Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 54

Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 54
starfseminnar fyrirtækinu eöa stofnuninni til framdráttar. Annaö undirstööuatriöi „Action Office" kerfisins er öflug hljóð- og ómdeyfing sem er annars vegar framkvæmd meö ákveðinni upp- setningu og hins vegar í þremur mismunandi öflugum hljóðdeyf- andi skilveggjum. Á þennan hátt er unnt að ná undraverðum árangri þótt skilveggir séu ekki hærri en svo aö einangrunartilfinning er útilokuö. KRÖFUR TÍMANS Þegar þaö er haft í huga aö hugmynd Robert Propst, „Action Office" kerfið, var ekki sett á markaðinn fyrr en 1970 en hafði þá verið í þróun tæpan áratug verður ekki annað sagt en að hönnuður- inn hefur verið langt á undan sinni samtíð. Þetta sést ef til vill bezt á því að nú í byrjun 9. áratugar ald- arinnar uppfyllir „Action Office" kerfið allar þær nýju kröfur sem sívaxandi tölvuvæðing fylgja. Kerfið er þannig hugsað í grund- vallaratriðum, að hægt sé að þróa það með tilliti til sérþarfa. Á grundvelli þess hefur Herman Mil- ler Inc., bætt inn í kerfið ýmsum einingum sem sérstaklega eru hugsaðar með tilliti til tölvunotk- unar. Hér er um að ræða sérstakar hirzlur, sérstök tölvuborö og sér- hannaðan búnað vegna raflagna að tölvum og millitenginga vegna jaðartækja. NÚ Á ÍSLANDI SKRIFSTOFUTÆKNI HF hefur tekiö að sér sölu á vörum frá Her- man Miller Inc. Fyrst um sinn mun aðaláherzlan verða lögð á skrif- stofuinnréttingar, þ.e. „Action Office" kerfið og einnig skrifstofu- húsgögn svo sem stóla af mörgum mismunandi gerðum, fundarborð, djúpa stóla og raösófaeiningar. Fyrirtækið mun bjóða ráðgjöf við tillögugerð í sambandi við verðtil- boð og stefnt er aö samvinnu við innréttingahönnuði og arkitekta sem myndu taka að sér skipulag og hönnun vinnustaða þar sem „Action Office" kerfið er notað. Með hagstæðum samningum við framleiðandann verður unnt aö bjóða sérstakt kynningarverð sem er lægra en á öörum innfluttum innréttingakerfum í svipuðum gæðaflokki. Launa- greiðendur Kynniö yður skipan á greiöslu orlofsfjár Samkvæmt reglugerð nr. 161 /1973 ber launagreiðend- um að gera skil á orlofsfé fyrir 10. hvers mánaðar, vegna launa næsta manaðar á undan Greiðslunni skal fylgja skilagrein a þar til gerðu eyðublaði sem Póstur og sími gefur ut Gætið þess sérstaklega að nafnnumer séu rétt. Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaða fresti frá Pósti og síma Það sýmr hve mikið'orlofsfé hefur veriö mót- tekið þeirra vegna. Geyma þarf launaseðlana til að geta séð hvort rétt upp- hæð hefur verið greidd inn á orlofsreikninginn. Við lok orlofsárs fær launþegi senda ávísun á orlofsfé sitt. Eyðubloð fást á póststöðum og eru þar veittar nánari upplýsingar. PÓSTGÍRÓSTOFAN Ármúla 6, Reykjavík. Sími 86777. 54

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.