Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 71

Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 71
að í vatninu þaðan sé salt og önnur óæskileg efni. í fyrsta áfanga vatnsveituframkvæmdanna verður boruð ein hola við Svartsengi þar sem Suðurnesjamenn hafa einnig virkjað til hitaveitu. í þessum fyrsta áfanga verður vatnið leitt að núverandi vatnsbóli og þaðan inn í kaupstaðinn. Við frekari framgang vatnsveituverkefnisins er hins vegar ætlunin að bora fleiri holur við Svartsengi og leiða vatnið síðan beint þaðan til bæjarins. Mundi þá sú lögn liggja nærri núverandi hitaveitulögn til Grindavíkur. í ár munu Grindvíkingar verja tveim milljónum og sjö hundruð þúsund krónum til nýju vatnsveitunnar. Sú framkvæmd ætti að geta komist á lokastig eftir tvö til þrjú ár. Bæjarfélagið í Grindavík stendur sem sagt aðallega í stórræðum varðandi nýtt íþróttahús og nýja vatnsveitu. Hvort tveggja eru þetta gagnlegar og nauðsynlegar framkvæmdir. Hins vegar fer það ekkert á milli mála þegar komið er til Grindavíkur að þar byggist afkoman á fiskveiðum og fiskvinnslu. Eins og sagði í byrjun þessarar greinar var afkoma útgerðar og fiskvinnslu mjög góð á síðustu vertíð. Við lauslega athugun, þá virðast menn líka hafa notað tækifærið og lagt út í töluverðar endurbyggingar og breytingar á bátaflotanum á staðnum. Ef fyrst er litið á bátaflotann, þá vitum við að þrír bátar Fiskaness hf. hafa verið í yfirhalningu. Skúmur var lengdur í Bátalóni í Hafnarfirði og auk þess var sett á hann ný brú og keis. Mælist hann nú 146 tonn. Nýjar vélar voru settar í Skarf og Gauk, auk þess sem settir voru á þá nýir bakkar. Nýir bakkar hafa verið settir á alla báta Þorbjörns hf. þá Hrafn Sveinbjarnarson I, II og III. Auk þess skipt um vélar í einhverjum þeirra og einnig ný brú. Einnig var sett ný vél í Hrungnir, sömuleiðis í Kóþ og nýir bakkar á Þorstein og Vörð. Ofnasmiðja Suðurnesja: Gamla salthúsið löngu orðið allt of Iftið Jón William Magnússon fram kvæmdastjóri Ofnasmiðju Suðurnesja Fyrir rúmlega átta árum hófst framleiðsla á ofnum hjá Ofnasmiðju Suðurnesja hf. I byrjun var endurbyggt rúmlega tvö hundruð fermetra gamalt hús og fór framleiðsla þar fram. Húsið átti sér sína forsögu. Upphaflega var það reist sem saltgeymsla fyrir Vatnsnesbúið og síðar varð það sementsgeymsla fyrir Kaupfélag Suðurnesja. Þetta er traust bygging og veggirnir hafa sannarlega átt að þola þunga saltsins því þeir eru vel þykkir. En gamla salthúsið var ekki lengi nægilega stórt fyrir Ofnasmiöju Suðurnesja. Þegar er búið að byggja fimm hundruð fermetra viðbyggingu við húsið að Vatnsnesvegi 12 í Keflavík, þar sem smiðjan er til húsa. Jón William Magnússon framkvæmdastjóri Ofnasmiðju Suöurnesja sagði tíðindamönnum Frjálsrar verslunar aö ráðagerðir væru nú uppi um enn frekari stækkun húsnæðis. Heimild bæjaryfirvalda væri þegar fengin. „Framleiðslan hefur aukist svo jafnt og þétt að okkur hefur aldrei dugað það húsnæði sem við höfum haft á hverjum tíma,“ sagði Jón. Ofnasmiðja Suðurnesja hf. framleiðir tvær tegundir ofna: Panelofna frá LVI verksmiðjunum í Svíþjóð og Runtal ofna, samkvæmt sérstöku einkaleyfi. í Runtalofnunum, sem unnið hafa sér sérstakan sess á markaðnum er mun meiri efnisþykkt en í öðrum tegundum ofna. Á honum eru þvingaðar rásir sem gefa möguleika á miklum sparnaði í lögnum. Jafnframt eru Runtalofnarnir með flataraukum, sem geta gefið mikinn hita á litlum fleti. Auk þess eru þeir mjög auðveldir í þrifum. Þegar Frjáls verslun var í Keflavík á dögunum sagði Jón W. Magnússon framkvæmdastjóri okkur að haustin væri mesti annatíminn í ofnasmíðinni. Þó væri ávallt mikið að gera við framleiðsluna og aldrei hefði tekist að framleiða neitt af ofnum á lager. Ávallt væri beðið eftir framleiðslunni þegar hún kæmi frá smiðjunni. Sextán manns starfa nú hjá Ofnasmiðju Suðurnesja hf. Viðskiptasvæði hennar er allt landið. Töluvert er um að ofnar frá Ofnasmiðju Suðurnesja séu notaðir af ýmsum stórum aöilum í byggingariðnaðinum. 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.