Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 45
Af námsstefnunni „skrifstofa framtíöarinnar”
1
@ II1 "l'.
Að verða málkunnugur
tölvunni sinni
og „ferðast”
þúsundir mílna á vinnustað
Verður skrifstofa framtíðarinnar
samansafn véla og vélmenna,
blikkandi og pípandi líkt og við
þekkjum úr kvikmyndum byggð-
um á vísindaskáldsögum? Verða
vinnubrögðin svo vélvædd að
mannshugurinn slævist af átaka-
leysi? Fara tölvurnar að hugsa
fyrir fólkið og skipa því vélrænt
fyrir? Verður skrifstofan einhvei
„steril" og ómennsk tölvustofn-
un? Og er skrifstofufólk að verða
úr sögunni með allri þessari
tækni?
Þetta eru stórar spurningar en
síður en svo óraunhæft framtíðar-
hjal því tölvutæknin hefur þegar
valdið byltingu í skrifstofuhaldi
hinna þróuðu iðnríkja og mun gera
það hér um leið og hún aðlagast
frekar okkar aðstæðum. Byltingin
er svo hraðfara að ógerningur er
að spá lengra en svo sem tíu ár
fram í tímann til að leita svara við
spurningunum hér í upphafi.
Tölvur verða sífellt fjölhæfari og
ódýrari, en gerö hugbúnaðar fyrir
þær hefur í raun ekki fylgt jafn fast
á eftir. En nú er hugbúnaðargerð
um allan heim komin á mikinn
skrið og breiðist hratt út. Sömu
sögu er að segja hérlendis, fjöldi
manna vinnur nú aö hugbúnaðar-
gerð fyrir tölvur við íslenskar að-
stæður.
Til þess að henda reiður á hvaö
hér er að eiga sér stað og hvað
mun ske hér á næstu árum, efndu
Stjórnunarfélag íslands og
Skýrslutæknifélag íslands til
námsstefnu í hátíðarsal Háskóla
(slands nýverið. Húsfyllir var og
komust færri að en vildu.
Til að gefa nokkra mynd af því
sem fjallað var um, eru hér til-
greindir fyrirlesarar og umfjöll-
unarefni þeirra. Martyn J. Harper
frá IBM fjallaði um skrifstofu fram-
tíðarinnar og skipulag hennar.
Byron Jacobs frá ADR fjallaði um
sítengingu ritvinnslu við stærri
tölvur, tölvuboömiðlun. Gunter
Jang frá Wang talaði um skrif-
stofutæki níunda áratugsins.
Guömundur Ólafsson, verkfræð-
ingur um símatækni á skrifstofu
framtíðarinnar. Sigurjón Péturs-
son, rekstrarhagfræðingur um
þróun á skrifstofu framtíðarinnar í
íslenskum fyrirtækjum. Björgvin
Guðmundsson, verkfræðingur um
tæknivandamál vegna íslenskra
bókstafa og Árni Böðvarsson,
cand. mag. um orðaskiptingar við
ritvinnslu. Að erindum loknum
voru pallborðsumræður undir
stjórn Dr. Jóns Þórs Þórhallsson-
ar, formanns Skýrslutæknifélags
(slands.
45