Frjáls verslun - 01.09.1981, Blaðsíða 59
ins ætti ekki að vera skortur á
vinnandi höndum.
Var þetta m.a. rökstutt þegar
Járnblendiverksmiðjan var reist á
Grundartanga, en án árangurs, og
þá hefur svonefndri Staðarvals-
nefnd verið bent tryggilega á
þessa staðreynd, en hún hefur
ekki svarað ábendingum bæjar-
stjórnar þar um.
Jafnframt stóriðju eru vonir
þundnar við upþbyggingu al-
menns iðnaðar og hefur bærinn
einnig til úthlutunar næg land-
svæði undir hann. Nú er t.d. búið
að úthluta um 40% lóða undir
smærri og meðalstór fyrirtæki á
nýju 28 hektara landsvæði norðan
Reykjanesbrautar og vestan
Kaplakrika. Sunnan brautarinnar
er einnig ólokið uppbyggingu fyr-
irtækja. Á vestanverðu Hvaleyrar-
holti eru lausar lóðir fyrir svo-
nefndan hafnsækinn iðnað svo
sem fiskiðjuver og þjónustufyrir-
tæki viö útgerð. Sams konar fyrir-
tæki eru fyrirhuguð á allt að 12
hektara uppfyllingu í suðurhöfn-
inni, sem þegar er unnið að. Vax-
andi umsvif iðnaðar kalla á aukna
þjónustu og stækkandi bær
sömuleiðis. Fyrir því verður einnig
séð í nýju skipulagi að gamla mið-
bænum milli Strandgötu og Fjarð-
argötu. Fyrirhugað er að byggja
þar verulega upp gamla miðbæinn
á þann hátt að núverandi nothæf
hús falli inn í. Þar er m.a. gert ráö
fyrir verslunar- og skrifstofuhús-
um, opinberum stofnunum,
menningarmiðstöð og jafnvel hót-
eli, svo eitthvað sé nefnt. Það er
sem sagt gert ráð fyrir að geta
tekið á móti allri starfsemi í Hafn-
arfirði nú.
En hvað líöur þá lóðamálum
undir íbúðahúsnæði þar sem gert
er ráð fyrir að Hafnfirðingar verði
orðnir 17400 árið 2000 miðað við
1,75% fjölgun á ári?
Einar segir að á næstu tveim ár-
um verði fullbyggt innan Reykja-
nesbrautar og Álftanesvegar út að
mörkum Garðabæjar í Garða-
hverfi. Mun byggð Hafnarfjarðar
ekki teygja sig lengra til vesturs,
þótt ýmsum þyki það eðlilegasti
kosturinn, þar sem endanlega er
útséð um að Garöbæingar vilji
fara út í makaskipti á löndum og
láta Hafnfirðingum þar land í té
fyrir land annars staðar.
Því var í fyrra samið um kaup á
106 hekturum lands í löndum Set-
bergs og Þórsbergs, norðan
Reykjanesbrautar á þeim slóðum,
sem hún fer að beygja til suðurs
upp brekkuna. Þar er nú unnið að
skipulagningu og búist við að
hefja framkvæmdir árið ’82 eða
'83. Þar verða væntanlega byggð-
ar liðlega þúsund íbúöir. Er áætlað
að þetta svæöi muni duga í tíu ár.
Að þessu svæði byggðu verður
næst byggt í Moshlíð og Áslandi,
sem halda áfram til suðurs austan
Reykjanesbrautar. Talið er að þau
svæði muni endast til aldamóta.
Eins og lesendur hafa tekiö eftir,
er hér hvergi minnst á eflingu
byggingariðnaðar, þjónustu og
sjávarútvegs. Að vísu er gert ráð
fyrir athafnaplássi fyrir eflda þjón-
ustu í nýskipan miðbæjarins og
víðar. En eins og ástandið er í haf-
inu nú, þykir ekki ástæða til bjart-
sýni varðandi verulega eflingu
sjávarútvegs og fiskiðnaðar, sem
þegar eru öflugar greinar í Hafn-
arfirði. Af þessum greinum mun
byggingariðnaðurinn hugsanlega
eflast hvað mest, en hann er ekki
eins staöbundinn og aðrar grein-
ar, svo aðstaöa hans mun falla
undir iðnaðaraðstöðu almennt.
Sem fyrr er getið er það semsagt
stóriðja og almennur iðnaður, sem
Hafnfirðingar ætla að byggja á í
ríkari mæli í framtíðinni. Má í því
sambandi nefna hugmyndir um
stækkun Álversins o.fl.
Þegar ekið er um Hafnarfjörð er
eftirtektarvert hvað staðurinn hef-
ur stækkað og fegrast á undan-
förnum örfáum árum. Þar getur
einnig að líta þjónustu af nær öllu
tagi, sem óðfluga verður fjöl-
breyttari, og fjölbreytni í iðnaði
virðast engin mörk sett, svo allir
heimamenn ættu að geta fundið
störf við sitt hæfi þegar nægileg-
um fjölda atvinnufyrirtækja verður
náð. —
SÓLAR GLUGGATJÖLD
Skúlagötu 51, símar: 13743 15833
Bílastæði austan verðu við húsið, Skúlagötumegin.
59