Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Síða 29

Frjáls verslun - 01.09.1981, Síða 29
til þess aö koma í veg fyrir skrán- ingu vörumerkis, sem heföi að geyma þýðingu, er valdið gæti misgripum. Bannaöur væri sér- hver verknaður, sem væri til þess fallinn að stuðla að því, að villst væri á fyrirtæki keppinautar, vör- um hans eða verslunarstarfsemi. Af hálfu útgefanda Tízkublaðs- ins Líf (Frjálst framtak hf), var því haldiö fram, að hann ætti fullan og óskoraðan rétt til þess heitis, sem hann hefði gefið blaði sínu. Stefn- andi ætti ekki rétt yfir öðru en heitinu LIFE og væri sá réttur þó fyrst og fremst bundinn við þann frágang á oröinu, sem viðhafður væri í heiti hins bandaríska tíma- rits, það er útlit heitisins. Orðið LIFE sé ekki sérstaklega tilbúið heiti og ekki einu sinni sjaldgæft orð, heldur sé þaö algengasta orð tungunnar og fjallar um eitt af frumrænustu grundvallarhugtök- um hennar eða öllu heldur lífið sjálft. Það er þannig sannkölluð þjóðareign í hverju landi og um leið eitt af þeim orðum, sem erfitt sé eða útilokað að öðlast eigin- legan einkarétt yfir til notkunar í atvinnuskyni. Jafnframt sé á það að líta að venjur um nafngiftir í blaðaheim- inum séu ekki til þess fallnar að stuðla að myndun einkaréttar og hið sama má segja um viðhorf manna til dagblaðanna. Á þessum vettvangi ríki rótgróin tilhneiging til þess að velja heiti blaða og tímarita úr tiltölulega þröngum hópi nafna eða orða almenns heitis t.d. Morgunblaðið, Tíminn, Þjóðviljinn eða Dagblaðið hér á (slandi. Þessi nöfn séu yfirleitt ekki sér- kennandi í sjálfu sér, heldur veröi þau að njóta stuðnings í öðru til þess að halda einkaréttarvernd, svo sem viðbótarorðum í nafninu, sérstöku útliti eða frágangi eða kunnugleika almennings á blað- inu. Og í viðhorfi manna til blaða og tímarita ríki á sama hátt föst til- hneiging til þess að persónugera ritin og líta á þau sem persónur fremur en hluti eða nöfn. Telja verði að orðið LIFE sé í tölu þess- ara heita, sem hér um ræðir eða undir áhrifum frá þessum aðstæð- um. I þessum tilfellum er það ekki heitið sem slíkt, heldur heildar- mynd ritsins að meðtöldu tilliti til hlutverks þess, útgáfuaðildar o.s.frv. sem segi til um réttar- verndina. Af hálfu LIFE sé því haldið mjög á loft, að heitið LIFE sé heims- frægt. Sú heimsfrægð geti þó alls ekki talist tengd nafninu LIFE sem slíku, heldur tímaritinu LIFE, ,,per- sónu" þess og frágangi. Um leið fylgdi það þessari frægð, að menn þekki ekki aðeins nafnið, heldur viti meiri deili á því, sem bak við það er en ella myndi. í áliti dómenda segir í upphafi, að útgefandi Tízkublaðsins Líf hafi ekki notað orðið líf með þeim hætti, sem haldið sé fram af hálfu bandaríska tímaritsins. Engu að síður sé rétt að taka fyrst til athug- unar, hvort almennt bann verði lagt því, að íslenska orðið líf verði notað sem heiti tímaritsins, þar sem það heiti fari í bága viö rétt LIFE. Það heiti er ekki þýðing á orði, sem búið hefur verið til og telja verði ósannað, að útgefandi Tímaritsins Líf miði með notkun heitisins gagngert að því að til- einka sér ávinning, sem tengdur sé vörumerki LIFE. Bæði enska oröið Life og íslenska orðið líf eru algeng orð daglegs máls og sam- kvæmt því verði ekki unnt að líta svo á, að stefnandi geti lagt al- mennt bann við því, að íslenska orðiö líf verði notað sem heiti tímarits án tillits til uppsetningar, stafagerðar og frágans heitisins að öðru leyti. Næst beri að athuga, segir enn- fremur í áliti dómenda, hvort notk- unin á íslenska orðinu líf sem heiti á íslenska tímaritinu fari í bág við réttindi LIFE. Enska orðið life og TÍZKÐBLAÐ íslenska orðið líf séu bæði eins at- kvæðis orð og svipaðrar merking- ar. Engu að síður sé augljós mun- ur á LIFE sem vörumerki og tíma- ritsheitinu líf. Orðið life í vörumerki stefnanda ber skýr einkenni upp- runa síns í ensku máli. íslenska orðið líf beri ótvíræð einkenni ís- lenskrar tungu. Að þessu leyti sé áberandi munur á þessum orðum. Enska orðið endi á e, sem geri það óíslenskulegt, en íslenska orðið sé án þeirrar endingar og sé þar að auki ritað með breiðum sér- hljóða. Framburður þessara orða sé ólíkur svo sem flestum mönnum megi vera Ijóst hér á landi. Orðið life í vörumerkjum stefnanda er ritað með upphafsstöfum einum en líf í heiti íslenska tímaritsins hafi jafnan verið ritað með litlum stöf- um. Þar við bætist, að orðið tísku- blað hefur jafnan verið tengt orð- inu líf í tímaritsheiti þess blaðs. Verður því að telja ótvírætt, að um svo gagngeran mun sé að ræða á vörumerkjum stefnanda og tíma- ritsheiti stefnda, að hverfandi líkur séu á nokkrum ruglingi. Sam- kvæmt þessu yrði ekki talið, að notkunin á orðinu líf í heiti íslenska tímaritsins bryti að lögum á nokk- urn hátt í bága við rétt LIFE. Sam- kvæmt þessu tapaði LIFE málinu og var þar að auki dæmt til greiðslu málskostnaðar. Fróðlegt veröur að fylgjast með úrslitum þessa máls í Hæstarétti, ef því verður áfrýjað. Dómurinn er hins vegar býsna afdráttarlaus, þannig að vafaatriði eða álitamál virðast ekki vera fyrir hendi að mati dómenda. Það er því fremur ólík- legt, að dómnum verði hnekkt í Hæstarétti. Miuar 82300 82302 29

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.