Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 12
Tillaga Sigurðar Helgasonar árið 1971:
Algjör sameining
ftugfélaganna
— eða náin
samvinna og aukin
hagkvæmni
í rekstri
Sameining flugfélaganna tveggja,
Flugfélags íslands og Loftleiða hefur
verið talsvert til umræðu hér á síðum
blaósins undanfarna mánuði. Ber þar
hæst greinar Helgu Ingólfsdóttur um
sögulegt baksviö þessarar sameiningar
og það starf sem unnið var og sem
leiddi til stofnunar nýs íslensks flug-
félags, Flugleiða.
Þaö hefur varla farið framhjá neinum
að sameining þessara tveggja fyrir-
tækja gekk ekki umbrotalaust fyrir sig,
enda miklir hagsmunir í veði fyrir marga
aðila.
Til að fylla enn betur upp í þá
mynd sem Helga Ingólfsdóttir dró
af sögulegum aðdraganda sam-
einingar þessara tveggja fyrir-
tækja, leitaði Frjáls verslun til
Sigurðar Helgasonar forstjóra
Flugleiða og kemur fram í viðtali
við hann að alvarlegar samninga-
viðræður um stofnun nýs flugfé-
lags með sameiningu Flugfélags
íslands og Loftleiða áttu sér stað
árið 1971. Þær viðræður báru hins
vegar ekki tilætlaðan árangur,
enda var um þær nokkur ágrein-
ingur í stjórn Loftleiða. Við spurð-
um því Sigurð Helgason hvort það
sé rétt að ákveðinn hluti Loft-
leiðamanna hafi aldrei gengið
heilshugar til sameiningar flugfé-
laganna og hvort að djúpstæður
ágreiningur hafi verið innan Loft-
leiðaarms Flugleiða jafnvel allt
fram á þennan dag.
Sigurður: ,,Ég vil ekki taka
undir það að ágreiningur, hvað þá
djúpstæður, sé innan Flugleiða í
dag. Þó má e.t.v. segja að enn eimi
af ágreiningi, sem reis innan
stjórnar Loftleiða talsvert áður en
nokkuð var farið að ræða alvar-
lega um sameiningu eða samstarf
Loftleiða og Flugfélags íslands.
Þessi ágreiningur varð nokkuð
djúpstæður og varð út af fluginu til
Skandinaviu og Bretlands og
hugsanlegri samvinnu við Flugfé-
lag Islands. Sannleikurinn er sá að
sumir stjórnarmanna Loftleiða og
þáverandi framkvæmdastjóri vildu
leggja út í stórfellda samkeppni í
Skandinaviu- og Bretlandsflugi,
ekki aðeins við Flugfélagiö heldur
einnig SAS með flugi til Banda-
ríkjanna á sömu fargjöldum. Þessi
samkeppni var við það að ríða
Loftleiðum að fullu. Þessir sömu
menn sýndu tilmælum um aukið
samstarf eða sameiningu við
Flugfélagið lítinn áhuga í fyrstu.
— Þannig að hugmyndir hafa
verið um sameiningu flugfélag-
anna innan stjórnar Loftleiða áður
en frumkvæði ríkisins kom í
október1972?
Sigurður: „Mönnum fór að
verða það stöðugt Ijósara að sam-
eining eða samstarf beggja félag-
anna hlyti að vera óumflýjanleg til
12