Frjáls verslun - 01.02.1987, Side 42
konar sérverslunum erlendis sem
nær eingöngu selja blóm. Skýringin
á þessu er talin vera sú að blóma-
verslanir hafa rýmri opnunartíma en
aðrar verslanir og bjóða því ýmsa
gjafavöru sem hentugt getur verið
fyrir neytendur að eiga aðgang að
utan hefðbundins opnunartíma
verslana.
Blómamarkaðurinn hér á landi
hefur breyst talsvert á síðustu 10
árum. Framboð hefur verið jafnara
einkum vegna þess að innflutningur
hefur aukist. Blómasalan hefur vaxið
jafnt og þétt en einkum eru það
pottablómin sem mestur vöxturinn
er í. Ekki er ólíklegt að sú rækt sem
menn leggja við að skapa skemmti-
legt umhverfi á skrifstofum með
blómum eigi sinn þátt í þeirri aukn-
ingu. Blómasalar erlendis telja að
ekki sé loku fyrir það skotið að sala á
inniblómum geti tvöfaldast fram til
ársins 2000. Til þess að svo geti orð-
ið þarf þó mikla kynningu og gert er
ráð fyrir Iandvinningum í Bandaríkj-
unum þar sem blómaneysla er til-
tölulega lítil. Það er því ekki von á
að vöxturinn á íslenska blómamark-
aðnum verði jafn hraður.
Verðmyndun
Viðskipti með blóm í Hollandi fara
fram á uppboðum. Aalsmeer upp-
boðsmarkaðurinn er þeirra stærstur
og nær hann yfir um 81 ekru lands.
Hefur hann stækkað svo ört að sagt
er að verktakarnir hafi ekki yfirgefið
svæðið frá árinu 1972 en þá náði
markaðurinn yfir 22 ekrur. Hugsan-
Iega er markaðurinn stærsta verslun-
arhúsnæði í heiminum. Hann fær
blóm frá um 4000 félagsmönnum og
um 2000 framleiðendum sem standa
fyrir utan félagið. Um 7000 flutn-
ingabílar fara frá markaðnum dag-
lega með blóm sem fara eiga til dreif-
ingar. Hollendingar voru fyrstir til að
koma á stofn slíkum mörkuðum á
samvinnugrundvelli til að koma í veg
fyrir að framleiðendur undirbyðu
hver annan. A hverjum stað þar sem
blómin eru boðin upp er ákveðin
klukka með sérstökum skala. Þegar
vísirinn hreyfist sýnir hann fallandi
verð. Fyrsti kaupandinn sem stöðvar
klukkuna er með hæsta boðið. Ef
menn stoppa klukkuna of snemma
þurfa menn hugsanlega að borga of
mikið en ef menn eru seinir á sér fá
þeir kannski engin blóm. Ýmsar
aðrar þjóðir hafa tekið þetta verð-
myndunarkerfi sér til fyrirmyndar.
Verðmyndun hér á landi er með
þeim hætti að framleiðendur eða
heildsalar ákveða verðið. Innlendir
framleiðendur hafa forgang að
heimamarkaðnum eins og fram hef-
ur komið. Þetta fyrirkomulag hefur
verið gagnrýnt meðal annars á þeirri
forsendu að verðmyndunin sé ekki
virk og markaðnum sé ekki þjónað
nægjanlega vel með núverandi inn-
flutningsleyfakerfi.
Frjálst allt árið
„Innflutningurinn hefur alltaf ver-
ið viðkvæmt deilumál enda er mat
framleiðenda og seljenda á þörfum
markaðarins mjög ólíkt þegar að því
kemur að innflutningsnefndin þarf
að ákveða magn og tegundir sem
flytja má inn“, sagði Bjarni Finnsson
framkvæmdastjóri Blómavals í sam-
tali við Frjálsa verslun er rætt var við
hann um skipulag blómaviðskipta
hér á landi.
Blómaval er meðal stærstu inn-
flytjenda á blómum. Þótt pottaplönt-
ur og afskorin blóm séu snar þáttur
í rekstri Blómavals er fyrirtækið
byggt upp sem miðstöð fyrir allt
blómaáhugafólk, fyrst og fremst þá
sem stunda garðrækt sér til ánægju
og yndisauka. Blómaval sérhæfir sig
í plöntum, áhöldum og ræktunarvör-
um fyrir þetta fólk auk þess sem
afskorin blóm og pottaplöntur eru á
boðstólum. Miðað við sambærileg-
ar verslanir erlendis eru inniblómin
þó stærra hlutfall í sölu sem helgast
af því að íslendingar hafa styttri tíma
til að stunda garðrækt en aðrar þjóð-
ir. Blómaval ræktar pottablóm á 600
fermetrum og flytur inn blóm og
plöntur og skyldan varning fyrir eig-
in verslun svo og aðrar blómaversl-
anir.
„Auðvitað verðum við að fylgja
þeim lögum sem gilda þó við séum
ekki sammála þeim“, sagði Bjarni.
„Hins vegar finnst okkur sem seljum
blóm full mikil tregða ríkja við að
nýta heimildir laganna til innflutn-
ings. Til dæmis er of mikil tilhneig-
ing til þess þegar um afskorin blóm
er að ræða að láta eina tegund koma
fyrir aðra. Þó framboð sé ekki nægj-
anlegt hér innanlands af tiltekinni
BLÓMABÚÐIN AKUR
AUGLÝSIR
Hjá okkur fáiö þiö pottablómin,
afskorin blóm og greinar, blóma- og matjurtafræ,
mold, blómaáburö o. m. fl. til blómaræktunar.
Einnig úrval af gjafavörum.
Blómaskreytingar viö öll tækifæri.
Veriö velkomin
KAUPANGIV/ MÝRARVEG 602 AKUREYRI
StMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
42