Frjáls verslun - 01.09.1981, Page 31
Þeir sem luku háskólanámi í
Bandaríkjunum árið 1968 voru
róttækastir stúdenta allra kyn-
slóða og fráhverfari viðskiptum en
nokkur annar háskólaárgangur í
sögu Bandaríkjanna. Á skólaárum
þeirra bar mikið á andófi ýmiss
konar. Það voru mótmæli gegn
Vietnamstríðinu, götuóeirðir í
Chicago í sambandi við flokks-
ráðstefnu demókrata þar o.fl.
Engu að síður er það staðreynd
að háskólakandidatar frá 1968
hafa haslað sér völl í viðskipta-
heiminum í ríkara mæli en há-
skólaárgangar fyrri áratuga.
Þeir voru fleiri sem útskrifuðust
þá með meistarapróf í viðskipta-
fræðum og hagfræði en verið hafði
fjölmörg undangengin ár, og þeir
hafa náð lengra á viöskiþtabraut-
inni en fyrirrennarar þeirra — allt
frá 1920 er árgangar voru langtum
fámennari en nú. Ástæðan getur
m.a. verið sú að þegar þeir luku
prófi og komu út á vinnumarkað-
inn var minna um stöður hjá ríkinu
og við menntastofnanir en áöur,
og því hafi þeir leitað meir út í við-
skiptalífið en fyrirrennarar þeirra.
Greiðari gangur á toppinn
I árganginum frá 1968 voru þeir
sem fæddust á árunum eftir stríð
er fæðingatíðni óx mjög í Banda-
ríkjunum og víðar, en á fimmta og
sjötta áratug hafði verið mikil lægð
í barneignum í landinu. Þarna
hafði því skapast allt að því
..tómarúm'1, og afleiðingin varð sú
að kandídatarnir frá 1968 — sem
nú á fertugsaldri — áttu
greiðari gang upp á toppinn í við-
skiptaheiminum og eru þeir nú að
komast í eða þegar komnir í
áhrifastöður sem aðstoðarmenn
framkvæmdastjóra og fjármála-
stjóra, forstöðumenn skipulags-
deilda og markaðskannana.
Yfirleitt eru þeir enn ekki komnir
í æðstu stöður þeirra sem ákvarð-
anir taka, en þeir eru þegar orðnir
hægri hönd þeirra og iðulega kall-
aðir til skrafs og ráöagerða þegar
taka þarf meiriháttar ákvarðanir í
fyrirtækjum, hvort heldur þau eru
stór eða lítil. Þá kemur forstjórinn
iðulega með ungan mann sér við
hlið og kynnir „Johnny Jones, að-
stoðarframkvæmdastjóri okkar í
tölvuvinnslu". Og það er Johnny
Jones sem hefur unnið allt undir-
búningsstarfið, sett saman dag-
skrána og skrifar fundargerðina
að fundi loknum og gerir drög að
einhverri stefnumarkandi ákvörð-
un sem forstjórinn síðan skrifar
undir. Þá ber og meira á því að
maðurinn er ekki „Johnny Jones"
heldur „Jane Jones", því annað
einkenni árgangs 1968 var að fleiri
konur útskrifuðust þá í viöskiþta-
fræðum en nokkru sinni fyrr og
stefndu í hærri stöður í viöskipta-
heiminum en störf ritara.
„Harðlínumenn“
Þótt engin „vísindaleg athug-
un“ liggi til grundvallar þessum
hugleiðingum og yfirgripsmiklar
31