Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 23
LÖG SEM HEIMILA
800 MEGAWATTA
AUKNINGU í VATNSAFLSVIRKJUN
Alþingi samþykkti í vor iög sem heimila aukningu á
uppsprettuafli vatnsaflstöðva um 800 MW.
(Stjórnarfrumvarp um raforkuver.)
I setningarræðu á Orkuþingi kom fram hjá Hjörleifi
Guttormssyni að nú væri uppsett afl vatnsaflstöðva
um 542 MW. 140 MW munu bætast við með tveimur
nýjum aflvélum í Hrauneyjarfossvirkjun. Þá er auk
þess til heimild fyrir 50 MW í jarðvarmavirkjunum og
öðrum 50 MW í varaaflstöðvum.
Við þessar nýju vatnsaflsvirkjanir og fyrirhugaðar
veituframkvæmdir á Þjórsár- og Tungnársvæðinu
mun orkuvinnslugeta landskerfisins vaxa um 4000
GWh, úr röskum 3000 GWh í 7000 GWh á ári.
Eru gífurlegir iðnaðarmöguleikar
tengdir virkjunum?
Að sjálfsögðu eru iðnaðarmöguleikar tengdir virkj-
unum en þá er fyrst og fremst rætt um stóriðju. Það
kom hins vegar fram í erindi Björns Kristinssonar
verkfræðings á Orkuþingi að annars konar iðnaðar-
möguleikar eru fólgnir, eða gætu verið fólgnir í virkj-
unum á næsta áratug. Þar átti Björn við framleiöslu
íslenskra aðila og þá iðnfyrirtækja á tækjum fyrir
vatnsaflsvirkjanir og tækjum til orkunýtingar. Björn
Kristinsson ræddi um þá möguleika sem iðnfyrir-
tækjum opnuðust ef rétt væri á málunum haldið.
Hann benti á að nýsamþykkt lög um raforkuver að
verðmæti 4500 milljónir nýkróna þýddu að opinber
innkaup á tækjum til þeirra myndu nema sem svarar
820 milljónum nýkróna. Þar væri um að ræða hverfla
fyrir 140 milljónir, rafala fyrir 140 mkr, spenna fyrir 30
mkr, stjórnbúnað fyrir 25 mkr, rofabúnað, strengi og
tengibúnað fyrir 95 mkr, útivirki fyrir 70 mkr, ýmis kerfi •
og hjálparbúnað fyrir 95 mkr, uppsetningu sem kost-
aði um 140 mkr og hönnunarvinnu sem áætla mætti á
85 mkr. Þá áætlar hann að aðrar 820 milljónir nýkróna
færu til opinberra innkaupa á orkunýtingarbúnaði án
þess að sundurliða það frekar.
Björn benti á í erindi sínu að margt af þessum
tækjum væri hægt að framleiða hér innanlands, sumt
hefði verið framleitt hér áður og studdi það rökum oy
dæmum að eðlilegt væri að gera því skóna að slík
framleiðsla gæti hleypt verulegu lífi í iðnaðarupp-
bygginguna. (verðlag í desember 1980.)
Mikil tækniþekking til staðar
í landinu
(erindi sínu nefndi Björn Kristinsson verkfræðingur
að í landinu væri nú til staðar tækniþekking og
mannafli til að hanna vatnsaflsvirkjanir til fullnustu
fyrir útboð, ennfremurtil þess að sérhanna allan þann
búnað sem til greina kemur að smíða eða setja saman
hérlendis.
Hann gat þess einnig að í landinu væri til staðar
verkþekking og mannafli til þess að setja upp öll tæki,
leggja allar leiðslur og framkvæma allar tengingar í
vatnsaflsvirkjunum auk þess að smíðaog setja saman
allan þann búnað sem til greina kemur að vinna hér
heima.
Samstaða erlendra fyrirtækja til að
hækka verð til þróunarlanda
Björn gerði grein fyrir könnun sem þýska blaðið Der
Spiegel hefði gert á því hvernig stórfyrirtæki í fram-
leiðslu á tækjum til orkuiðnaðar hefðu bundist sam-
23