Frjáls verslun - 01.02.1985, Blaðsíða 20
___________ÚTGERÐIN_________
Rétt gengisskráning
er höfuðatriðið við lausn
vanda útgerðarinnar
Texti: Ólafur Jóhannsson.
FRJÁLS verslun birtir aö
þessu sinni samtöl viö nokkra
menn þar sem þeir svara spurn-
ingunni: Hvernig á að leysa
vanda útgerðarinnar? Auövitaö
er hér um spurningu aö ræöa
sem varla er hægt aö ætlast til
aö svarað sé í stuttu spjalli í
blaöi, en hins vegar er hér um
mál aö ræöa sem er mjög mikil-
vægt og afar aðkallandi aö tek-
ið sé á.
Eitt var þaö atriði sem allir
nefndu til sögunnar þegar álita-
efniö var rætt, en þaö eru geng-
ismálin. Kom frá sú skoöun aö
nauösynlegt væri aö skrá geng-
ið rétt, ekki þýddi aö selja vöru á
lægra veröi en hún kostar á er-
lendum mörkuðum, en slíkt hef-
ur veriö vandamál. Einnig komu
fram ábendingar um niður-
greiðslur á kostnaöarþáttum út-
gerðarinnar, svo sem olíu, sem
er mjög stór þáttur af rekstrar-
kostnaöinum. Þá komu enn-
fremur fram hugmyndir um að
rétt væri aö endur skoöa fjár-
festingarlán útgeröarinnar, gera
meiri kröfur til eiginfjár og gera
lánaskilmála jafnframt hag-
stæöari.
Þaö er útbreidd skoöun aö
vandi útgerðarinnar stfi um margt
af offjárfestingu i greininni og aö
aðilar sem litiö sem ekkert fjár-
magn höföu á bak viö sig keyptu
skip, sem nu er sýnt aö standa
ekki undir greiðslum afborgana
og vaxta af lánunum. Þaö er al-
menn skoöun aðfiskiskipaflotinn
sé of stjór nú miðað viö þann
sjávarafla sem í boöi er sam-
kvæmt fiskveiðistefnunni og þýö-
ir þaö auðvitað aö fiskiskipum
veröur aö fækka. Slikar aögeröir
eru auövitaö harkalegar gagnvart
þeim sem þá missa skip sin, en
nauðsynlegar gagnvart hinum,
þar sem ekki er meiri til skipt-
anna.
Um þessi mál ræöa fimm
menn, en þaö eru þeir Þóröur
Friðjónsson viðskiptafræðingur í
forsætisráöuneytinu, Jón Páll
Halldórsson framkvæmdastjóri
Hraöfrystihúss Norðurtangans á
Isafiröi, Vilhjálmur Egilsson, hag-
fræðingur Vinnuveitendasam-
bands íslands, Þóröur Ásgeirs-
son, forstjóri OLÍS og Ágúst Ein-
arsson, viöskiptafræöingur hjá
Landssambandi isl. útvegs-
manna.
VIÐ HÖFDM TRY6GT OKKUR
SIMANUMERIÐ
621110
HEFURÞULAGTÞAÐAMINNIÐ?
TRTOGING HFs^/,7s