðs SJÓNVARPIÐ mun sýna nýtt leikrit eftir Davíð Odds- son um jólaleytið. Hefur það hlotið nafnið Kusk á hvít- flibbann og fjallar um ungan embættismann sem flækist fyrir röð tilviljana í sakamál, sem verður mikið uppslátt- arefni hasarblaðamanna. Kunnugir segja, að leikritið lýsi vel hlutskipti fórnar- lamba í hliðstæðum málum, serp menn kannast við úr veruleikanum og þurfi ekki að líta mjög langt aftur í tím- ann. Upplognar sakargiftir, gæzkuvarðhaldið, risafyrir- sagnir í blöðum dag eftir dag, niðurbrotnar fjölskyld- ur. Semsagt þverskurður á varnarleysi einstaklingsins í hinu rómaða réttarríki rann- sóknarlögreglu og síð- degispressu. Boðskapur- inn, sem verkið flytur mun í stuttu máli vera þessi: Opin- berir starfsmenn: Bjóðið aldrei ókunnugum í partí á skrifstofunni.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.