Frjáls verslun - 01.02.1987, Side 38
að safnast upp í svo miklum mæli að
þær komist ekki allar í næstu ferð
heim. En Álafoss og Eyrarfoss anna
þessu venjulega. Þau sigla frá
Reykjavík til Immingham, Felix-
stowe, Antverpen, Rotterdam, Ham-
borgar og svo heim þannig að vara
sem fer frá Hamborg á fimmtudegi
er komin til Reykjavíkur á mánudegi.
Þessu atriði höldum við mjög á
lofti hjá okkur þannig að Hamborg er
iðulega valin sem útskipunarhöfn
fyrir vörur annars staðar frá af því
að þaðan er siglt beint heim. Með
þeirri tilhneigingu hjá fyrirtækjum í
dag að kaupa inn í sem minnstum
einingum en gera það oft þurfa þau á
tíðum og snöggum flutningum að
halda og sá möguleiki er fyrir hendi
frá Hamborg. Flutningar hafa verið
að breytast mjög á síðustu árum
þannig að hraðinn er orðinn aðal-
atriðið, varan má hvergi bíða á leið-
inni frá framleiðanda til kaupanda.
Samkeppni um
aðdrætti
Er mikil samkeppni í flutningun-
um? — Hún er mikil og þótt skip
Hafskips sigli ekki lengur þá keppir
Eimskip við Skipadeild SÍS sem
einnig siglir reglulega til Hamborgar.
Þá er mikil samkeppni um þessa að-
drætti hjá hinum mörgu flutninga-
fyrirtækjum í Þýskalandi.
Sveinn segir að Hamborg sé mjög
alþjóðleg borg, þar sé mikil miðstöð
viðskipta og flutninga eins og áður
er getið. Ýmis íslensk fyrirtæki eiga
þar fulltrúa sína fyrir utan skipafé-
lögin, Arnarflug, SH, Sölustofnun
lagmetis, Sambandið hefur verið
með skrifstofu þar í áratugi og þar er
nú íslensk ferðaskrifstofa. Saga
Eimskips i Hamborg er líka orðin
rótgróin, félagið hefur siglt þangað
allt frá þvi það hóf starfsemi og er
þekkt í Þýskalandi. Sveinn segir líka
að forstöðumenn íslensku fyrirtækj-
anna hafi með sér nokkurs konar fé-
lagsskap:
Félag forstöðumanna
— Við hittumst einu sinni í mán-
uði, borðum saman og ræðum lands-
ins gagn og nauðsynjar. Vissulega
stöndum við í samkeppni sumir
hverjir en við höldum slíkum málum
utan við félagsskapinn. Samt sem
áður viljum við þróa þessa óform-
legu starfsemi okkar þannig að við
kynnumst sem best starfsemi hverr-
ar greinar fyrir sig. Þess vegna er nú
fyrirhugað að hver og einn standi
fyrir nokkurs konar kynningu eða
dagskrá um sitt starfssvið.
Annars er þarna hefðbundin
starfsemi Islendinga erlendis, við
höfum Islendingafélag, reglulegt
þorrablót og þar fram eftir götunum
en við erum sjálfsagt kringum 100
Islendingar í Hamborg um þessar
mundir.
FRAMLEIÐUM:
Auglýsingaskilti úr plasti.
Plast í mörgum litum og þykktum.
Plast undir skrifborðsstóla.
Sérsmíðum alls konar plasthluti.
Sjáum um viðgerðir og viðhald
á Ijósaskiltum.
Plastgler i báta og bila.
Plastgler í sól- og gróðurhús.
Plasthúsgögn ýmiskonar.
38