Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 27

Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 27
Mikilvægur dómur á sviði firma- og vörumerkjaréttar Það verða að teljast nokkur tíð- indi, að Time-Life Incorp. beið lægri hlut í undirrétti í atlögu sinni að Tízkublaðinu Líf, en sem kunnugt er, þá taldi hið banda- ríska útgáfufyrirtæki sig eiga einkarétt á heitinu Líf og því væri notkun þessa heitis öðrum óheimil hér á landi. Dómsmál sem þetta eru harla fágæt hér á landi. Engu að síður getur niðurstaða þeirra skipt miklu máli, ekki bara fyrir þau fyrirtæki, sem málið snertir beinlínis, heldur sem vísbending á sviði firma- og vörumerkjaréttar yfirleitt. Það skiptir ekki litlu máli, hvort fyrir- tæki er neytt til þess að leggja niöur heiti, sem það hefur ef til vill rekið starfsemi sína undir — aö einhverju eða öllu leyti — árum saman og byggir hugsanlega alla viðskiptavild á. Það er því ekki úr vegi að hyggja nánar að þessum dómi. Af hálfu bandaríska fyrirtækisins var því haldiö fram, að með skrán- ingu hefði það öðlast einkarétt til þess að nota orðið ,,LIFE“ og þar af leiöandi einnig þýðingu þess. Þetta veitti lagavernd gegn því, að aðrir notuðu þetta orð í atvinnu- skyni. ísland hefði skuldbundið sig 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.