Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 35

Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 35
stjórnendur í dag hafa ekki náð tök- um á tækninni. Tæknimenn ekki á sömu bylgjulengd og forstjóramir Sambandsleysi á milli stjómenda fyrirtækja og tölvusérfræðinganna á töluverðan þátt í þeim vanda sem verður við tölvuvæðingu fyrirtækja. Stjórnendurnir sem ráða yfir fjár- magninu skilja í fæstum tilvikum eða gera sér grein fyrir tæknimöguleik- unum og tæknimönnunum er ótamt að hugsa hugmyndir sínar út frá sölumöguleikum þeirra. Stór bandarískur banki, Security Pacific National Bank, hefur gripið til þess ráðs að gera tölvudeild sína að sjálfstæðri rekstrareiningu sem verður að skila tekjum til að standa undir eigin rekstri. Ef aðrar deildir bankans vilja njóta tölvuvæðingar þá leita þær til tölvudeildarinnar, sem gefur þeim tilboð. En deildir bankans leita einnig tilboða annars- staðar. Ef tilboð tölvudeildarinnar er ekki hagstæðast þá verður hún af verkinu. Tölvudeildin hefur síðan heimild til þess að leita sér verkefna utan sjálfs bankans og veitir þegar nokkrum öðrum bönkum þjónustu. Þetta fyrirkomulag hefur þegar borið þann árangur að aukning gjalda bandaríska bankans vegna tölvuvæðingar varð aðeins um 4% árið 1985 í stað 28% aukningar ár- lega tvö árin þar á undan. Þróunin hér á landi? Ekki er nein ástæða til að halda að tölvuvæðing hér á landi hafi tekist betur til í byrjun heldur en í Banda- ríkjunum. í áðurnefndri grein Stef- áns Ingólfssonar verkfræðings er bent á að menntun tölvumanna sé al- mennt lélegri hér en vestra. Á grundvelli upplýsinga úr listum um stærstu fyrirtæki, sem árlega birtist í Frjálsri verslun, var gerður samanburður á breytingu á veltu nokkurra íslenskra fyrirtækja ann- arsvegar og síðan á breytingu á fjölda starfsmanna þeirra hinsvegar. Samanburðar-árin voru 1979 og 1985. Velta fyrirtækjanna var reikn- uð á verðlagi ársins 1985. Af listanum, sem hér fylgir, er tæpast hægt að ráða neitt annað en að tölvuvæðing þessara íslensku fyr- irtækja hafi í það minnsta ekki valdið því að hlutfallsleg fjölgun starfs- manna hafi orðið meiri en hlutfalls- leg aukning veltu fyrirtækjanna á sama tíma. Athyglisverð er sú mikla aukning sem orðið hefur á veltu banka og sparisjóða á þessum tíma. Er hún mun meiri en annarra fyrirtækja sem á þessum lista eru. Rétt er að benda á að lækkun veltu tveggja vátrygg- ingafélaganna mun stafa af því að ís- Tafla 1 Breytingar á veltu og starfsmannafjölda 1979 -1985 Velta Velta 1979 Velta Fjöldi Fjöldi % breyt % breyt 1979 á verðl. 1985 starfsm. starfsm. starfsm. veltu 1983 1979 1985 79/85 79/85 Landsbanki íslands 369 3.913 6.372 955 1121 17 63 Búnaðarbanki íslands 120 1.273 2.666 357 513 44 109 Útvegsbanki íslands 97 1.032 2.556 343 367 4 148 Iðnaðarbanki íslands hf. 35 371 1.058 108 203 88 185 Verslunarbanki íslands hf. 26 276 562 98 141 44 104 Samvinnubanki íslands hf. 46 488 851 205 205 0 74 Alþýðubankinn hf. 10 106 277 34 70 106 161 Sparisj. Keflavíkur & nágr. 15 159 351 39 72 85 121 Sparisj. Rvk. & nágrennis 13 138 311 22 78 255 125 Sparisj. Hafnarfjarðar 14 149 285 41 71 73 91 Samvinnutryggingar Gt. 49 520 628 115 126 10 21 Sjóvátryggingafél. ísl. hf. 45 478 397 65 58 -11 -17 Tryggingamiðstöðin hf. 33 350 420 27 29 7 20 Almennar tryggingar hf. 30 318 344 58 62 7 8 Trygging hf. 45 478 212 41 38 -7 -56 Brunabótafélag íslands 32 340 423 57 76 33 24 Olíufélagið hf. 368 3.905 4.188 279 293 5 7 Skeljungur hf. 292 3.099 3.260 272 262 -4 5 Olíuverslun íslands hf. 247 2.621 2.387 238 275 16 -9 Landsvirkjun 89 945 2.806 229 299 31 197 Rafmagnsveitur ríkisins 122 1.295 2.041 384 334 -13 58 Samb. ísl. samvinnufélaga 1.075 11.408 11.788 1.432 1591 11 3 Flugleiðirhf. 392 4.160 5.783 1.342 1.338 8 30 Kaupfél. Eyf. Akureyri 345 3.661 3.740 1.040 1.098 6 2 Hf. Eimskipafélag íslands 202 2.144 2.714 1.004 751 -25 27 35

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.