Frjáls verslun - 01.02.1987, Qupperneq 37
utmngar
li
Hraðinn er aðalatriði
- varan má hvergi bíða
- rætt við Svein Kr. Pétursson
hjá Eimskip í Hamborg
Texti: Jóhannes Tómasson
Eimskipafélag íslands opn-
aði á liðnu hausti eigin skrif-
stofu í Hamborg. Félagið hefur
haldið uppi reglubundnum sigl-
ingum þangað frá því það hóf
starfsemi eða í 70 ár. Hefur
sami umboðsaðili starfað fyrir
félagið síðustu 50 árin en hann
var lýstur gjaldþrota í október.
Sveinn Kr. Pétursson er for-
stöðumaður skrifstofu Eim-
skips og í spjalli við blaðamann
Frjálsrar verslunar greindi
hann frá starfseminni í Ham-
borg. Hann var fyrst beðinn að
rekja starfsferil sinn:
— Ég starfaði hjá Hafskip í 15 ár,
fyrst sem loftskeytamaður, síðan á
skrifstofunni heima en síðustu þrjú
árin var ég í Hamborg og kom á fót
skrifstofu félagsins þar. Þegar Haf-
skip hætti starfsemi réðist ég til
Eimskips og hef verið í starfi hjá fé-
laginu síðan 15. janúar 1986. Fyrst
starfaði ég sem fulltrúi félagsins hjá
hinum þýska umboðsmanni og hafði
aðsetur á skrifstofu hans þar til fyrir-
tækið varð að hætta starfsemi sinni.
Tveir möguleikar
Var það ekkert slæmt fyrir Eimskip
að missa umboðsmann?
— Vissulega fylgdu því ýmis
óþægindi en við stóðum þá frammi
fyrir tveimur möguleikum. Annars
vegar að finna okkur nýjan umboðs-
aðila og hins vegar að stofnsetja eig-
in skrifstofu og þann kostinn tókum
við. Hlutirnir gerðust mjög hratt á
þessum vikum en það gekk vel að
koma skrifstofunni í gang og hóf
hún starfsemi í október 1986.
Á skrifstofu Eimskips í Hamborg
starfa nú 10 manns. Sveinn segist
hafa ráðið fjóra starfsmenn frá fyrr-
um umboðsmanni félagsins, fjóra
aðra Þjóðverja annars staðar frá og
auk hans starfar á skrifstofunni ann-
ar íslendingur.
Sveinn Kr. Pétursson forstöðumað-
ur skrifstofu Eimskips í Hamborg.
—Við vinnum alla almenna vinnu
varðandi afgreiðslu á skipunum sem
koma til okkar á hverjum fimmtu-
degi. Við berum saman vörur og
farmskrá fyrir hverja ferð, vinnum
alla pappírsvinnu vegna innflutnings
og útflutnings sem er afgreiðsla
farmbréfa og sjáum um að koma
þeim á leiðarenda og svo framvegis.
Síðan þarf að halda uppi nokkurri
markaðsstarfsemi.
í hverju er hún einkum fólgin?
— Hjá okkur má segja að hún
snúist einkum um það að afla tilboða
í flutninga til Hamborgar frá öðrum
stöðum í Þýskalandi, öðrum Evrópu-
löndum og eiginlega hvaðan sem er.
Hamborg er mikil flutningamiðstöð,
þangað eru sendar vörur frá Austur-
löndum, Afríku og Ameríku sem síð-
an er umskipað í Hamborg og dreift
til Evrópulanda og sami háttur ríkir
varðandi útflutning ríkja í Evrópu til
fjarlægra landa.
Ráðamenn íslenskra fyrirtækja
eru mun meira en áður farnir að leita
tilboða í þessa flutninga og höfum
við annast það verk. Þá leitum við til
þriggja eða fjögurra fyrirtækja og
dæmi eru iðulega um það að flutn-
ingskostnaður lækki um 20 til 30%
við slíka tilboðsleit. Það á jafnt við
um reglulegan flutning á miklu vöru-
magni sem einn og einn gám. Is-
lensku fyrirtækin kaupa líka oftar en
áður beint frá verksmiðju og þess
vegna er nauðsynlegt að tryggja sem
ódýrasta flutninga alla leiðina. Að
öðru leyti fer markaðsstarfsemin
fram héðan frá aðalskrifstofunni í
Reykjavík.
Jámbrautir, bílar,
skip
Hvernig eru vörur fluttar til Ham-
borgar?
— Frá stöðum í Þýskalandi og
mörgum Austur-Evrópulöndum
koma þær ýmist með jámbrautum
eða bílum en komi þær lengra að er
yfirleitt um að ræða skipaflutninga.
Það fer svolítið eftir stöðum hvort
meiri möguleikar eru á jámbrautum
eða bílum en venjulega er um marga
aðila að ræða á hverju sviði flutning-
anna sem við getum leitað eftir til-
boðum hjá.
Hversu hratt komast vörur frá
Hamborg til Reykjavíkur?
— Eimskip heldur uppi vikuleg-
um ferðum til Hamborgar og Brem-
erhaven. Sé lítið um flutninga frá
Bremerhaven til íslands fáum við
skipin stundum til Hamborgar í leið-
inni ef fyrirsjáanlegt er að vörur ætli
37