Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 72
bygrgró
Trésmiðja Keflavíkur sf.
Gamla lagið ódýrara
en einingarnar
Trésmiðja Keflavíkur sf. er nær
nýtt fyrirtæki, stofnað í desember
síðastliðnum. Eigendur þess eru
þeir bræðurnir Kári Tryggvason
húsgagnasmíðameistari og
Hólmar Tryggvason
húsasmíðameistari. Fyrirtækið,
sem er til húsa að Bolafæti 3, í
Njarðvík á 240 fermetrum var
stofnað upp úr eldra fyrirtæki en
jafnframt urðu nokkur
eigendaskipti.
Stefnt er að því að sérsmíða alla
hluti eftir óskum hvers og eins
kaupanda. Aðallega hefur verið
um að ræða innréttingar í eldhús,
bað, fataskápa, sólbekki og einnig
inni- og útihurðir.
Að sögn Kára Tryggvasonar
annars eiganda Trésmiðju
Keflavíkur hefur eftirspurn verið
næg eftir framleiðslu fyrirtækisins
til þessa. Verkefni hafa verið
yfirfljótandi síðan starfsemin hófst
í desember síðastliðnum.
Á liönu sumri tók trésmiðjan að
sér byggingu fjögurra
einbýlishúsa. Var það gert til
reynslu og þar sem smíði húsanna
er ekki lokið er óvisst um árangur
en framhald húsasmíöa á vegum
Trésmiðju Keflavíkur mun nokkuð
ráðast af henni.
Kári Tryggvason sagði að eitt
þessara fjögurra húsa væri
timburhús. Hefði það verið byggt
með gömlum aðferðum og engir
hlutar þess úr fyrirframbyggðum
einingum. Svo virtist jafnvel að
smíði timburhússins með gömlu
aðferðinni kæmi betur út en smíði
einingarhúsa. Kári sagði að
lóðaskortur setti öllum
byggingaframkvæmdum þröngar
skorður í Keflavík sem víðar.
Starfsmenn Trésmiðju
Keflavíkur sf. eru níu. Vélakostur
fyrirtækisins er allur nýr og elstu
vélarnar jafngamlar fyrirtækinu
eða tæplega eins árs. Hefur verið
lögð áhersla á að láta vélakostinn
falla að fjölþættri starfsemi smiðj-
unnar. Framleiðslan hefur mest
farið um Suöurnesin en einnig
víðar um landið. Jafnvel alla leið til
Norðfjarðar.
Trésmiðja Þorvaldar Olafssonar hf.:
Meiri gæði
og betri þjónusta
-er eina svar okkar við auknum innflutningi
„Svar okkar við auknum
innflutningi er aðeins eitt og það
er að bjóða meiri gæði í
framleiðslunni og betri þjónustu
heldur en aðrir,“ sagði Þorvaldur
Ólafsson framkvæmdastjóri
Trésmiðju Þorvaldar Ólafssonar,
þegar Frjáls verslun ræddi við
hann á dögunum.
„Við getum aldrei keppt við hin
erlendu fyrirtæki í
framleiðslumagni. Hér eru allt
aðrar aðstæður heldur en erlendis
þar sem mannfjöldinn er miklu
meiri."
Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar
hf. hóf starfsemi árið 1973. I fyrstu
var unniö við almenna húsasmíði
og síðan verktakastarfsemi.
Fyrirtækið flutti árið 1976 í
núverandi húsnæði. Er það að
Iðavöllum 6, í Keflavík. Er þar 735
fermetra bygging í eigu
fyrirtækisins. Möguleikar eru á að
stækka húsnæðið í allt að 1600
fermetra að gólffleti.
Nú hefur Trésmiðja Þorvaldar
Ólafssonar hf. einvörðungu snúið
sér að framleiðslu innihurða og
viðarþilja. Vélakostur allur er nýr
og sérstaklega ætlaður til
framleiðslu á innihurðum og
þiljum.
Að sögn Þorvaldar hefur verið
haldið fast við þá
framleiðsluaðferð að byggja
hurðirnar á harðtexgrind í stað
innleggs úr pappír eins og víða
tíðkast nú í framleiðslu. Með þessu
telja menn sig fá betri hurðir, bæði
sterkari og þær eru lausar við það
tómahljóð sem oft vill skapast í
hurðum með pappírs-innleggi.
Svar okkar við erlendri samkeppni er
aukin gæði og góð þjónusta, segir
Þorvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri
Trésmiðju Þorvaldar Ólafssonar hf.
Framleiðsla
fyrirtækisins er send heim til þeirra
kaupenda sem þess óska. Er þá
sama hvar á Suðurnesjum eða
höfuðborgarsvæðinu
viðskiptavinurinn er. Eins fara
starfsmenn smiðjunnar og taka
mál í húsum sé þess óskað. Sú
þjónusta er þó bundin við
Suðurnesin.
Umboðsaðilar Trésmiðju
Þorvalds Ólafssonar hf. eru tveir í
Reykjavík. Eru það Iðnverk hf.
Hátúni 4A og Húsgagnaverslun
Axels Eyjólfssonar að Smiðjuvegi
9.
72