Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 22

Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 22
hendur — í framleiðslu, sölu- starfi, þjónustu og stjórnun. 4. Að stuðla að arðsemi, forsendu velgengni okkar. „Fimmta markmiðinu var síðan bætt við á síðasta ári og það sett efst á listann: Að efla samstarf okkar við viðskiptavinina“, sagði Gunnar. Miklar breytingar hafa orðið á rekstri IBM eftir að Gunnar tók þar við forstjórastarfi 1982. Hann fékk IBM til að kaupa skrifstofuhúsnæðið í Skaftahlíð 24 en yfirleitt fjárfestir IBM ekki í slíkum fasteignum en bindur fé sitt frekar í þróun, rann- sóknum og verksmiðjum. Gunnar taldi hins vegar að framtíð fyrirtæk- isins i svo stóru leiguhúsnæði væri ótrygg og náði hann þessari sterfnu- breytingu fram og húsið var keypt 1984. Skömmu síðar fékk IBM fullt verslunarleyfi hér eftir að lögum hafði verið breytt. Áður var það þannig að öll bein sala á IBM búnaði fór í gegnum fyrirtækið í Bandaríkj- unum. „Þessi breyting varð bæði til góðs fyrir okkur og þjóðarbúið. Allar tekjur af sölunni renna nú til okkar og eru skattskyldar hér á landi“, sagði Gunnar. Hann bætti því við að ólíkt mörgum öðrum alþjóðlegum fyrirtækjum þá léti IBM hagnaðinn myndast í sölulandinu. IBM er því meðal hæstu skattgreiðenda í hverju landi þar sem það er starfrækt. Eftir að IBM fékk verslunarleyfi hér á Iandi breyttist starfsemi þess mjög. Áður leigðu notendur IBM tölva vélarnar af fyrirtækinu en nú eru allflestar vélar seldar. Vélarnar eru flestar seldar á kaupleigusamn- ingi og var IBM meðal fyrstu fyrir- tækja hér sem buðu upp á slík við- skipti. Ör vöxtur — Hvernig hefur vöxtur fyrirtæk- isins verið? „Við höfum vaxið hratt og færum okkur stöðugt upp listann yfir 100 stærstu fyrirtækin í Frjálsri verslun. Árið 1984 var velta okkar tæpar 300 milljónir króna á verðlagi þess árs en árið 1986 var veltan rúmar 700 millj- ónir króna. Þrátt fyrir aukin umsvif höfum við ekki fjölgað starfsmönn- um að sama skapi. Við reynum að nota tölvutæknina til hins ýtrasta og mæta þannig auknu álagi. Hér starfa um 80 manns en reikna má með því að 500-600 manns vinni við að þjón- usta viðskiptavini IBM á einn eða annan hátt hérlendis. Þá höfum við farið í samstarf við þrjá aðila sem selja fyrir okkur einkatölvur. Ennfremur erum við í samstarfi við 15 fyrirtæki sem að- stoða við sölu á vélbúnaði og hug- búnaði. Loks látum við sérstakt fyrir- tæki annast allan innflutning fyrir- tækisins. Þetta víðtæka samstarf hefur hjálpað okkur til að vaxa án þess að þurfa að bólgna út sjálfir ef svo má segja. Með því tryggjum við líka ákveðinn sveigjanleika. Þetta er leið sem IBM hefur farið í öðrum löndum. Að vísu fóru mörg IBM fyrirtæki einnig út í að reka eig- in sölubúðir en við völdum aðra leið. Nú er IBM erlendis að hætta við þennan verslunarrekstur þar sem hann hefur ekki gefið nógu góða raun.“ — Hafið þið náð markmiðum ykk- ar um hagnað? „Við höfum náð þeim hagnaðar- markmiðum sem fyrirtækið hefur sett okkur að síðasta ári undan- skildu. Þá brást okkur bogalistin sem vonandi kemur ekki fyrir aftur. Afkoman hér er þó góð í samanburði við mörg önnur IBM fyrirtæki. Til að fyrirbyggja allan miskilning er rétt að taka það fram að hér gildir sama verð og í öðrum Evrópulöndum. Við getum státað af því að vera í efri kantinum sem sýnir að við höfum gott starfsfólk og góð samstarfsfyrir- tæki. Árið 1986 nam hagnaður fyrir skatta 110 milljónum króna sem er 15% af heildartekjum. Áætlaður tekju-og eignaskattur vegna 1986 er 62.8 milljónir króna þannig að hagn- aður eftir skatta er áætlaður 47.2 milljónir eða um 7% af rekstrartekj- um. Þar sem hagnaðurinn er látinn myndast í sölulandinu eins og áður er nefnt og fá dæmi eru um meðal alþjóðlegra fyrirtækja þá gefur að Veitingahúsið Kirkjuveg i 21, Skútinn, Vestmannaeyjum: Sími 98-1420 22

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.