Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 27
nýjum stðrfum
Vogalax:
Stöðin stækkuð í
2.5 milljónir seiða
—rætt við Vilhjálm Guðmundsson framkvæmdastjóra
Texti: Þórhildur Pétursdóttir
Nýjar atvinnugreinar vekja
ætíð athygli og von um fjöl-
breyttari atvinnufyrirtæki í
framtíðinni. Um nokkura ára
skeið hafa verið starfræktir
nokkrir tugir laxeldisstöðva hér
á landi, flestar suður
með sjó. Eitt stærsta
fyrirtækið á sviði haf-
beitar er Vogalax hf.,
Vogum á Vatnsleysu-
strönd sem er í eigu
Fjárfestingarfélags Is-
lands, Oregon Aqua
Food og Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna.
Stöðin hefur verið
starfrækt í nokkur ár
sem tilraunastöð. Nú
má segja að meiri al-
vara sé að færast í leik-
inn. Ætlunin er að
stækka stöðina sem er í
dag 650.000 seiða stöð
í 2V2 milljón seiði á
þessu ári. I vor er ætl-
unin að sleppa á einu
bretti 400.000 seið-
um en það er stærsta
slepping sem um getur
af seiðum sem tilheyra
Atlantshafsstofninum.
Hér er ekki færst lítið í
fang en hver er maður-
inn á bak við fram-
kvæmdirnar?
Vilhjálmur Guðmundsson heitir
hann og tók við starfi framkvæmda-
stjóra Vogalax hf. um síðustu ára-
mót. Vilhjálmur er fæddur og uppal-
inn í Reykjavík, stútent úr Verslun-
arskóla íslands árið 1977. Síðan lá
leiðin í Viðskiptadeild Háskóla Is-
lands en samhliða námi vann hann
hjá Karnabæ, allt til ársins 1985 er
hann hélt utan til framhaldsnáms í
alþjóðlegum markaðsmálum við há-
skólann í Lundi í Svíþjóð. Lokaverk-
efni Vilhjálms fjallaði um markaðs-
mál í fiskeldi og hvernig vinna megi
saman að markaðssetningu eldislax.
Auk þess að hafa með höndum
framkvæmdastjórn Vogalax hf.
starfar Vilhjálmur við almenn ráð-
gjafastörf hjá Fjárfestingarfélagi ís-
lands. Frjáls verslun knúði dyra hjá
Vilhjálmi á dögunum og var hann
fyrst inntur eftir í hverju starf hans
sem framkvæmdastjóri Vogalax hf.
fælist?
„í dag er meginþungi starfsins
tengdur framkvæmdum og uppbygg-
ingu í sjálfri stöðinni en hún hefur
hingað til starfað sem tilraunastöð.
Eitthvað mun ég verja tíma
mínum í markaðsmál þó
svo framleiðslan sé enn lítil,
þá sérstaklega til að þreifa
fyrir mér og reyna að
byggja upp sambönd. Auk
þess verð ég að sinna áætl-
anagerðum svo eitthvað sé
nefnt."
— Hvemig er daglegum
störfum í fyrirtækinu hátt-
að?
„Hjá Vogalax starfa nú 8
manns sem sjá um dagleg-
an rekstur, fóðrun, um-
hirðu, uppbyggingu stöðv-
arinnar o.fl. Sjálfum finnst
mér mikilvægt að fylgjast
með úr návígi og fer ég
þess vegna reglulega suður-
eftir til að fylgjast með því
sem er að gerast.“
Stefna á
Evrópumarkað
— Hvenær verður stöð-
in komin í fullan rekstur?
„Við reiknum með að
árið 1989 verði stöðin kom-
in í fullan rekstur.
Þ.e. þá verður uppbyggingu
lokið og fiskurinn farinn aðskila sér
í hafbeitinni.
— Nú mun sala á eldislaxi héðan
svo til eingöngu hafa miðast við
Bandaríkjamarkað, verður svo
áfram?
27