Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 52
IFORYSTUHLUTVERKI
Herman Miller Inc. er eitt af
stærstu fyrirtækjum veraldar á
sínu sviði. Ástæðurnar fyrir vel-
gengninni eru fyrst og fremst
eftirtaldir þættir:
— Vilji og áræði við að taka
áhættu af virkjun nýrra hug-
mynda.
— Höfuðáherzla ávalt lögð á
vöruvöndun og smekkvísi bæði í
hönnun og framleiðslu á öllum
vörum fyrirtækisins.
— Stöðug viðieitni til þess að
leysa vandamál með nýjum hug-
myndum.
Herman Miller nýtur hvarvetna
mikils álits vegna stöðu sinnar sem
leiöandi fyrirtæki á sviði nýrrar og
hagnýtrar hönnunar þar sem
notagildi og vistfræðileg atriði
hafa verið höfð að leiðarljósi.
HEIMSÞEKKTIR HÖNNUÐIR
Síðan Gilbert Rohde reið á vaðið
hafa hönnuðir Herman Miller Inc.
verið heimsþekktir listamenn svo
sem Charles Eames, Georg
Nelson og Alexander Girard. Með
nýrri tækni og nýjum efnum af
áður óþekktum gæðum reyndist
unnt aö framleiða þau húsgögn
þessara hönnuða, sem enn eru í
fullu gildi, og raunar sígild og
boðin ásamt nýrri hönnun yngri
manna.
[ samræmi við upphafleg mark-
mið var það Herman Miller Inc.
sem ruddi brautina fyrir svokallað
,,Open Landscape", þ.e. opnari
skrifstofur, en það var árið 1970
þegar hönnuðurinn Robert Propst
og HM settu á markaðinn sérstakt
innréttingakerfi kallað ,,Action
Office", um framhaldið vita allir,
enda eru kostir slíkra vinnustaöa
viðurkenndir af vísindamönnum á
sviði vinnuvistfræðinnar.
Að baki ,,Action Office" lágu 10
ára rannsóknir Roberts Propst, á
vinnu, vinnustöðum og atferli þús-
unda vinnandi fólks. ,,Action
Office" er ekki aðeins uppfinning
Propst heldur hugvitsamlega upp-
byggt kerfi sem gefur bæði fram-
leiðanda og notanda möguleika á
stöðugri þróun.
Eftir að sýnt varö hve miklum
árangri mátti ná með vísindalegum
rannsóknum á þessu sviði stofn-
aði Herman Miller Inc., ásamt
Robert Propst, nýtt fyrirtæki; Her-
man Miller Research Corporation í
Chadwick sófaraðeiningar frá
Herman Miller
Ann Arbor, Michigan. Þar stjórnar
Robert Propst rannsóknum og
þróunarstarfsemi sem hefur það
að markmiði að leysa vandamál
vinnustaða þannig að vistfræði-
legum kröfum sé mætt sem leitt
geta til betri vinnustaða og starfs-
ánægju.
52