Frjáls verslun - 01.02.1987, Blaðsíða 36
lensku félögin drógu mjög úr starf-
semi sinni á sviði alþjóðlegra endur-
trygginga í kjölfar áfalla sem urðu á
því sviði.
Vegna þess að á listanum eru ein-
vörðungu íslensk fyrirtæki, þá er öll-
um fulljóst að hér er í öllum tilvikum
um að ræða rekstur sem byggir á
miklum og nákvæmum upplýsing-
um. í mörgum tilvikum er meira að
segja nær víst að rekstur fyrirtækj-
anna mundi gjörbreytast ef tölvu-
væðingarinnar nyti ekki við. Banka-
kerfið með daglegt uppgjör á tékka-
reikningum og kreditkortin, sem sí-
vaxandi greiðsluform mundi til
dæmis vera nær óhugsandi í núver-
andi horfi, svo eitthvað sé nefnt.
Þekkt er dæmi frá Bandaríkjun-
um, þar sem þarlendur sérfræðingur
reiknaði út og komst að þeirri niður-
stöðu, að ef núverandi þjónustu og
upplýsingastig í bankakerfinu þar
ætti að haldast og framkvæmast án
tölvuvæðingarinnar, þá mundi helm-
ingur bandarísku þjóðarinnar þurfa
að vinna í bönkum.
Auknar upplýsingar
jafngildi hagnaðar?
Auknar upplýsingar, sem fengist
hafa með tölvuvæðingunni og hefði
verið óhugsandi að fá án hennar, eru
vafalaust mikilvægt atriði þegar
meta á gagnsemi tölvuvæðingarinn-
ar.
Með bættri menntun mun tölvan
nýtast enn betur.
Við getum þess vegna gefið okkur
það að tölvuvæðing fyrirtækis hafi
ekki skilað hlutfallslegri aukningu
framleiðni eða hagnaðar en hinsveg-
ar hafi fyrirliggjandi upplýsinga-
magn aukist verulega.
Nýting þessarra auknu upplýsinga
getur verið á tvennan hátt: í fyrsta
lagi getur verið að upplýsingarnar
séu ónotaðar eða nýtist aðeins til
gagnlausra „nótusendinga" á milli
starfsmanna. Þá er ver farið en
heima setið. í öðru lagi getur niður-
staðan verið sú að hið aukna upplýs-
ingaflæði hafi bætt samkeppnisað-
stöðu fyrirtækisins gagnvart keppi-
nautunum. Það getur auðvitað verið
á ýmsan hátt en í öllum tilvikum er
það til bóta og þá ekki neinn vafi á
gagnsemi aukinna upplýsinga.
Helstu heimildir: Listi um
stærstu fyrirtæki í Frjálsri
verslun, Tölvumál, tímarit
Skýrslutæknifélags Islands,
International Business Week
og gögn Rekstrarstofnunar
um tölvu- og fjarskiptavæð-
ingu.
Vantar þig tölvupappír?
Framleiðum allar gerðir af tölvupappír,
með eða án prentunar.
Vönduð vinna.
“1 Veitum einnig alhliða prentþjónustu
/ Bækur, tímarit, eyðublöð o.fl.
25 ára 1986
Prentsmiðja
Arna Valdemarssonar hf.
Brautarholti 16. Símar 17214 og 10448
36