Frjáls verslun - 01.09.1981, Page 39
orlent
TÖLVURí HÖNDUM
\
I
AFBROTAMANNA
Lögreglan í Pennsylvania í Bandaríkjunum hefur
nýlega komið upp um náunga sem var á góðri leið
með að raka saman milljónum dollara með því að
fara bakdyramegin inn í tölvukerfi Bell símafélags-
ins. Maðurinn, en hann heitir John Thomas Draper, er
orðinn að eins konar goðsögn t Bandaríkjunum.
Hann hefur lagt símafélög í einelti svo árum skiptir
og er kallaður „símtækjadellumaður“. Hann fann
upp tæki sem hann kallaði „bláa kassann" en með
því gat hann hringt langlínusamtöl hvert sem er án
þess að greiða cent fyrir. Draper hafði komið sér fyrir
í sumarbústað inni í skógf í nágrenni Cresco í Penn-
sylvania. Þar tengdi hann Superbrain tölvu við bláa
kassann og bjó sér til forrit sem gerði honum kleift að
ná sambandi við sérstök númer sem Bell símafélagið
úthlutar fyrirtækjum til þess að tölvur þeirra geti
símsent peninga á milli ýmissa aðila. Þessi númer
eru vernduð með fjögurra stafa forlykll sem enginn á
að þekkja nema það fyrirtæki sem því er úthlutað.
Forrit Drapers gekk út á þaö aö prófa þessi 10
þúsund forlykla og lét hann tölvuna prófa númerin í 6
sekúndur í senn. Hann hafði reiknað út að það tæki
tölvuna 16 klukkustundir að finna forlyklana og í for-
ritinu var þannig gengið frá hlutunum að í hvert sinn
sem tölvan náði sambandi um bláa kassann skrifaði
hún „whoopee" áskerminn.
Símafélagið reyndist þó ekki með öllu berskjaldaö
þar sem svo vildi til að fá slík númer voru í notkun í
bænum Cresco. Starfsmenn þess tóku brátt eftir því
að hringingum í þessi ákveðnu númer tók að fjölga
grunsamlega frá þessum eina stað og þeim tókst að
rekja sporin að sumarbústaðnum þar sem Draper
stundaði iðju sína af kappi.
Einn laugardagsmorgun umkringdi lögreglan sum-
arbústaðinn og rannsakaöi staðinn. Drapervartekinn
fastur og hald lagt á tölvubúnaðinn. Þá kom í Ijós að
Draper haföi undir höndum 40 diskettur með ýmiss
konar forritum sem engin leið var að gera sér ná-
kvæmlega grein fyrir til hvers voru ætluð þótt lög-
regluna grunaði að þau væru eitthvað annað og
meira en venjuleg tölvuspil eða leikir.
Þótt augljóst væri að Draper hefði brotiö gegn lög-
um um símanotkun reyndist engan veginn mögulegt
að sanna hve mikið fé honum hafði þegar áskotnast
með tölvunni áður en hann var staðinn að verki. Illar
tungur sögðu að símafélagið hefði ekki þorað að gefa
upplýsingar um það atriöi af hræðslu viö að missa
stóra viðskiptaaðila fyrir bragðið.
En hvað sem því líöur þá tókst ekki að fá Draper
dæmdan fyrir annaö en símasvindl, þ.e. að hafa notað
síma án þess að ætla sér að greiða fyrir það. Og það
sem er ef til vill enn merkilegra var að lögreglan
neyddist til að afhenda honum tölvuna og forritin aft-
ur. Draper hlaut 3—6 mánaða fangelsisvist og hana
notaði hann til þess að segja lögreglunni í Pennsyl-
vania hvernig hægt væri að endurbæta verulega
tölvukerfi hennar.
39