Frjáls verslun - 01.09.1981, Blaðsíða 69
framkvæmda sem sveitarfélögin á
Suðurnesjum standa að.
Verið er að Ijúka við fyrsta
áfanga nýbyggingar við sjúkra-
húsið en þar var fyrir eldra sjúkra-
hús frá því árið 1954. Þessi fyrsti
áfangi verður tilbúinn til vígslu upp
úr mánaðamótum októ-
ber—nóvember. „Síðan höfum við
áhuga á að halda áfram í annan
áfanga nýbyggingar sjúkrahúss-
ins. Þar er um að ræða heilsu-
gæslustöð, sem yrði í tengslum við
sjúkrahúsið. Núverandi heilsu-
gæslustöð er löngu orðin alltof lítil
og ófullnægjandi. Endanlegar
teikningar að öðrum áfanga ný-
byggingar sjúkrahússins eru þeg-
ar tilbúnar. Hinsvegar er beðið
eftir endanlegri heimild stjórn-
valda til að hefja verkið og einnig
stendur á fjárveitingu frá Alþingi."
Sveitarfélögin á Suðurnesjum
standa sameiginlega að dvalar-
heimili aldraðra í Garði. Nefnist
það Garövangur. Nýverið var tekin
fyrsta skóflustungan að nýrri vió-
byggingu við Garðvang. Keflavík-
urkaupstaður er einnig að láta
byggja íbúðir fyrir aldraða á eigin
vegum. Ætlunin erað leigja þessar
íbúðir eins og gert hefur verið við
miklar vinsældir við fyrri íbúðir. Er
mikil ásókn eldra fólks í að komast
í þessar íbúðir.
,,Nú síðustu daga hafa verið
uppi umræður um hvort sveitarfé-
lög á Suðurnesjum eigi að leggja
fram hlutafé í saltverksmiðjuna
væntanlegu," sagði Steinþór. ,,Ef
að úr yrði þá væri hér um nokkuð
stórt verkefni fjárhagslega á mæli-
kvarða sveitarfélaganna."
Ákvörðun hefur ekki verið tekin í
þessu máli.
Varðandi sérmál Keflavíkur
sagöist Steinþór Júlíusson bæjar-
stjóri fyrst vilja nefna að hann hefði
nokkrar áhyggjur af þróun at-
vinnumála á komandi vetri.
Ástandið væri þannig núna að illa
gengi að halda togurunum úti til
veiða. Ef þeir stöðvuðust alveg
yrði atvinnuleysi í Keflavík á næstu
mánuðum vegna hráefnisskorts í
frystihúsunum. Þau eru nú aðeins
þrjú ÍKeflavík. Eru það Keflavík hf.,
sem er í rekstri, Heimir hf., sem
ekki hefur starfrækt frystihús sitt
síðan í ágúst síðastliðnum. Hrað-
frystihús Keflavíkur hf., hefur til-
kynnt að það muni segja upp öllu
starfsfólki sínu alveg á næstunni.
í viðtalinu við Steinþór kom fram
að unnið væri að hefðbundnum
bæjarframkvæmdum þar jafnt og
þétt. Hann sagöi aö landrými fyrir
Keflavík væri nægilega tryggt í það
minnsta fram til ársins tvö þúsund
ef ekki lengur. Tekist hefði að
uppfylla eftirspurn eftir lóðum
undir raðhús og fjölbýlishús en
ekki að fullu undir einbýlishús.
Kæmi það í og með af því að
gatnagerðargjöld væru til muna
lægri í Keflavík heldur en til dæmis
á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarstjórinn sagði að komiö
hefðu fram hugmyndir um að
Landshöfnin í Keflavík og Njarðvík
yrði afhent viðkomandi bæjarfé-
lögum og þá einnig Landshafnirn-
ar í Þorlákshöfn og á Rifi. Þætti
mörgum óeðlilegt að mismunandi
lög giltu um hafnir á landinu eftir
því hvort um væri að ræða svo-
nefndar landshafnir eða ekki. Allt
væri þetta þó á umræðustigi enn
sem komið væri.
Góð vertíð
Grindavík byggðist upp á fiski
og gerir enn. Síðustu mánuðir eru
einmitt gott dæmi um tengsl á
milli góðs afla úr sjó og afkomu
Grindvíkinga. Síðasta vertíð var
mjög góð í Grindavík. Afii góður
og afkoma
fiskvinnslufyrirtækjanna góð.
Slíkt kemur auðvitað fram í
bættum fjárráðum fyrirtækjanna,
fólksins í Grindavík og auðvitað
nýtur bæjarsjóðurinn einnig góðs
af í auknum opinberum gjöldum.
Frjáls verslun snéri sér til Jóns
Hólmgeirssonar bæjarritara
Grindavíkurkaupstaðar. Var hann
spurður um hverjar væru helstu
framkvæmdir sem bæjarfélagið
stæði í um þessar mundir.
Hann sagði aö sú ákvörðun
hefði verið tekin við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár, aö
leggja einkum áherslu á tvær
framkvæmdir. ( fyrsta lagi
byggingu nýs íþróttahúss og íöðru
lagi nýja aðveituæð fynir ferskt
vatn fyrir Grindavík.
eins og vítamínsprauta
-fyrsti áfangi nýrrar vatnsveitu og nýtt
og glæsilegt íþróttahús fokhelt fyrir áramót
Þessi ákvörðun hefði kostað
það, að minna hefði verið hægt aö
leggja til hefðbundinna
bæjarframkvæmda eins og
gatnagerðar og undirbúning fyrir
ný byggingahverfi. I þessum
efnum er nú aöeins framkvæmt
hið nauðsynlegasta en þó ekki svo
að nægilegt sé til frambúðar.
Við íþróttahúsið var gengið frá
grunni í sumar. Byggingin á að
verða úr steyptum einingum og var
boðin út. Gert er ráð fyrir að húsið
verði fokhelt fyrir komandi áramót.
•Alls verður varið til íþróttahússins
tæplega þrem milljónum króna í
ár. Þar af leggur ríkissjóður fram
rétt um eina komma eina milljón
króna samkvæmt lögum.
Brátt líður að því að
Grindvíkingar þurfi að stækka
vatnsból sín og raunar er þegar
Jón Hólmstelnsson bæjarritarl í
Grindavík.
farið að bera á skorti á vatni.
Núverandi vatnsból er fyrir ofan
kaupstaðinn, nærri veginum, sem
liggurfrá Svartsengi. Þarfæst vatn
úr borholum. Farið er að bera á því
69