Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.02.1987, Qupperneq 20
Gunnar byrjar daginn á því aö svara tölvupóstinum. Samskipti IBM manna hér heima og milli landa fara fyrst og fremst fram í gegnum tölvu en lítiö í gegnum síma. un okkar á trúnaðarsamtölum milli yfirmanns og starfsmanns. I samráði við starfsmann setur stjórnandinn honum markmið fyrir næsta ár og ber starfsmanni að vinna að þeim markmiðum. Þessi markmið þurfa helst að vera þess eðlis að auðvelt sé að mæla árangurinn því yfirmenn gefa starfsmönnum einkunn eftir árið. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir hjá starfsfólki enda er enginn í vafa um til hvers er ætlast af honum. Ef menn treysta sér ekki til að uppfylla þær kröfur sem til þeirra eru gerðar þarf fyrirtækið að kanna hvað það getur gert til að hjálpa viðkomandi annaðhvort með því að bjóða upp á námskeið eða tímabundna hand- leiðslu. Næsta ár á eftir fá menn ný mark- mið og þannig koll af kolli. Frammi- staða í starfi hefur áhrif á laun starfsfólks. Það er algjör forsenda þess að hægt sé að hvetja menn til þess að leggja meira af mörkum að þeir fái einhverja umbun fyrir og njóti þess sem vel er gert. Við höfum okkar eigin launaramma. Við könn- num laun á vinnumarkaðnum í sam- vinnu við nokkur önnur fyrirtæki og reynum að vera í efri kantinum í launagreiðslum. Markmiðið hjá okkur er að segja engum upp ef menn sinna starfi sínu af alúð og áhuga. IBM hefur fyrir reglu að þrátt fyrir að aðstæður breytist er engum sagt upp heldur er mönnum boðið önnur störf innan fyrirtækisins. Ef starfsfólk aftur á móti vill ekki leggja sig fram þrátt fyrir að reynt hafi verið að skapa því gott starfsumhverfi er því enginn greiði gerður að halda því áfram í starfi og ekki síður gott fyrir það en fyrirtækið að leiðir skilji.“ Siðareglur IBM — Siðareglur IBM hafa verið sveipaðar dularljóma. Hverjar eru þær og hvaða áhrif hafa þær hjá IBM á íslandi? „Frá því IBM var stofnað 1914 hefur fyrirtækið verið svo heppið að hafa frábæra stjórnendur sem mót- uðu á sinn hátt þær reglur sem farið er eftir. Þessar reglur eru margvís- legar. í fyrsta lagi er það virðing fyrir einstaklingnum, viðskiptavinurinn á rétt á sem bestri þjónustu, menn eiga að sýna vandvirkni í hvívetna, stjórnendur eiga að sýna fagleg vinnubrögð og IBM á að vera góður þjóðfélagsþegn í hverju landi þar sem það starfar. Þessar reglur gilda auðvitað hér á landi sem annars staðar. Við fáum hingað árlega endurskoðendur frá IBM sem yfirfara reksturinn og sjá til þess að öllum reglum sé framfylgt. Auk þess fer skoðanakönnun fram hér annað hvert ár þar sem hver starfsmaður undir nafnleynd svarar spurningum sem snerta fyrirtækið, starfsaðferðir, starfið, yfirmennina o.s.frv. Niðurstöður úr þessari skoð- anakönnun eru síðan bornar saman við niðurstöður úr könnunum ann- arsstaðar hjá IBM. Allir yfirmenn hafa því mjög strangt aðhald. Þeir þurfa að vera tilbúnir að mæta dómi starfsmanna og geta ekki brugðið fyrir sig neinum hlífiskildi. Við tökum þessa skoðanakönnun mjög föstum tökum. Eftir að niður- stöður hafa borist og stjórnendur rætt þær heldur hver yfirmaður fund með starfsfólki í sinni deild og skýrir hvað hefur komið fram og ræðir út- komuna við starfsfólkið. Yfirmenn- irnir skila síðan skýrslum til mín og við ræðum þær gaumgæfilega og leggjum á ráðin hvernig við eigum að bæta úr því sem talið er vera ábóta- vant. Þá er búin til áætlun um fram- kvæmdir og starfsfólkið fær síðan að vita hvað við ætlum að gera til að laga hlutina. 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.