Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 28
„Það er rétt, fram að þessu hefur
það litla magn sem íslendingar flytja
út verið selt til Bandaríkjanna. Þó
styttra sé fyrir okkur að flytja vöruna
yfir hafið, samanborið við keppinaut-
ana, verður að hafa í huga að Banda-
ríkjadalur hefur verið og er óhag-
stæður. Fólk þarf að læra að neyta
laxins öðruvísi en soðins eins og
hann hefur aðallega verið matreidd-
ur hingað til. Til að dreifa áhættunni
stefnum við á Evrópumarkað einnig.
Leggja þarf áherslu á að ná til fólks-
ins með fræðslu um laxinn og þá
möguleika sem hann býður upp á
varðandi matreiðslu. Einnig má
binda vonir við að hægt verði að
flytja út unninn lax í stórum stíl t.d.
reyktan. Það sem máli skiptir er að
treysta markaðinn og hafa jafnt
framboð á vörunni allt árið um
kring.“
Aðstæður hvergi betri
en á íslandi
— Hefurðu þá trú að hafbeitar-
stöðvum á borð við Vogalax verði
langra lífdaga auðið?
„Að sjálfsögðu, annars stæðum
við ekki í þessu. Á íslandi eru bestu
aðstæður til laxeldis sem hægt er að
hugsa sér. í fyrsta lagi er vatnið hér
hreint og smitfrítt. Einnig höfum við
ódýran jarðvarma sem má nýta til
hagkvæmari rekstrar. Við skulum
athuga að hafbeitarlax hefur sér-
staka yfirburði — munurinn á haf-
beitarlaxi og eldislaxi eins og Norð-
menn rækta er sá að hafbeitarlaxinn
er villtur, kjötið er rauðara og að
mínu mati mun betra til matar. Sé
rétt að markaðmálum staðið auk
þess að fyllsta hagkvæmni í rekstri
náist, ættu allar forsendur fyrir
arðsemi fyrirtækisins að vera fyrir
hendi. Því má heldur ekki gleyma að
tilvera hafbeitarstöðvar krefst þess
að endurheimtur laxins verði góðar.“
Enn á steinaldarstigi
— Nú hefur fiskeldi gengið nokk-
uð misjafnlega hér á landi, hverjar
telur þú vera ástæðurnar?
„Ég get ekki lagt fram eina
ástæðu fram yfir aðrar. Frumkvöðlar
eins og Skúli í Laxalóni áttu erfitt
uppdráttar í kerfinu varðandi sínar
tilraunir í fiskeldi. Það hefur eflaust
haft sín áhrif. Hafa verður í huga að
rekstur fiskeldisstöðvar er og verður
áhættusamur. Þekking á lífeðlis-
fræðilegum forsendum laxins og
hegðun hans hefur verið lítil. Þrátt
fyrir mikinn uppgang í þessari grein
síðustu mánuði á mikið eftir að
breytast og þekking manna aukast.
Til að gera sér grein fyrir hversu
mikið, væri hægt að líkja stöðunni í
dag við steinaldarstig. Aðstæður hér
á landi eru mjög góðar eins og ég hef
þegar nefnt og ef rétt er staðið að
rannsóknum og menn nýta sér þekk-
ingu og reynslu hvers annars, ætti
áhættan í slíkum rekstri ekki að vera
svo mikil.“
Markaðsmálin
minnsta málið!
— Er áhugi þinn bundinn við lax-
eldi og markaðssetningu eða rennir
þú stundum sjálfur fyrir lax?
„Ég hef alltaf haft gífurlegan
áhuga á stangveiði og jafnan farið í
laxveiði á sumrin, jafnvel á námsár-
unum þegar fjárhagurinn var ekki
alltaf upp á marga fiska. Hins vegar
ÖRYGGI
OG ÁNÆGJA
í AKSTRI
Veltir býður Volvobíla á sérstaklega
hagstœðu verði og góðum kjörum:
VOLVO 340 DL VERÐ FRÁ KR. 477.000,-
VOLVO 240 DL VERÐ FRÁ KR. 646.000.-
VOLVO 740 GL VERÐ FRÁ KR. 812.000.-
Hafið samband við sðlumennina og leitið
nánari upplýsinga.
OPIÐ Á LAUGARDÓGUM í VOLVOSAL
SKEIFUNNI 15 frá 10-16.
SKEIFUNNI 15, SÍMI: 91-35200.
28