Frjáls verslun - 01.02.1987, Blaðsíða 10
rettir
Idnþróunarsjóður
færir út kvíarnar
Iðnþróunarsjóður hefur
samþykkt um 40 milljón
króna lánveitingu til
Guðbjöms Guðjónssonar
vegna byggingu hótels —
Holliday Inn — í Sigtúni.
Þetta er tímamótaákvörð-
un hjá Iðnþróunarsjóði
því sjóðurinn hefur ekki
lánað til greina utan hefð-
bundins iðnaðar fyrr. For-
ráðamenn sjóðsins vilja
með þessu víkka út hug-
takið iðnaður og lána
þannig til fleiri greina.
Munu nokkrar umsóknir
frá fiskeldisstöðvum vera
til athugunar hjá sjóðnum
en enn sem komið er hafa
ekki verið teknar neinar
ákvarðanir í þeim efnum.
Þá r^á búast við því að
Holiday-lnn, hótel Guöbjörns Guðjónssonar.
Iðnþróunarsjóður láti til
sín taka í þeim slag sem
fjármagnsmark-
nu er a
aðnum. Verða ýmsar nýj-
ungar á því sviði kynntar
áður en langt um líður.
Helgi Magnússon til Útsýnar
Helgi Magnússon hefur
verið ráðinn forstjóri hjá
Ferðaskrifstofunni Útsýn
hf. Hann tók til starfa í
byrjun mars við hlið
Ingólfs Guðbrandssonar
sem stofnaði Útsýn fyrir
aldarþriðjungi og hefur
veitt ferðaskrifstofunni
forstöðu síðan.
Þeir Ingólfur og Helgi
munu báðir starfa sem
forstjórar hjá Útsýn hf.,
en Ingólfur Guðbrands-
son hyggst smá saman
minnka við sig daglega
stjómun og flytja sig síð-
an úr starfi forstjóra og
taka við stöðu stjómar-
formanns ferðaskrifstof-
unnar.
í ársbyrjun 1986 seldi
Ingólfur Guðbrandsson
50% af Ferðaskrifstof-
unni Útsýn til nýrra aðila
sem gengu til samstarfs
við hann. Þá var stofnað
Helgi Magnússon.
hlutafélag um reksturinn.
Þeir Ingólfur og Helgi
hafa átt sæti í stjóm fé-
lagsins frá upphafi. Auk
þeirra sitja í stjóm Ferða-
skrifstofunnar Útsýnar
hf. Þeir Ómar Kristjáns-
son, Andri Már Ingólfs-
son og Magnús Gunnars-
son.
Helgi Magnússon er 38
ára viðskiptafræðingur
og löggiltur endurskoð-
andi. Hann er kvæntur
Ömu Einarsdóttur, hjúkr-
unarfræðingi.
1 Efnahaasmál
I Verðbólguspd almonnings:
160% þátttakenda spá
[ verðbólgu undir 20%
Hvernig
reyndist
spáin?
Fyrir réttu ári tók Frjáls
verslun þátt í spuminga-
vagni Hagvangs. Spurt
var hvað fólk teldi að
verðbólgan yrði mikil á
næstu 12 mánuðum.
Svörin dreifðust mjög
mikið en flestir eða um
60% spáðu því að verð-
bólgan yrði einhverstaðar
undir 20%. Aðeins 12%
þátttakenda töldu að
verðbólgan yrði undir
10% og 36% töldu að hún
yrði undir 15%. Þessar
niðurstöður má líka setja
þannig fram að tæpur
helmingur þátttakenda
hafi spáð verðbólgu á bil-
inu 10-20%. Nú em
komnar rauntölur fyrir
þetta 12 mánaða tímabil.
Samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu íslands
hafði framfærsluvísitalan
í mars hækkað um 15.4%
síðustu 12 mánuði. Það
má því segja að um helm-
ingur þjóðarinnar hafi séð
fyrir hvert verðbólguþró-
unin stefndi fyrir einu
árin siðan.
Tilraunir með pínubanka
Lloyds bankinn í Bret- landi er að þreifa fyrir sér með nýja þjónustu. Settir hafa verið upp til reynslu þrír pínubankar (á ensku: Minibank) í stórmörkuð- um. Ef tilraunin gefur góðan árangur ætlar Lloyds að fækka sjálf- virku hraðbönkunum sem nú em í stórmörkuðum, sjúkrahúsum og verk- smiðjum. í staðinn á að setja upp Iitla banka sem veita fjölþættari þjónustu en hraðbankamir geta veitt.
10