Frjáls verslun - 01.09.1981, Side 60
Fjöldaframleiðsla á
plasteiningum í veggi
og þök hafin
Fyrirtækið Börkur hf. að Hjalla-
hrauni í Hafnarfirði hefur þanist út
í líkingu við það efni, sem er aðal-
hráefni fyrirtækisins, nefnilega
Polyurethan. Til að sýna nokkuð
fram á aukið umfang Barkar hf.
sagði Runólfur Halldórsson,
framkvæmdastjóri, að fyrirtækið
hafi byrjað fyrir 17 árum með vél,
sem blandaði 7 kíló af polyure-
than á mínútu en nú gæti véla-
kosturinn blandað á fjórða hundr-
að kíló á mínútu, ef því væri að
skipta. Börkur er einnig orðinn
einn stærsti vinnustaður Hafnar-
fjarðar með um 50 manns í vinnu í
2750 fermetra eigin húsnæði.
Upphaflega var höfuð viðfangs-
efni fyrirtækisins að einangra
hitaveiturör, en um og upp úr 1970
var farið að huga að leiðum til að
reisa verksmiðjuhús, að verulegu
leyti úr polyurethan, og þar með
að rjúfa eldri hefðir.
Barkarmenn prófuðu sig sjálfir
áfram með að reisa hús yfir sig úr
efninu, með asbesti að utan- og
innanveröu. Þær einingar voru
boltaðar á stálgrind. Hinsvegar
seldu þeir aðeins frá sér þess
háttar einingar til þakgerðar. Mis-
jöfn reynsla varð af því og þvi var
næst reynt með stálkápum báðum
megin í stað asbests. Reisti fyrir-
tækið 2000 fermetra viðbótar-
byggingu yfir sig með þeim hætti
fyrir fjórum árum og þykir sú aö-
ferð hafa gefið góða raun. í Ijósi
þess var farið út i að þróa þá að-
ferð frekar þar sem mönnum þótti
sýnt að rétta leiðin væri fundin. Við
þessa húsagerð höfðu verið notuð
frumstæð tæki enda ekki talið
ráðlegt að fjárfesta í fullkomnum
tækjum fyrr en reynsla væri feng-
in. Fyrir tveim árum var því keypt
mjög fullkomin panelpressa og er
hægt að steypa sex 12 metra fleka
í henni í einu. Til viðbótar var farið
út í að kaupa einnig vélar til aö
valsa stálplöturnar svo unnt væri
að kaupa stálið inn í óvölsuöum
rúllum og valsa hér eftir þörfum.
Sú vél komst í gagnið nú í sumar
þannig að þessa dagana eru mikil
tímamót hjá fyrirtækinu þar sem
fullkominni hönnun framleiðslu-
vörunnar er lokið, bestu fáanlegar
vélar hafa verið fengnar til fram-
leiðslunnar og fullkomin fram-
leiðslulína er komin í gagnið og
farin að starfa á eðlilegan hátt.
Margir hafa unnið saman að
þessu verkefni en mest hefur mætt
á starfsmönnum tæknideildar fyr-
f annari álmu vinnslusalar Barkar hf.,
þar sem m.a. sjást tilbúnar þakeining-
ar eru þeir frá vinstri: Hjörtur Hansson,
byggingaverkfræðingur, Runólfur
Halldórsson, framkvæmdastjóri og
Agnar Norland, skipaverkfræðingur.
irtækisins, þeim Hirti Hanssyni,
byggingaverkfræóingi og Agnari
Norland, skipaverkfræðingi. Eru
þeir allir mjög bjartsýnir á vel-
gengni við þessa framleiðslu og
spá hiklaust framleiðslu tuga þús-
unda fermetra á ári. Er þá bæöi átt
við þak- og veggjaeiningar, en
hvor gerðin um sig er framleidd í
ýmsum útgáfum til að geta hentað
sem flestum.
Einingar þessar eru fyrst og
fremst hugsaðar fyrir iðnaðarhús,
verslunarhús, fiskverkunarhús,
peningahús í sveitum o.fl. Ekki er
búið að reikna endanlegan kostn-
aö við notkun þessa byggingar-
máta í samanburði við stein-
steypu, en Runólfur segist standa
við það að þeirra aðferð sé til
muna ódýrari, svo ódýr að ástæða
virðist til að kanna gaumgæfilega
möguleika á útflutningi.
Börkur hefur einnig framleitt
einingar í kæli- og frystigeymslur
og verður nú farið út í að þróa
þann þátt starfseminnar enn frek-
ar, þar sem nokkuð olnbogarými
skapast á tæknideildinni að lokinni
áðurnefndri hönnun.
Einnig sagði Runólfur hugsan-
legt að farið yrði út í hönnun stál-
grinda, sérstaklega með tilliti til
notkunar á einingum þeirra. Væri
hugsanlegt að fyrirtækið færi út í
það sjálft eða í samvinnu við eitt-
hvert stáliðnaðarfyrirtæki.
Með öllum þessum umsvifum er
nú orðið svo þröngt um fyrirtækið
að það hefur sótt um viðbótarút-
hlutun við lóð sína til að reisa þar
stórhýsi er hýsa á frekari fram-
leiðslu. —
60