Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 17
Jón Vignir Karlsson framkvæmdastjóri markaðssviös IBM afhendir Gísla Erlendssyni framkvæmdastjóra Rekstrar-
tækni hf. fyrstu verðlaunin kr. 500 þúsund í hugbúnaöarsamkeppni IBM.
þess að geta náð þessu markmiði
þarf ég góða vöru, ánægða viðskipta-
vini og gott og ánægt starfsfólk. Ég
legg því mikið upp úr því að IBM
veiti sem besta þjónustu og ennfrem-
ur reynum við að hugsa vel um
starfsfólkið. Mér ber því að velja
rétta fólkið til fyrirtækisins, veita því
svigrúm til þroska og fela því
ábyrgð.
Að mörgu leyti held ég að meiri
kröfur séu gerðar til stjórnenda nú á
tímum en áður fyrr. Það sem ein-
kennir unga stjórnendur í dag er að
þeir þora að taka ákvarðanir sam-
kvæmt sannfæringu sinni hvort sem
þær eru vinsælar eða ekki. Slíkar
ákvarðanir geta oft gengið í berhögg
við það sem undirmenn ráðleggja.
Auðvitað á að leita ráða hjá undir-
mönnum en það fer í mig ef stjórn-
endur skjóta sér á bak við undir-
menn eða aðra þá sem hafa ráðlagt
þeim að gera eitthvað sem er ekki í
samræmi við þeirra skoðanir. Allar
ákvarðanir sem ég tek eru auðvitað á
mína ábyrgð og eftir sannfæringu
minni.
Stjórnandinn í dag þarf að geta
unnið úr flóknari upplýsingum en
áður þekktust. Tölvurnar gera það
að verkum að grunnur fyrir ákvarð-
anir liggur ljósar fyrir. Stjórnandinn
þarf því að lesa í gegnum fjölda
gagna, skilja aukaatriðin frá aðal-
atriðum og taka ákvarðanir á grund-
velli þess.“
— Er stjórnun meðfæddur eigin-
leiki?
„Mjög mikið af þessu er sjálfsagt
meðfætt. Stjórnandinn þarf að búa
yfir ýmsum kostum sem erfitt er að
læra af bókum. Hann þarf að vera
ráðvandur, hafa ákveðna greind, sem
felst m.a. í að geta skilið milli auka-
atriða og aðalatriða, aðlögunarhæfni,
vera auðveldur í samskiptum, skiln-
ingsríkur á þarfir starfsmanna og
hafa þor til að taka ákvarðanir á eig-
in spýtur.“
+
Oformlegur stíll
— Aðlögunarhæfni að örum
breytingum er nú talin vera ráðandi
þáttur um velgengni fyrirtækja.
Ýmsir fræðimenn um stjórnun telja
því nauðsynlegt að fyrirtæki breyti
stjómskipulagi sínu og taki upp
svonefnt flatt skipulag. Hver er skoð-
un þín á þvi?
„Það er rétt að stjórnendur hafa
styttri tíma en áður til að taka
ákvarðanir. Þungt stjórnskipulag er
hverju fyrirtæki til trafala ef of mörg
þrep eru á milli lægstu stjórnenda og
æðstu stjómenda. Hér hjá okkur em
10 stjórnendur fyrir utan forstjórann
og til þess að bæta úr þessu reyni ég
að vera sem mest meðal starfs-
manna. Ég hef mjög óformlegan
stjórnunarstíl og reyni að hafa dyrn-
ar opnar þannig að starfsfólk geti lit-
ið inn eigi það erindi. Ég reyni líka að
ganga um fyrirtækið sem oftast og
spjalla við starfsmenn. Ég á það
ennfremur til að kalla á starfsmenn
sem ekki heyra beint undir mig, ann-
aðhvort úr einni deild eða ég blanda
saman fólki úr ýmsum deildum. Ég
skýri frá því sem er að gerast hjá
fyrirtækinu bæði heima og erlendis
og reyni að fá skoðanir fólks á ýms-
17