Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 16

Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 16
fara utan í starfsnám og vinnu. Ég var eitt ár í starfsnámi hjá IBM í Kaupmannahöfn. Ég fór á milli deilda og kynntist þar rekstri stórra fyrirtækja. Árið eftir fór fjölskyldan síðan til Parísar þar sem við vorum í 2 ár. Höfuðstöðvar IBM fyrir Evrópu, Afríku og Mið-Austurlönd voru og eru í París. Þetta var gífur- lega góður skóli og reynslan sem ég fékk erlendis á þessum tíma og náin kynni af starfsemi fyrirtækisins gerði mig að hundrað prósent IBM manni. Á Parísarárunum var mikill órói í mörgum löndum Afríku og Asíu þar sem IBM var með skrifstof- ur. Öryggi starfsfólksins sat alltaf í fyrirrúmi og hvenær sem óeirðir brutust út var allt gert til að koma starfsfólkinu fyrir á öruggum stað eða flytja það úr landi en eignir fyrir- tækisins látnar mæta afgangi. Ég var mjög uppnuminn af þessari um- hyggju IBM fyrir starsfólkinu sem og fyrir stjórnun þess, uppbyggingu og starfsaðferðum. Þá sá ég virkilega hvað IBM stóð fyrir og oft var ég stoltur af því hvernig fyrirtækið vann. Á Parísarárunum hafði ég með höndum markaðsráðgjöf í Afríku og Mið-Austurlöndum. Þetta var lær- dómsríkt. Ég ferðaðist víða og kynnt- ist mismunandi þjóðum og meðal þeirra landa sem ég hafði með að gera voru ísrael, Suður-Afríka, íran og Líbanon." Starfsframi — Hver var tilgangurinn með Par- ísardvölinni? „Með henni var verið að marka brautina fyrir starfsframa innan IBM. Ég fékk að vita áður en ég fór út að fyrirtækið ætlaði mér meiri og stærri verkefni þegar heim kæmi. Það var auðvitað háð því hvernig ég myndi standa mig úti. Svona tæki- færi eins og IBM býður upp á eru ómetanleg fyrir starfsmenn þess.“ —Varst þú ekki óvenju ungur i þessu starfi erlendis? „Ég var 29 ára þegar ég fór út og ég var alltaf yngstur eða með þeim yngstu í hópi starfsfélaganna. Mörg- um fannst líka skrýtið að starfs- maður frá svona litlu landi eins og ísland er skyldi vera við markaðsráð- gjöf í svo stórum löndum eins og var víða í Afríku og Asíu. Bæði aldur minn og sú staðreynd að ég kom frá litlu landi gerði meiri kröfur til mín að sanna tilverurétt minn og láta taka tillit til skoðana minna.“ Eftir að heim var komið 1976 beið það verkefni Gunnars að koma á laggirnar sérstakri söludeild hjá IBM á Islandi en sölustarfsemin hafði áður tilheyrt kerfisdeildinni. „Hlut- verk mitt var að byggja upp söludeild í svipuðum dúr og þekktist hjá öðrum IBM fyrirtækjum. Ég fékk mjög gott starfsfólk og það tók skamman tíma að koma söludeild- inni á fulla ferð. Fljótlega eftir heim- komuna var ég útnefndur staðgengill forstjóra, Ottó Michelsen. Árið 1982 ákvað Ottó að draga sig í hlé og þá var ég beðinn að taka við starfi hans.“ Aldurinn skiptir ekki máli — Báru þessi forstjóraskipti ekki nokkuð brátt að? „Þegar mannabreytingar af þessu tagi verða hjá IBM er tilkynnt um þær með mjög skömmum fyrirvara bæði hér og erlendis. Tilkynningar um forstjóraskipti eru jafnvel ekki sendar út nema með mánaðar fyrir- vara þótt þau hafi átt sér langan að- draganda. Ef þetta er tilkynnt of snemma getur það valdið þeim sem er að hætta erfiðleikum því óneitan- lega mun eftirmaðurinn alltaf skyggja á og starfsfólk snýr sér frek- ar til hans.“ — Nú varst þú frekar ungur þeg- ar þú tókst við starfi forstjóra IBM. Er ekki erfitt fyrir unga menn að tak- ast á hendur jafn ábyrgðarmikið starf i svo virtu fyrirtæki? „Aldurinn skiptir ekki máli enda er það að verða æ algengara að menn á aldrinum 30-40 ára taki við störfum forstjóra hér á landi. Innan IBM hygg ég þó að ég hafi verið yngstur forstjóra. En það er persón- an en ekki aldurinn sem skiptir máli. Enginn ætti því að geta afsakað sig með því að vera ungur að árum þó hann nái ekki árangri. Eitt er þó mjög mikilvægt að varast. Því yngri sem menn eru þeim mun hættari er þeim við að ofmetnast. Menn verð því að gæta sín sérstaklega að láta slíkan frama ekki stíga sér til höfuðs. Forstjórastarf er eins og hvert annað starf þar sem gerðar eru ákveðnar kröfur sem menn verða að uppfylla.“ — Þú komist á toppinn hjá IBM hér á landi. Hyggur þú á frekari starfsframa hjá IBM erlendis? „Ég finn að hér á ég heima og mér líkar best að starfa hér. Ég hef því ekki hugsað mér að sækja á önnur mið.“ Hlutverk stjómandans — Hvert er hlutverk þitt sem stjórnanda? „Hlutverk mitt er fyrst og fremst að tryggja framgang IBM árlega með langtímamarkmið í huga. Til Skipurit IBM1987 Forstjóri Gunnar M. Hanson MarkaÖ88vi6 Fjármálasviö Stjórnunarsviö Starfsmannasviö Tæknisviö Jón Vignir Karlsson Friörik Friöriksson Sverrir Ólafsson Jón A. Marinósson Þorsteinn S. Þorsteinsson 16

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.